STÓRGOTT INNLEGG Í UMRÆÐUNA - MENN SEM ERU Í TENGSLUM VIÐ RAUNVERULEIKANN

Var að enda við að lesa stórgóða grein eftir þá Björn Jónasson og Ágúst Ómarsson, báðir eru þeir farsælir og góðir skipstjórar og njóta þeir báðir mikillar virðinga og eru miklir fagmenn á sínu sviði.  Í þessari grein benda þeir á margt sem hefur farið úrskeiðis í "fiskveiðiráðgjöf" HAFRÓ undanfarin ár (reyndar finnst mér þeir vera full kurteisir í gagnrýni sinni á HAFRÓ því ég hef aldrei séð að það væri nein heil brú í þessum "vísindalegu rannsóknum" þeirra alveg frá upphafi).  Það var alveg ljóst, við lestur greinarinnar, að þar fara menn með mikla þekkingu og maður les það svona á milli línanna að nú hafi þeim algjörlega ofboðið vitleysan sem er í gangi og sérstaklega algjört þekkingarleysi ráðherra á málunum, sem lýsir sér í því að það á bara að fara í einu og öllu eftir þeirri vitleysu sem er borin á borðið.  Ég vil þakka þessum mönnum fyrir þann kjark sem þeir sýna með því að skrifa þessa frábæru grein og væri þess óskandi að fleiri fylgi í fótspor þeirra, því öðruvísi verða engar breytingar........


mbl.is Ráðgjöf Hafró sögð „algjört rugl“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þekkingarleysi Svandísar sem heilbrigðisráðherra var til þess að hér er enn allt í upplausn í heilbrigðismálum og halda menn svo að hún hafi eitthvað vit á fiskveiðistjórnun? 

Sigurður I B Guðmundsson, 23.6.2022 kl. 21:27

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hún hefði aldrei fengið þetta ráðuneyti nema fyrir það að menn væru vissir um að hún hefði ekki eina einustu glóru um hvað væri eiginlega í gangi og alveg pottþétt að hún myndi ekkert gera í "Samherjamálinu".....

Jóhann Elíasson, 23.6.2022 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband