ÞAÐ VÆRI FULL ÁTÆÐA FYRIR HANA OG ÞÁ SEM ERU MEÐ HENNI Í RÍKISSTJÓRN AÐ ATHUGA HVENÆR ÞAÐ GERÐIST AÐ ÞAU SÖGÐU SKILIÐ VIÐ ÞJÓÐINA

Því það er í fullri andstöðu við  vilja þjóðarinnar að Ísland sé að fullu þátttakandi í stríðsrekstri og beri síður en svo að lýsa yfir stuðningi við annan aðilann.  Eða getur verið að Ísland sé svo flækt í "NET" ESB að okkur "BERI" að taka beinan þátt í stríði ESB og Bandaríkjanna gegn Rússlandi??????


mbl.is Utanríkisráðherra segir fulltrúa Rússlands hörundsára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Mér finnst allur stuðningur við Úkraínu réttlætanlegur. 

Sigurður I B Guðmundsson, 12.8.2022 kl. 16:26

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

4.3.2022:

Um 99% Íslendinga fordæma innrás Rússlands í Úkraínu - Um 89% styðja harðar efnahagsaðgerðir alþjóðasamfélagsins gegn Rússum

Að sjálfsögðu er ekkert ríki í NATO hlutlaust ríki og langflest ríki Evrópusambandsins eru í NATO. Þegar Svíþjóð og Finnland hafa fengið aðild að NATO verða einungis fjögur ríki í Evrópusambandinu ekki í NATO, Írland, Austurríki, Kýpur og Malta.

Og á fundum NATO hefur verið samþykkt stefna hvað snertir innrás Rússlands í Úkraínu.

Vinstri grænir eru eini þingflokkurinn á Alþingi sem er andvígur aðild Íslands að NATO.

Og meirihluti Íslendinga styður aðild Íslands að NATO og Evrópusambandinu samkvæmt skoðanakönnunum.

9.3.2022:

Um helmingur Íslendinga hlynntur aðild að Evrópusambandinu og einungis þriðjungur mótfallinn

Samkvæmt Sambandslagasamningi Íslands og Danmerkur frá árinu 1918 var Ísland opinberlega hlutlaust ríki í seinni heimsstyrjöldinni, sem kom þó ekki í veg fyrir að Þjóðverjar sökktu íslenskum skipum, enda sigldu mörg þeirra með fisk til Bretlands.

Hlutfallslega svipaður fjöldi Íslendinga og Norðmanna dó vegna seinni heimsstyrjaldarinnar. Ráðist var inn í bæði Ísland og Noreg og ríkin hersetin, Noregur af Þjóðverjum og Ísland af Bretum, þannig að hlutleysið hafði þar ekkert að segja.

Ísland og Noregur voru svo stofnríki NATO árið 1949.

Lissabon-sáttmáli Evrópusambandsins (Treaty of Lisbon):

"Does the Treaty of Lisbon create a European army?

No. Military capabilities remain in national hands. The Treaty foresees that Member States can make available civilian and military resources to the Union for the implementation of its Common Security and Defence operations.

However, any Member State has the right to oppose such operations and all contributions to them will be always on a voluntary basis.

A group of Member States who are willing and have the necessary capability will be able to undertake disarmament operations, humanitarian and rescue tasks, military advice and peace-keeping tasks. No Member State can be forced to participate in such operations."

Lissabon-sáttmáli Evrópusambandsins

Þorsteinn Briem, 12.8.2022 kl. 16:51

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Málið er það Sigurður, að með því að taka afstöðu erum við orðin beinir þátttakendur í stríði sem kemur okkur ekki nokkurn skapaðan  hlut við..... 

Jóhann Elíasson, 12.8.2022 kl. 17:18

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Og Þorsteinn Briem það eru ekki til nein almennileg könnun sem segir að um 50% landsmanna vilji ganga í ESB.  Þetta kom úr ranni Fréttablaðsins sem var að gefa til kynna HLUTA af eigin óskhyggju og farðu nú að  taka lyfin þín og gerðu eins og lyfseðillinn segir........

Jóhann Elíasson, 12.8.2022 kl. 17:24

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Skeleggur að vanda Jóhann, og búinn að fá Steina í stuði með gúgglaðar prósentur úr "flugvallarkosningum"

Ég er 100% sammála pistlinum eins og svo oft áður.

Magnús Sigurðsson, 12.8.2022 kl. 17:53

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir Magnús.  Það sem ég held að sé að hrjá Steina Briem mest, er að hann hefur lent í slæmum félagsskap á unga aldri og aldrei náð sér almennilega.  Hann á alla mína samúð og að sjálfsögðu óska ég honum alls hins besta í framtíðinni.......

Jóhann Elíasson, 12.8.2022 kl. 20:18

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég get ekki annað en vitnað í orð Þórdísar, um að það er margfalt meiri vanvirðing við rússneska fánann, þau hryðjuverk sem hafa verið framkvæmd í Úkraínu, í nafni rússneska fánans, heldur en nokkurn tímann að stíga fæti á þann sama fána.

Ef Rússar eru að ætlast til að rússneski fáninn sé virtur, verða þeir að gera eitthvað í hans nafni, sem kallar á virðingu. Þjófnaður, nauðganir og fjöldamorð á saklausum almenningi, er ekki virðingarvert.

Auðvitað vill Rússland, eða einræðisstjórnin þar, flytja út sína eigin stefnu, t.d. gagnvart fjölmiðlafólki, sem er kastað í fangelsi og sent til Síberíu, sé ritstjórnarstefna þeirra ekki í samráði við helsjúka stefnu stjórnvalda.

Það er gott hjá Þórdísi, að standa með ritfrelsi. Ef þú ert að skamma hana fyrir það, þá ert þú sjálfur, Jóhann, að biðja um að blogginu þínu verði lokað og þú sendur upp á Vatnajökul, eða í fangelsi, þar sem þú gagnrýnir yfirleitt mjög hart stefnu ríkisstjórnarinnar.

Theódór Norðkvist, 13.8.2022 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband