HVER ÆTTI "RÉTT" UPPHÆÐ VEIÐIGJALDA AÐ VERA??????????

Erfitt er sjálfsagt að koma með einhlítt svar við þeirri spurningu.  En kannski það væri ekki svo vitlaust að horfa til annars iðnaðar í því efni.  Ekki er óalgengt að hráefniskostnaður iðnfyrirtækis sé 20%.   Hjá útgerðarfyrirtækjunum eru "veiðigjöldin" langt undir þessu marki.  OG ÞAÐ SEM ER MUN ALVARLEGRA AР Í DG EIGNFÆRA ÚTGERÐARFYRIRTÆKIN VEIÐIHEIMILDIRNAR OG BÍTA SVO HAUSINN AF SKÖMMINNI MEÐ ÞVÍ AÐ AFSKRIFA VEIÐIHEIMILDIRNAR UM 5%.  HVERNIG Í ÓSKÖPUNUM ÚTGERÐIN KEMST UPP MEÐ ÞETTA ER ALVEG MEÐ ÓLÍKINDUM? GERIR ÚTGERÐIN ÞETTA MEÐ BLESSUN SKATTAYFIRVALDA OG YFIRVALDA LANDSINS???????

Setur Svandís þessar hugmyndir fram vegna þess að hana grunar að kosningar séu í nánd????????


mbl.is Leggur til 36% hækkun veiðigjalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Fréttin er villandi. Þetta er ekki hækkun á veiðigjöldum. Það eina sem frumvarpið gerir er að flýta innheimtu hluta veiðigjalda sem hefðu annars innheimst árin 2024 og 2025.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.11.2022 kl. 18:27

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég verð nú að viðurkenna það Guðmundur, að ég las ekki fréttina mjög vandlega, en það sem é las gat ég ekki skilið hana öðruvísi en að hún vildi hækka veiðigjöldin og það all verulega.  En þetta með tilvonandi kosningar er alfarið frá mér komið..........

Jóhann Elíasson, 24.11.2022 kl. 20:04

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það kom ekki fram í fréttinni, en í umræðum um málið á Alþingi var afhjúpað að þetta er engin raunveruleg hækkun.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.11.2022 kl. 21:35

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir að leiðrétta mig þarna Guðmundur, en fréttin gefur það til kynna að annað sé í gangi???????

Jóhann Elíasson, 25.11.2022 kl. 05:09

5 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Jóhann, rétt upphæð er það sem hæstbjóðandi vill greiða. Útboð fyrir hvert fiskveiðiár færir þjóðinni sannvirði og tryggir að sá sem stendur best að rekstrinum veiðir. En það verður ekki á Íslandi þar sem klíkuskapur gengur öllu framar.

Örn Gunnlaugsson, 25.11.2022 kl. 08:59

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Örn, þarna varð þér á;RÉTT VERÐ ER ÞAÐ SEM MARKAÐURINN ER TILBÚINN AÐ BORGA.  Með því að bjóða veiðiheimildirnar út fáum við HÆSTA verð í skamman tíma.  En hvað gerist þegar búið er að ryðja smærri aðilunum út af markaðnum?  Útboðsleiðin hefur kosti og galla...........

Jóhann Elíasson, 25.11.2022 kl. 10:04

7 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Rétt verð er: Það sem LÍÚ (núna SFS) segir að það eigi að vera!

Sigurður I B Guðmundsson, 25.11.2022 kl. 10:34

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er EKKI RÉTT VERÐ,Sigurður þótt það sé það VERÐ, sem verður látið gilda........ undecided

Jóhann Elíasson, 25.11.2022 kl. 11:26

9 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Þetta ætti að bjóða út á Evrópska efnahagssvæðinu, þá geta innlendir aðilar ekki rottað sig saman. Erfitt að ryðja smærri aðilum úr vegi, það koma ávallt inn nýir. Við erum með útboðskerfi á verklegum framkvæmdum og ættum að hafa sama háttinn á hér. Reyndar ætti að fara útboðsleiðina líka þegar ráðið er í opinber störf, lægstbjóðandi hinna hæfu hreppti þá starfið sem um ræðir.

Örn Gunnlaugsson, 25.11.2022 kl. 14:20

10 Smámynd: Jóhann Elíasson

Til þess að það væri hægt þyrfti að gera hér meiriháttar lagabreytingar, breytingar á stjórnarskránni og ýmislegt fleira þannig að því miður sé ég bara ekki að við höfum miklar bjargir í stöðunni.........

Jóhann Elíasson, 25.11.2022 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband