MEIRI RUGLUDALLURINN - VEIT HÚN HVAÐ HEILSÁRSDEKK ERU???????

Heilsársdekk eru ekkert annað en "GRÓFMYNSTRUÐ SUMARDEKK".  Munurinn á Sumardekkjum og Vetrardekkjum felst aðallega í gúmmíinu sem notað er í dekkin, í vetrardekkin er notað  gúmmí sem þolir mikið betur kulda en það gúmmí sem fer í sumardekkin og svo segir sig sjálft að vetrardekkin eru grófmynstraðri og til að ná enn betri virkni út úr þeim þá eru  þau einnig "míkróskorin" (en þá er einnig skorið mynstur í "mynstrið). Allir ættu  að nota dekk miðað við aðstæður og hafa það í huga að "HEILSÁRSDEKK" eru  ekki eins hentug og margir halda (yfirleitt þar að hugsa sig um tvisvar, eða jafnvel oftar, þegar kemur að "skammtímalausnum")............. 


mbl.is „Lækka ætti skatta á heilsársdekk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Held það sé orðum aukið að segja hana ruggludall að tala um heilsársdekk, því dekkjaumboðin selja dekk sem þau nefna heilsársdekk, og þá er gúmmíblandan hönnuð til að virka vel við meiri hitasveiflur, þ.e. hitastig frá mínus 20 gráður C til plús 20 gráður C. Það þýðir að virkni heilsársdekkjana er mjög góð allt árið um kring. Þetta eru upplýsingar frá dekkjaumboði.

Hjörtur Herbertsson, 30.11.2022 kl. 16:41

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er rétt hjá þér Hjörtur, að kannski tek ég fulldjúpt í árina með því að kalla hana rugludall.  Ég veit það ósköp vel að Dekkjaumboð selja dekk sem "heilsársdekk" en þessi VÖRUSVIK eru ekkert betri fyrir það, til dæmis er EKKI TIL sú gúmmíblanda sem  þolir hitastig frá +20° á celsíus til -20° á celsíus og hafi eitthvað dekkjaumboð gefið þér upp þessar tölur, þá hafa þeir dekkjaframleiðendur sem þeir selja fyrir "dottið" niður á einhverja TÖFRAFORMÚLU sem er ekki kunnug neinum öðrum.  Það vill svo vel til að ég þekki mjög vel til dekkjabransans og ég er ekki til í að kokgleypa hvaða kjaftæði sem er.....

Jóhann Elíasson, 30.11.2022 kl. 17:32

3 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Heilsársdagsbirta.........Kunningi minn fór í hringferð í Karabíska hafinu með skemmtiferðaskipi. Hann var á fyrsta farrými í svítu með svölum móti suðri. Hann var samt í sömu svítunni alla siglinguna. Morgunmatur frá 07-10, 12-15 og 18-22.

Örn Gunnlaugsson, 30.11.2022 kl. 20:03

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Vissirðu það Örn að það var í kjarasamningum loftskeytamanna, fyrir rúmum 50 árum, að þeir ættu að  vera í klefa sem væri á móti suðri...... wink

Jóhann Elíasson, 30.11.2022 kl. 22:19

5 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Það var nú ekkert svo galið Jóhann, amk með tilliti til heilsárshjólbarða á Íslandi sem mér finnst afskaplega fyndið að einhver láti sér detta í hug. En nú eru skeytastrákarnir horfnir á braut, eins og reyndar allur íslenski kaupskipaflotinn með tölu. Sjálfur var ég nú yfirleitt bara með litla kytru og stundum með glugga til suðurs þegar siglt var í suður en svo versnaði í því þegar siglt var norður.

Örn Gunnlaugsson, 30.11.2022 kl. 23:24

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já allt er víst breytingum háð, en svo sannarlega er ekki allar breytingar til góðs.....

Jóhann Elíasson, 1.12.2022 kl. 04:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband