SENNILEGA VAR ÁSTÆÐAN FYRIR STÓRLEIK PORTÚGALSKA LIÐSINS SÚ AÐ RONALDO BYRJAÐI EKKI LEIKINN

Seinni árin hefur mér fundist leikur Portúgalska liðsins snúast of mikið um persónu Ronaldos en kannski minna um fótboltann sem slíkan og Portúgalska liðið hefur ekki fengið að njóta sín sem heild.  En á þessu varð heldur betur breyting í kvöld þegar Ronaldo kom ekki inn á fyrr en seinni hálfleikurinn var um það bil hálfnaður.  Ég man ekki eftir betri leik af hálfu Portúgalska liðsins og þá er ósanngjarnt að velja einhvern einn þar úr því það má segja að allir hafi átt stórleik þar sem  liðsheildin var alveg stórkostleg.  Maður fékk það á tilfinninguna þegar staðan var orðin 5 - 1 að Svissle3ndingarnir væru bara að bíða eftir því að þessari martröð færi að ljúka e svo var ekki alveg raunin og til að "snúa hnífnum í sárinu" skoruðu Portúgalar eitt mark í lokin og enduðu á að vinna 6 - 1 og svei mér þá þeir hefðu getað skorað meira en þeir létu þetta duga..........


mbl.is Ramos með þrennu í stórsigri Portúgals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hann má muna sinn fífil fegri en hann er búinn að gleðja mann oft í gegnum árin. 

Sigurður I B Guðmundsson, 7.12.2022 kl. 11:23

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já það er alveg rétt Sigurður að hann hefur gert góða hluti í gegnum árin.  En minn punktur er sá að hann er orðinn svo mikil "stofnun2 að þar sem hann er, þar er HANN aðalmálið og fótboltinn sem slíkur kemst ekki að SAMANBER ÞAÐ AÐ PORTÚGALSKA LANDSLIÐIÐ ÁTTI SINN BESTA LEIK Í GÆR, ÞEGAR HANN VAR EKKI MEÐ......

Jóhann Elíasson, 7.12.2022 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband