GEFUR 12,4 MILLJARÐA HAGNAÐUR TIL KYNNA AÐ TEKJUR ÞURFI AÐ AUKAST????

Því miður ég get ekki komið  auga á "NEYÐINA" sem félagið horfir fram á?  Það sem ég sé er ekkert annað  en stjórnlaus græðgi.  Það kemur fram að þeir telji sig þurfa að hækka leiguna vegna hækkunar fasteignamats. Hækkun á fasteignamati leiðir að sjálfsögðu til hækkunar fasteignagjalda og en í því árferði sem við búum við verður ekki annað séð en að hagnaðurinn hefði samt sem áður gert nokkuð mikið meira un að standa undir þeim kostnaðarauka sem verður við fasteignamatshækkunina.  Er kannski "NEYÐIN" að mestu leiti sú að ARÐSEMISKRÖFUR eigendanna eru of miklar????????


mbl.is Alma: „Nauðbeygð til að hækka leiguverð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ef lesið er á milli línanna blasir við að fyrirtækið er að stórgræða á framboðsskorti húsnæðis sem er meginorsök hækkandi húsnæðisverðs og þar með hins mikla bókhaldslega hagnaðar.

En fyrirtækinu er engin vorkunn þó fasteignagjöld hækki því þá hlýtur að vera hægt að borga þau með eiginfjáraukningunni. Það segir fjármálaráðherra allavega við heimilin.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.12.2022 kl. 11:13

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er alveg rétt hjá þér Guðundur en ég held að stærsta vandamálið í þessu sé að ávöxtunarkrafa eigenda er of há ÞAÐ HEITIR MEÐ ÖÐRUM ORÐUM GENGDARLAUS GRÆÐGI.....

Jóhann Elíasson, 9.12.2022 kl. 12:32

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þetta eru mjög svo athygliverðar reiknikúnstir Jóhann, mér skilst að íbúðafélagið Alma sé keypt af GAMMA með millilendingu í Kviku, og 12,4 milljarða hagnaður sé tilkomin vegna endurverðmats á eignum, en ekki vegna tekna. Það þýðir væntanlega að eignir hafa verið vanmetnar þegar núverandi eigendur keyptu Alma af GAMMA.

Það athygliverða er að þessar eignir koma væntanlega frá Íbúðalánasjóð upphaflega, eru þær eignir sem hirtar voru af Jónum og Gunnum í hruninu, og ekki hefur fengist fullgild vitneskja um á hvað voru keyptar á sínum tíma þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir.

Nú má kannski álykta sem svo að núverandi eigendur Alma hafi keypt hagnaðinn og kannski tekið lán fyrir honum sem á að borga með framvirkum rekstrartekjum, og séu því nauðbeygðir. 

Þarna gæti því verið komið hálfgildings svar við því á hvað miklu afslætti GAMMA fékk eignir Íbúðalánasjóðs á sínum tíma og hvers vegna Why Iceland viðundrinu er svo umhugað að hækka stýrivexti nú, hann var jú efnahagsrágjafinn hjá GAMMA sem endaði í Seðlabankanum.

Magnús Sigurðsson, 9.12.2022 kl. 14:31

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna held ég að þú hafir algjörlega "neglt" það Magnús.  Kannski Kristrún Frostadóttir geti útskýrt "fléttuna" fyrir okkur????

Jóhann Elíasson, 9.12.2022 kl. 15:37

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það er ekki ómögulegt, hún fékk allavega góðan bónus blessunin, og ef ekki þá flýtur skýtur fyrir rest.

Magnús Sigurðsson, 9.12.2022 kl. 16:09

6 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Græðgin heimtar alltaf: MEIRA - MEIRA - MEIRA og það eru alltaf þeir sem minnst mega sín sem borga brúsann. Þetta sjáum við t.d. í fari hinna ofurríku, margmilljarðamæringa sem eru að þurrausa ríkissjóði allra landa þeirra sem eru neydd til að kaupa svo kallað "bóluefni" til að sprauta þegna sína með. Þessir menn eru siðblindir, sjá ekkert nema sjálfa sig og er alveg sama um þá sem blæða. Milljarðamæringarnir stefna að því að útrýma millistéttinni, það sást glöggt í tíð Obama sem forseta USA, Trump sneri þeirri þróun við meðan hann var forseti.

Málið er að við þurfum öll að endurnýja hugarfar okkar, snúa okkur frá græðgi og huga að náunga okkar, einkum þeim sem minna mega sýn. Besta leiðin til þess er að gefast Guði á hönd og leifa Orði Hans , Biblíunni, að hreinsa okkur. Er ekki einmitt nú góður tími til þess í aðdraganda jóla er við minnumst þess að "...frelsari okkar er fæddur sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs".

Tómas Ibsen Halldórsson, 9.12.2022 kl. 17:24

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já Magnús, þannig er það, Segir ekki máltækið UPP KOMAST SVIK UM SÍÐIR.......

Jóhann Elíasson, 9.12.2022 kl. 17:55

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er ekki græðgin ein af dauðasyndunum, Tómas????????

Jóhann Elíasson, 9.12.2022 kl. 17:57

9 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Græðgin er mannanna böl. Þeir sem eiga mikið vilja alltaf meira, eða ég ætti kannski að segja oftast/í flestum tilfellum.

Jú Jóhann dauðasyndirnar eru margar og því er vert að þekkja Guðs Orð til þess að geta lært að sjá hvað sé rétt og hvað rangt.

Tómas Ibsen Halldórsson, 9.12.2022 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband