HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ GERAST MEÐ MÍNA MENN????????????

Þeim er eiginlega alveg fyrirmunað að  skora mark og ef þeir skora þá er það í  eigið mark, sem á nú reyndar ekki að gera undir nokkrum kringumstæðum.  Það er eitthvað mikið að hjá liðinu og ef ekkert fer að gerast hjá þeim erum við að fara að horfa fram á botnbaráttu.  JA ÖÐRUVÍSI MÉR ÁÐUR BRÁ........


mbl.is Mörkin: Úlfarnir of grimmir fyrir Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Dapurlegt að fylgjast með þeim núna. Gera ekki árás á vörn andstæðingana og skjóta á markið utan vítateigs. Allaf skal reynt að koma með fyrirgjafir sem andstæðingar eru löngu búnir að átta sig á. 

Sigurður I B Guðmundsson, 5.2.2023 kl. 13:12

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er eitthvað mikið að angra þá, sjálfstraustið er fyrir neðan frostmark og svona mætti lengi telja.  En allt eru þetta hlutir sem hægt er að laga og þolir enga bið að tekið verði á þessu  Ég vil fá gamla góða liðið mitt til baka......

Jóhann Elíasson, 5.2.2023 kl. 13:24

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Mané var alltaf að gera árásir og skapa usla og síðan tók Luis Dias við en án þeirra er þetta hvorki fugl né fiskur! (enda fótbolti!)

Sigurður I B Guðmundsson, 5.2.2023 kl. 13:33

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Athyglisvert að frá HM hefur enginn skorað fleiri mörk fyrir Liverpool en varnarmaður Leicester sem skoraði tvö sjálfsmörk í leik liðanna 30. desember.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.2.2023 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband