NÚ VERÐUR "FJÖR" HJÁ SKATTA-KÖTU - EKKI LÝTUR FRAMTÍÐIN BJÖRGULEGA ÚT...

Eins og við var að búast þá verður ekki farið í að sporna við útþenslunni innan opinbera geirans, heldur verða skatta hækkaðir og skorið niður í allri þjónustu, nema það verður bætt dekrið við hælisleitendur og svo verða "loftslagstrúarbrögðin" enn á þeim stalli sem þau hafa verið og engin breyting á austrinum í þau og svona mætti lengi telja......


mbl.is Boða aukna skattheimtu og niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Og enn á að ná niður verðbólgu og verja tekjulægstu hópana, það hefur hingað til ekki verið von á góðu þegar sú tugga er tuðuð, -endalausar vaxta-, verð- og skattahækkanir.

Þessir blessaðir bjálfar vita ekki hvað verðbólga er og enn síður hvað orsakar hana.

Magnús Sigurðsson, 26.3.2023 kl. 20:20

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Og alltaf versnar það Magnús.  Ég held hún ætti að læra eitthvað um það hvernig á að koma fram við landsmenn og jafnvel hefði hún mjög gott af því að gera sér grein fyrir því að hún er í vinnu fyrir landsmen en landsmenn eru ekki til fyrir hana.  Og hún á að hætta þessum hroka gagnvart almenningi........

Jóhann Elíasson, 26.3.2023 kl. 20:48

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Jóhann. 

Hversu margir milljarðar ætli hafi farið í "loftslagstrúarbrögðin" og í vasa hvers ætli þeir milljarðar hafi lent? Við vitum að þeir milljarðar sem fóru í lyfjafyrirtækin lentu í vösum þeirra sem þeim stjórna, en hversu margir þeir milljarðar voru vitum við ekkert um. Svo eru það milljarðarnir sem fara í stríðsrekstur austur í Úkraínu, en þeir lenda í vasa Selenskís sem hefur dáleitt leiðtoga hins vestræna heims og þar á meðal Katrínu Jakobsdóttur.

Svo erum við hissa á því að skuldastaða ríkisins hafi versnað illilega og að verðbólga rjúki upp. Þegar ríkið fer illa með fé almennings, en ríkissjóður er fé almennings ekki einkaeign stjórnvalda, þá er ekki von á góðu, þá vill ríkið meira í kassann svo þeir, ráðamennirnir, geti haldið áfram á eyðslu fylliríinu.

Tómas Ibsen Halldórsson, 26.3.2023 kl. 22:51

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta var virkilega flot athugasemd hjá þér Tómas og ég tek undir hvert orð hjá þér.  Það er nefnilega heila málið, það er sagt að það vanti fjármagn í hitt og þetta.  það er kannski alveg rétt að mörgu leiti, EN FYRST OG FREMST ÞARF AÐ ATHUGA MEÐ ÞAÐ HVERNIG "ÚTHLUTUÐU" FJÁRMAGNI ER RÁÐSTAFAÐ Í DAG.  Ég spjallaði við mann á Selfossi í gær og sagði hann mér frá því að strax klukkan sex í gærmorgun var kominn snjómokstursbíll á Eyrarveginn og skóf í burtu þetta litla snjóföl, sem hafði fallið um nóttina 10-12 sentímetrar,  þessi snjór var svo lítill að sólin bræddi hann þegar fór að líða á daginn.  Þetta er bara lítið dæmi um hvernig Vegagerðin fer með það fjármagn sem þeir fá úthlutað og Vegagerðin er síður en svo eina stofnunin sem fer svona illa með það fjármagn sem þeir hafa....

Jóhann Elíasson, 27.3.2023 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband