Vandvirkni er dyggð.

Ég er búinn að vera í Skagafirði síðan á þriðjudag og kom aftur í gærkvöldi.  Ég passaði mig á því að lesa engin blöð, heldur ákvað ég það að fylgjast bara með fréttum sjónvarpsins á meðan ég væri þarna.  Svo þegar ég kom til baka fór ég í gegnum blaðabunkann, það sem einna fyrst vakti athygli mína var grein, sem Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, ritaði í Fréttablaðið þann 22 ágúst.  Í þessari grein sinni gagnrýnir hann harðlega ummæli Grétars Mars Jónssonar, varðandi ummæli hans um sjólag og gerð ferjuhafnar í Bakkafjöru.  Elliði vill meina það að vegna þess að hann hafi farið nokkrar ferðir með Herjólfi og verið sjóveikur og svo ekki sé nú talað um að hann hefur líka verið með sjóveik börn, þá þekki hann engu minna til sjávar og aðstæðna til sjós en Grétar Mar.  Ég segi bara þvílíkur hroki er í manninum, heldur hann virkilega að hann eftir nokkrar ferðir með Herjólfi, að hann hafi sömu þekkingu á sjávaröflunum og maður sem hefur stundað veiðar sem skipstjóri í tugi ára? Annað í þessari grein hans er á svipuðum nótum og það dæmir sig nú eiginlega sjálft en ég ætla nú samt að eyða smá tíma í að ritskoða þessar rangfærslur hans og þá sérstaklega vil ég vita um hvaða opinberu heimildir hann er að vitna í því þegar maður vitnar í heimildir á ekki að vera að afbaka þær heldur eiga þær að vera óbreyttar því maður breytir þeim ekki eftir þörfum eins og Elliði Vignisson gerir og daðrar hann þar óspart við "skáldagyðjuna".

Ég veit ekki hvort Elliði Vignisson hefur nokkuð verið að hugsa þegar hann skrifaði umrædda grein eða hvort þekkingu hans er bara svona ábótavant en þá hefði nú verið skynsamlegra hjá honum að opinbera ekki á þennan hátt vanþekkingu sína heldur hefði hann átt að afla sér þessarar kunnáttu sem hann vantaði upp á.

Elliða skal bent á að Siglingastofnun hefur gert mörg og alvarleg mistök með því að fara ekki eftir því sem "heimamenn" og skipstjórar sem til þekktu hafa sagt þeim.  Þar má nefna sjóvarnargarð sem var byggður í Grímsey, heimamenn sögðu að þetta gæti ekki gengið en ekki var hlustað á þessa "heimsku og vitlausu" sjómenn sérfræðingar höfðu reiknað annað út, en viti menn í fyrsta brimi hvarf þessi sjóvarnargarður. Margt fleira væri hægt að týna til en þetta litla dæmi ætti að duga fyrir Elliða.  Svo ætti Elliði kannski að gera sér grein fyrir því að tölvulíkön Siglingastofnunar vanmeta oft á tíðum náttúruöflin.  Tölvuleikur er ekki raunveruleikinn

  1. Elliði segir að samkvæmt skýrslu Det Norske Veritas, sé áhættan af því að sigla milli Bakkafjöru og Eyja 1/6 minni en að sigla milli Þorlákshafnar og Eyja.  Ég þurfti að lesa þessa staðhæfingu hans tvisvar sinnum áður en ég trúði því að ég hefði lesið rétt svo fáránleg er þessi staðhæfing hans.  Vissulega er áætlaður siglingatími milli Bakkafjöru og Eyja aðeins 1/6 af siglingatímanum milli Þorlákshafnar og Eyja en það gerir ekki nokkur heilvita maður að taka áætlaðan siglingatíma og deila með styttingu hans og fá þar með út siglingalegt öryggi áætlaðrar leiðar.
  2. Ekki ætla ég mér að fara mikið út í kostnaðaráætlanir (Vegagerðin er sjálfsagt búin að skila kostnaðaráætlun, sem er álíka nákvæm og kostnaðaráætlunin fyrir Grímseyjarferjuna).  En það er allt í lagi að Elliði viti af því, vegna þess að þá eru bændur í Þykkvabænum búnir að reyna að græða upp landið þarna í mörg ár en  ekki tekist og svo skal hann hafa það til hugleiðingar að ef það væri hægt að gera þarna almennilega höfn þá væri það löngu búið.  Ef aðalhagsmunamál Elliða Vignissonar er að samgöngur til Eyja séu sem bestar ætti hann að kynna sér Bakkafjörudæmið betur í stað þess að níða skóinn af mönnum sem benda á staðreyndir.
  3. Ég er nokkuð sammála Elliða um það að ekki sé þörf á að lengja sjóvarnargarðana frá því sem áætlanir Siglingastofnunar ger ráð fyrir, einfaldlega vegna þess að það stendur til að reisa þessa sjóvarnargarða á sandi og sandurinn fyrir utan suðurströndina er á sífelldri hreyfingu og það er sama hvað þessir sjóvarnagarðar verða langir eða stuttir, þeir koma til með að hverfa í hafið, ég veit ekki um neina nýja tækni til þess að halda þeim á sínum stað.
  4. Maður reiknar ekki út þannig að algilt sé hvar "grunnbrot" hefjast svoleiðis fer eftir staðháttum á hverjum stað. Margir hafa fylgst með bátum í innsiglingunni til Grindavíkur í slæmu veðri og hugsa til þess með hryllingi, ef Bakkafjörudæmið verður að veruleika þá má reikna með líkum aðstæðum þar meðan sjóvarnargarðarnir verða til staðar svo þegar þeir fara versna aðstæður til muna að lokum fyllist Bakkafjöruhöfnin af sandi og þá þarf að hefja aftur ferjusiglingar milli Þorlákshafnar og Eyja. 

Elliði fullyrðir mikið í þessari grein sinni og staðhæfir mikið og við lestur þessarar greinar þá fær maður sterka tilfinningu fyrir því að Elliði sé mikill sérfræðingur í þessum málum og sé að kenna Grétari Mar af visku sinni.  Hann ætti að hafa það í huga að ábyrgð í þessu er mikil og við verðum að vanda okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Jóhann eg styð þessar kenningar þina af heilum hug,Sjómönnum sem þarna hafa farið um segja allir þetta sama/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 24.8.2007 kl. 21:11

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ekki ætla ég að tjá mig mikið um Bakkafjöruhöfn að svo stöddu.

Hitt finnst mér mikilvægt að þeir sem heimsækja Skagafjörð eyði ekki dýrmætum tíma í að fylgjast með fréttum og dægurþrasi.

Árni Gunnarsson, 24.8.2007 kl. 21:48

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Árni ég fór meira segja að Reykjum og þá auðvitað að Grettislaug og víðar fór ég.  Mér var sagt að verða mér úti um tvær bækur sem þú skrifaðir, þeim var hælt mikið.  Gamla sveitin þín er mikilfengleg og ekki er ég hissa þótt þér sé hlýtt til hennar.

Jóhann Elíasson, 24.8.2007 kl. 22:48

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Jóhann ég er alveg sammála þér, Siglingastofnun hefur gert nokkur hroðaleg mistök í tölvuleikjum sínum og módel smíðum sem eiga að líkja eftir aðstæðum á sumum stöðum. Mér er alveg sama hvaða della kemur út úr þessu Bakkafjörurugli hjá Siglingastofnun henni get ég ekki trúað nema þeir einfaldlega segja að þetta sé ekki hægt.

Hallgrímur Guðmundsson, 25.8.2007 kl. 00:29

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er ekki flóknara en það, að ætla sér að henda 5-6 þúsund milljónum í þetta rugl þarna á sandinum er algerlega ábyrðarlaust og sett fram af miklu kæruleysi fyrir hagsmunum okkar sameiginlega ríkiskassa.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.8.2007 kl. 01:47

6 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Takk fyrir þessa grein Jóhann. Ps, fæ kannski að stela úr henni við tækifæri. kv.

Georg Eiður Arnarson, 29.8.2007 kl. 21:04

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Georg og allir aðrir, ef það er eitthvað sem fólk getur notað, þá er það alveg sjálfsagt og það sama gildir um allt á blogginu mínu.

Jóhann Elíasson, 30.8.2007 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband