Óheppilega orðaðar auglýsingar.

  1. Sérstakur hádegisverðarmatseðill:  Kjúklingur  eða buff kr. 600, kalkúnn kr. 550, börn kr. 300.
  2. Til sölu:  Antikskrifborð, hentar vel dömum með þykkar fætur og stórar skúffur.
  3. Nú hefur þú tækifæri til að láta gata á þér eyrun og fá extra par með þér heim.
  4. Við eyðileggjum ekki fötin þín í óvönduðum vélum, við gerum það varanlega í höndunum.
  5. Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.
  6. Þetta hótel býður upp á bowlingsali, tennisvelli, þægileg rúm og aðra íþróttaaðstöðu.
  7. Brauðrist:  Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimirnir elska, brennir brauðið sjálfvirkt.
  8. Ísafjarðarkaupstaður:  Starfsmann vantar, kvenmann til starfa.
  9. Notaðir bílar:  Því að fara annað og láta svíkja sig?  Komdu til okkar.
  10. Vantar mann í dínamítsverksmiðju. Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.
  11. Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki reykir né drekkur..
  12. Ólæs?  Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita þér ókeypis aðstoð.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

.  Góðar þessar. En er sjálf að leita mér að starfi þar sem kýrnar bæði reykja og drekka.....

Sigríður Sigurðardóttir, 28.9.2007 kl. 10:20

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Þetta er frábært, gaman að þessu.

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 28.9.2007 kl. 21:18

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Góður Einn frá kvóta eigendum; Vantar þig kvóta, þú mátt veiða fyrir okkur :fyrir ekki neitt( í smáa letrinu ) kv.

Georg Eiður Arnarson, 29.9.2007 kl. 00:02

4 Smámynd: Guðrún Vala Elísdóttir

Vantar fólk til slátrunar strax... Afurðastöðin Búðardal (1999)

Guðrún Vala Elísdóttir, 30.9.2007 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband