Vantar meiri afþreyingu???????

Megum við Íslendingar nokkuð vera að því að glápa á sjónvarp. er ekki nóg afþreyingarefni í boði, væri ekki nær að fjölskyldurnar settust niður og reyndu eitthvað að tala saman og jafnvel að foreldrar færu að kynnast börnunum sínum?
mbl.is Ný sjónvarpsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Þýðir meira úrval sjálfkrafa meiri neyslu ?

Þetta er amk. alveg frí stöð.. 

Viðar Freyr Guðmundsson, 8.11.2007 kl. 17:53

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú hefur greinilega ekki náð  því sem var minn punktur með þessu og svo er annað, það er ekkert sem er "frítt" þessi stöð á væntanlega að rekast fyrir auglýsingafé, sem þíðir að þetta auglýsingafé leggst ofan á vöruverð.

Jóhann Elíasson, 8.11.2007 kl. 19:15

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við sátum við eldhúsborðið í gærkvöldi snemma, við afinn og stubburinn, drukkum ávaxtate með hunangi og spjölluðum.  Þá sagði stráksi, sem er tíu ára.  Þetta er voða notalegt, þetta ættum við að gera miklu oftar.  Og það var alveg satt.  Það var voða notalegt að sitja og spjalla öll þrjú svona undir svefninn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.11.2007 kl. 21:17

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já er það ekki einmitt þetta sem okkur vantar Ásthildur, tíma með börnum og fjölskyldu, áður en við vitum af er þetta of seint og við vitum aldrei af hverju við misstum.  Þú átt sannarlega gott að eiga þessa stund.

Jóhann Elíasson, 8.11.2007 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband