Þetta er "rétta" hugarfarið og hátíðarskapið í hæstu hæðum!

Semsagt að niðurstaðan er sú að Davíð og hinir "hryðjuverkamennirnir" í Seðlabankanum "hefðu" nú getað valdið enn meiri skaða á Íslensku efnahagslífi en þeir gerðu á árinu sem er að líða, en þeir voru ekki með nógu og áreiðanlegar upplýsingar í höndunum (sem betur fer).  En þessar upplýsingar komu frá bankanum sjálfum þannig að samkvæmt því þá eru Seðlabankamenn ekki starfi sínu vaxnir (það vissum við fyrir)en þarna hefur Davíð uppgötvað ný "sannindi" fyrir sig, sem hafa "rænt" hann svefni yfir hátíðirnar (guði sé lof).
mbl.is Seðlabankinn hefði getað gert betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hvernig væri að fjölga yfirmönnum Seðlabankans?

"Aðhaldssömustu fjárlög sem ég man eftir," sagði fjármálaráðherrann í morgunspjalli á RÚV.

Eyðslufjárlög, segir stjórnarandstaðan.

Verðbólgan alfarið ábyrgðarlausri eyðslu í stjórnsýslunni að kenna að mati Guðm. Ólafssonar hagfræðings.

Er kannski ekki ástæða til að hlusta mikið á fjármálaspekingana?

Árni Gunnarsson, 26.12.2007 kl. 18:33

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Hehe góður.

Öfugsnúið er þetta. En getum við fríað okkur almúgann, með alla okkar ofureyðslu og sóun?

Gleðileg jól

Einar Örn Einarsson, 26.12.2007 kl. 18:49

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gleðilega hátíð Árni, ef dýralæknirinn man ekki eftir aðhaldsamari fjárlögum er það bara eftir öðru sem hann hefur látið frá sér fara.  Því miður þá er ekkert tekið á aukningu í rekstri hins opinbera og ekkert gert til að "auka gæði opinberrar þjónustu" með öðrum orðum verð ég að taka undir með stjórnarandstöðunni að þarna séu bara eyðslufjárlög og verðbólgufjárlög.  Vissir fjármálaspekingar njóta mikillar virðingar og vel er mark takandi á því sem þeir segja, þeirra á meðal eru: Guðmundur Ólafsson, Þorvaldur Gylfason og fleiri mætti þar nefna en þessir menn hafa ekki orð á sér fyrir að vera "hlaupatíkur" ríkjandi stjórnvalda.

Gleðilega hátíð Einar og velkominn í land.  Vissulega er þetta alveg rétt hjá þér að við almúginn eigum þarna stóra sök, með því að fjármagna rándýra neyslu okkar með lánum (þetta heitir á mannmáli að eyða um efni fram). Það sem vantar hjá okkur Íslendingum, í okkar hagkerfi, er "faktor" sem heitir SPARNAÐURþarna er ég ekki að tala um þennan löglega þjófnað sem er kallaður Lífeyrissparnaður heldur er ég að tala um "alvöru sparnað" en gallinn er bara sá að það vantar algjörlega allan "hvata" frá stjórnvöldum til almennings til þess að spara og á þetta mestan þátt í þessari miklu neyslu okkar Íslendinga.  Ég kalla eftir ábyrgri fjármálastjórnun 

Jóhann Elíasson, 26.12.2007 kl. 20:07

4 Smámynd: Halla Rut

Mikið rétt. Þetta er eins og að skera gat á botn eigin skútu.

Halla Rut , 26.12.2007 kl. 22:23

5 Smámynd: Halla Rut

En hver græðir svo á þessu? Af hverju ræðir fólk það ekki frekar?

Halla Rut , 26.12.2007 kl. 22:23

6 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Halla Rut lýðurinn er svo upptekinn við lífsgæðakapphlaupið að fólk gleymir sér, Góð grein hjá þér Jóhann. Kær kveðja úr Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 26.12.2007 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband