Föstudagsgrín

Fjórir félagar, giftir og ráðsettir, voru búnir að ákveða að fara á  gæsaveiðar. Á föstudagskvöldið ætluðu þeir að hittast við Select  Vesturlandsveg og leggja saman af stað og það yrði að vera ekki  seinna en 23.00.

 

 Sá fyrsti mætir og sér að hann er einn mættur og klukkan rétt að slá  ellefu.

 

 Stuttu síðar kemur annar og þá er klukkan orðin ellefu. "Ég ætlaði  aldrei að komast út maður,

 

konan var sko ekki sátt við þetta svo ég  varð að lofa því að fara með henni á jólahlaðborð í Perlunni."

 

 Sá þriðji er rétt að renna í hlað og segir farir sínar ekki sléttar.

 "Ég átti nú bara ekki að fá að koma með ykkur strákar því konan var  alveg óð að ég skuli taka jeppann. Ég varð að lofa henni að skipta út

  

fólksbílnum og kaupa jeppling handa henni."

 

 Sá fjórði kemur þegar klukkan er rétt um hálf tólf. "Æ,æ, æ... ég er  svo aldeilis a á þessum konum. Ég varð að lofa helgarferð til  Glasgow fyrir jólin til að komast í þessa ferð  strákar....helgarferð...hvorki meira né minna."

  

Þá segir sá sem fyrstur mætti. " Strákar, það er ömurlegt að heyra í  ykkur vælið. Ég var mættur hér tímanlega og það var ekkert mál með  mína konu."

 

 "Nú...hvað er þetta, rosalega ertu heppinn," segja þeir þrír í kór.

 

 "Nei, strákar þetta er ekki heppni!"

  

"Nú hvað þá?" spyrja strákarnir vin sinn.

 

 "Þegar hún var að fara sofa mætti ég nakinn í svefnherbergið og sagði  við hana, Do-do eða ég að skjóta gæs?"

 

 "Og hvað sagði hún?"

  "Hún sagði bara, klæddu þig vel og farðu varlega ástin mín!"

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Góður Jóhann.

Helgi Þór Gunnarsson, 29.12.2007 kl. 00:15

2 Smámynd: gudni.is

Góður..!! Föstudagarnir klikka aldrei hjá þér Jóhann..!! Takk fyrir þetta.

gudni.is, 29.12.2007 kl. 01:57

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Georg Eiður Arnarson, 29.12.2007 kl. 15:10

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Góður...

Hallgrímur Guðmundsson, 31.12.2007 kl. 00:27

5 Smámynd: gudni.is

Sæll Jóhann.  Ég þakka ánægjulega bloggvináttu á liðnu ári. Ég vil óska þér og fjölskyldu þinni farsældar á komandi ári 2008.

Kveðja // Guðni

gudni.is, 31.12.2007 kl. 14:12

6 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Gleðilegt ár

Jón Aðalsteinn Jónsson, 31.12.2007 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband