"Barnið vex en brókin ekki"

Þetta staðfestir stýrivaxtahækkun Seðlabankans í gær, svo ekki verður um villst.  Fyrir nokkuð mörgum árum hefði stýrivaxtahækkun haft þau áhrif á gengi krónunnar, sem til var ætlast en ekki núna þegar krónan er komin út á alþjóðlegan fjármálamarkað og mun fleiri þættir en vaxtastig heima fyrir hafa áhrif á gengi hennar.  En fyrst af öllu skulum við skoða "hlutverk" stýrivaxta.  Það sem stýrivextir gera er að ákvarða þá vexti sem bankar og lánastofnanir greiða af þeim lánum sem viðkomandi taka hjá Seðlabanka íslands.  Samkvæmt þessu hafa stýrivextirnir áhrif á aðgang viðskiptabanka og fjármálastofnana að lánsfjármagni og kostnað þeirra við að verða sér úti um þetta lánsfjármagn - síðan endurlána þessar sömu lánastofnanir þetta fjármagn til okkar almenning í formi yfirdráttarlána og "verðtryggðra lána" á vöxtum sem eru fyrir löngu komnir út yfir allt velsæmi, þannig að almenningur á að greiða fórnarkostnaðinn af því að við Íslendingar eigum að halda "dauðahaldi" í krónuna til þess að Davíð og hinir "steingervingarnir" í Seðlabankanum haldi vinnunni og geti haldið áfram að halda í áratuga gamlar hagfræðikenningar og nota Íslenska hagkerfið sem "tilraunadýr".
mbl.is Áhyggjur af Íslandi aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ríkisstjórn sem situr með hendur í skauti, eða það sem verra er flengist um heiminn eyðandi heilmiklum peningum í sjálfa sig á að segja af sér og það núna.  Þau eru ekki í neinum takti við raunveruleikann.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.3.2008 kl. 11:15

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þú hefur lög að mæla þarna Jóhann ,þetta er ekki nokkurt vit i þessu/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 26.3.2008 kl. 17:26

3 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Jóhann er þetta ekki bara spurnig um framboð og eftirspurn eins og þú kenndir okkur markaðsfræðini í Stýrimannaskólanum.

Bestu kveðjur Sigurbrandur Jakobsson

Sigurbrandur Jakobsson, 26.3.2008 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband