Föstudagsgrín

Björn bóndi varð fyrir því óláni að hlaða, full af heyi, brann til kaldra kola.  Björn taldi sig “vel” tryggðan en hann var með hlöðuna tryggða upp á 25 milljónir.  Hann hringdi í tryggingafulltrúann sinn og sagði honum hvað gerst hafði og tjáði honum jafnframt að hann ætlaði að leysa út tryggingafjárhæðina 25 milljónir og hefja byggingu nýrrar hlöðu.“Þannig virka tryggingarnar ekki” sagði þá tryggingafulltrúinn.Björn bóndi var nú ekki alveg sáttur við þetta og sagði:”En ég var með hlöðuna tryggða fyrir 25 milljónir!”Þá svaraði tryggingafulltrúinn: “Jú, það er alveg rétt, en það var hámarkstryggingin, það verður að koma maður frá okkur og meta það hvers virði hlaðan í rauninni var og svo verða greiddar bætur samkvæmt því mati.”Það varð löng þögn í símanum áður en Björn bóndi sagði: “Nú er það svoleiðis sem tryggingarnar virka? Þá ætla ég að segja líftryggingu konunnar upp strax”

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 27.6.2008 kl. 13:31

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

 Góður þessi /Kveðja og hafðu góða helgi/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 27.6.2008 kl. 17:17

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Georg Eiður Arnarson, 27.6.2008 kl. 17:25

4 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Já já

Sigurbrandur Jakobsson, 27.6.2008 kl. 18:32

5 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, þessi er góður, en eru tryggingarfélög ekki svona í raun  ég er ekki mikill aðdáandi þessara fyrirtækja.

Bíð eftir næsta föstudagsgríni  kær kveðja og Góða helgi

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 27.6.2008 kl. 23:13

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að þetta sé alveg rétt hjá þér Sigmar, kannski er þetta bara sönn saga - enginn brandari.

Jóhann Elíasson, 27.6.2008 kl. 23:49

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Alltaf góður Jóhann

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 28.6.2008 kl. 02:51

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 28.6.2008 kl. 11:58

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.6.2008 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband