Nú er gaman að lesa Norsku blöðin, þar sem fjallað er um LEIKINN.

Þeir hefðu átt að vera aðeins "kokhraustari" fyrir leikinn og tala aðeins meira um að þarna væru nú auðveld stig fyrir Norðmenn.  Í rauninni segja þeir hjá Aftenposten að Norðmenn megi nú bara þakka fyrir að hafa ekki tapað þessum leik, því markmaðurinn hafi ekki átt séns í skotið frá Veigari Páli Gunnarssyni, sem hafnaði í stönginni.  Strax eru orðnar háværar raddir í Noregi, þess efnis að þjálfari Norska landsliðsins segi af sér eða verði látinn fara.
mbl.is Frábær úrslit í Osló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég heyrði strax eftir leikinn bæði í vinnuveitanda mínum og fleirum norður í Tromsö og þeir hringdu allir til að hrósa okkur og óska mér til hamingju svo það er nú ekki almennt í Norge að þeir séu ekki sáttir við úrslitin? Þeireru dálitlir Víkingar í sér þarna Norður frá.....?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 6.9.2008 kl. 22:38

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já, þeir eru alt öðruvísi norðurfrá og í rauninni eru þeir mun líkari okkur í hugsunarhætti í norður Noregi en við gerum okkur grein fyrir.  Ég hafði gaman af því að maður komst næstum því upp með það að tala Íslensku við þá sem voru norðan að, þeir skildu mann að mestu leiti, þú ættir að prófa þetta.

Jóhann Elíasson, 7.9.2008 kl. 07:05

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já það er rétt, ég hef líka voða gaman af að segjast aðspurður tala ágæta norsku, vandinn sé að þeir séu búnir að blanda sína með svo miklu slangri úr dönsku og öllum fjandanum að maður skilji þá varla...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 7.9.2008 kl. 15:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband