Hversu lengi á að berja hausnum í steininn?????

Vill virkilega enginn ráðamaður í landinu sjá það að þessi mikla aukning á ýsuafla er aðeins fenginn með GRÍÐARLEGRI aukningu á BROTTKASTI af þorski og þar með MIKLU verri umgengni umfiskimið okkar.  Ég var áður búinn að blogga um brottkastið, sjá hér og þessi frétt staðfestir aðeins það sem ég skrifaði um þar.
mbl.is Mikill ýsuafli á síðasta fiskveiðiári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Atli Hermannsson.

Ég var um búinn að segja frá þessu á síðunni hjá Hafsteini en það skemmir ekki að endurtaka það hér...

En fyrir nokkrum vikum var ég í heimsókn í sjávarplássi fyrir norðan og var boðið  á sjóstöng sem heppnaðist virkilega vel. Öngullinn vart meira en 10-15  sekúndur í botni áður en bitið var á. Þannig stóð  á endum þar til við félagarnir nenntum þessu ekki lengur og fórum í land sem var ekki nema 10 mínútna sigling. Það sem við fengum var allt  4-5 kílóa þorskur og í góðum holdum. En þess má geta að nokkrir litlir línubátar eru gerðir út frá staðnum og höfðu dagana á undan verið að fiska þokkalega, eða 100-150 kíló á bala. En látum það nú vera...því það sem passaði ekki var að þeir höfðu eingöngu verið að landa ýsu.

P.s. Kannski eru þeir með króka sem á stendur (only for haddock).

Atli Hermannsson., 13.9.2008 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband