Heima er best??????

Hvers vegna í ósköpunum var maðurinn að flýja frá Íran og það til Íslands?  Það er nokkuð víst að ef hann hefði mótmælt fyrir utan lögreglustöðina í Teheran, hefði ekki verið farið með hann heim , af lögreglunni, heldur beint á fimm stjörnu hótel þar sem hann hefði fengið tækifæri til hvíldar og hann hefði verið skoðaður af lækni og þar hefði aldrei verið svona skítaveður eins og hérna.  Eða getur verið að hann hafi ekki upplifað neitt sem heitir tjáningarfrelsi áður en hann kom hingað?
mbl.is Hælisleitandanum ekið heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Verðum við ekki að sýna öllum sömu virðingu ? En satt er það, ég held að honum hefði örugglega ekki verið ekið heim í Therean, honum hefði verið ekið á haugana... í poka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.9.2008 kl. 13:03

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hvað, er enginn Föstudags...?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 19.9.2008 kl. 20:51

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Hafsteinn, vegna flutninganna hef ég ekki verið í  netsambandi en það er spurning hvort allt verði ekki orðið klárt fyrir næsta föstudag.  Ég biðst afsökunar á þessu kæruleysi.

Jóhann Elíasson, 20.9.2008 kl. 08:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband