Nýtt skip, takk fyrir!!!!

Það er ekki nóg að láta "bara" tvö skip liggja bundin við bryggju fram að næstu heræfingu, sem Ísland tekur þátt í, því þegar svoleiðis er í gangi þá virðast vera til nógir peningar.  Það er verið að "henda" fleiri hundruðum milljóna í kosningabaráttu fyrir sæti í Öryggisráðinu á sama tíma eru  varðskipin bundin við bryggju því við höfum ekki EFNI á að kaupa olíu á þau.  Það er eitthvað mikið að í forgangsröðuninni hjá ráðamönnum.


mbl.is Skipum Landhelgisgæslu lagt til að spara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Gott innlegg hjá þér Jóhann.  Þetta er eitthvað brengluð forgangsröðun.

Einar Vignir Einarsson, 20.9.2008 kl. 10:17

2 identicon

Rétt að forgangsröðin er stórlega brengluð.  Sérstaklega þykir mér þetta Öryggisráðsmál alveg forkastanlegt.  EN, það þýðir lítið að fá nýtt skip og nýjar flugvélar, ef ekki eru til peningar að reka flotann.  Vissulega þörf á endurnýjun flotans, en þá þarf að forgangsraða á annan hátt. 

Eggert Stefánsson (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 11:17

3 Smámynd: Davíð Þorvaldur Magnússon

en ef það kæmi ísbjörn þá væri ekkert vandamál að henda 50 milljónum í það að reyna að bjarga hálfdauðum ísbirni

Davíð Þorvaldur Magnússon, 20.9.2008 kl. 11:17

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér þetta er algjörlega með ólíkindum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.9.2008 kl. 15:07

5 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, hvað gera þeir við 70 miljarðana sem urðu í hagnað hjá ríkinu. kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 20.9.2008 kl. 22:27

6 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Sæll Jóhann.

Ætla ekkert að tjá mig um þetta, því eins og svo vinsælt er að segja, þá er þetta í farvegi.

Við erum að landa í gamla heimabænum þínum og hérna er sól og blíða.

Bestu kveðjur frá Þórshöfn.

Sigurbrandur Jakobsson, 21.9.2008 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband