Maður sem ekki gerir neitt getur ekki verið ábyrgur fyrir neinu?????

Eða hvað? Er hann ekki ábyrgur fyrir aðgerðarleysinu?  Hann hefur undirstrikað það að hann er með öllu óhæfur til þeirra verka sem hann hefur tekið að sér.  Að mínum dómi eru kosningar á þessari stundu alveg út úr kortinu og ég held að þær myndu bara gera illt verra ef eitthvað væri.  En að þessi vanhæfa ríkisstjórn okkar fái að taka pokann sinn er alveg sjálfsögð krafa og skipaðir verði HÆFIRmenn/konur til þess að rétta af kúrsinn og sigla þjóðarskútunni í var, en ekki í strand eins og núverandi ríkisstjórn virðist vera að gera með dyggri aðstoð Seðlabankans.
mbl.is Geir: Tel mig ekki persónulega ábyrgan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Þetta er alveg laukrétt hjá þér. Á meðan maður gerir ekki neitt, þá gerist heldur ekki neitt! Við skulum bara vona að Geir fari ekki að gera eitthvað, því að það er aldrei að vita hvað þá myndi gerast!

Ég man eftir því að einu sinni gerði ég í brók ... og þurfti þá að þrífa það sjálfur, ég gat því miður ekki klínt því á neinn annan.

Kjartan Pétur Sigurðsson, 29.11.2008 kl. 16:57

2 Smámynd: nicejerk

Það eru jafn mikilvægir þeir hlutir sem maður framkvæmir í lífinu og þeir sem maður ekki framkvæmir. Maður myndi áætla að ábyrgðaraðilar í ríkisstjórn kynnu eitthvað fyrir sér og legðu lög og reglur í landinu. En því er ekki að fagna. Lögleysan og ábyrgðarleysi er númer eitt, tvö og þrjú. Geir er þessa dagana að afskrifa sjálfan sig með sínum tilkomumiklum "do töktum".

Geir fór í "sannleiksför" um heiminn í sumar og tilkynnti að Íslenskir bankar væru a.m.k. alveg jafnöruggir og keppinautarnir. Því heldur hann fram þrátt fyrir "viðvaranir" do í Seðlabankanum. Allt saman algerlega marklaust hjal.

Spillingin og óþverrinn á sér engin takmörk, en Geir og Dabbi, með dyggri aðstoð vanhæfra "ráðherra", troða yfir landsmenn á haugspilltum og skítugum skóm.

nicejerk, 29.11.2008 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband