Er verið að ganga frá formúlunni?????

Það reynir vonandi ekki nokkur maður að bera á móti því að Alonso er MJÖG góður ökumaður en ég er þess fullviss að nú sé hann hjá liði (Renault) sem passar honum best og samstarf hans og Renault hefur verið með miklum ágætum, það sannast af árangri liðsins eftir að hann kom þangað aftur.  Eftir hasarinn hjá McLaren reiknaði ég með því að Alonso myndi láta lítið fara fyrir sér í einhvern tíma ég held enn í þá von og á meðan ekki kemur staðfesting á þessari frétt lít ég á hana sem hverja aðra kjaftasögu.
mbl.is Alonso sagður hafa samið á laun við Ferrari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst Ásgeirsson

Sæll Jóhann

Hélt þið vilduð hafa þá bestu hjá Ferrari. Montezemolo segir hann fæddan foringja. Liðið virðist vanta slíkan eftir brottför Schumacher. Räikkönen virðist eiginlega ekki nenna vinnunni, það hefur Massa meir að segja gefið í skyn; sagt hann flýta sér alltaf burt úr bílskúrnum af æfingum og mótum. Annars er ég ekki viss um að það fari vel saman að hafa tvo rómanska ökumenn í sama liði, þ.e. Massa og Alonso.

Svo verður fróðlegt í framtíðinni að sjá hvort einhver fótur sé fyrir þessari kjaftasögu.

Ágúst Ásgeirsson, 30.12.2008 kl. 13:54

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Blessaður Ágúst, auðvitað viljum við hafa góða menn hjá Ferrari en ég er á sama máli og þú ég er ekki viss um að það væri góð blanda að hafa Massa og Alonso saman.  Ég held að tveir toppökumenn í sama liði sé ekki uppskriftin að toppárangri fyrir liðið það verði einfaldlega "of mikil" keppni milli ökumannanna, sem geti leitt til "óhagstæðrar" niðurstöðu fyrir liðið, sbr keppnin milli Alonso og Hamilton þegar báðir voru hjá McLaren.

Ég óska þér gleðilegs árs og þakka ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða og ég óska þér bjartrar framtíðar.

Jóhann Elíasson, 30.12.2008 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband