Ekki er SANNLEIKURINN þessum mönnum heilagur frekar en endranær!!!!!!

Að lesa ummæli Paul Watsons, er eins og að lesa eitthvað rugl frá litlum krakka sem er búið að taka leikfang af.  Það væri ekki ástæða til að vera að fást um þessi ummæli hans ef hann segði sannleikann en hann kýs að bera fyrir sig LYGAR, eins og "náttúruverndarsinnar" hafa svo oft gert og því miður með ágætis árangri fyrir "málstað" þeirra.  Að reyna að halda því fram að langreyður sé í útrýmingarhættuer eins langt frá sannleikanum og hægt er þvert á móti er svo mikið af þessari tegund að til vandræða horfir (sjá niðurstöðurnar úr síðustu hvalatalningu).  Það er líka gaman að sjá áhersluna, sem Watson leggur á í "baráttu" sinni gegn hvalveiðum, umhverfisverndarsinninn mælist til þess að stjörnur og viðskiptajöfrar hætti að koma við á Íslandi til að taka eldsneyti á einkaþoturnar sínar.  Þvílíkur rugludallur!!!
mbl.is Hvetja til viðskiptaþvingana vegna hvalveiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Logason

Fyrsta lagi er ósanngjarnt að setja alla náttúruverndarsinna undir einn hatt og kalla þá lygara. Svo er ekki.

Paul veit hvar hann nær bæði í peninga og athygli og því siglir hann á þau mið.

Þetta útspil sjávarútvegsráðherra var mjög heimskulegt í ljósi þess áhuga að taka upp hvaðveiðar.

Vel má vera (hef ekki skoðað tölur almennilega) að hægt sé að nýta stofninn en það hefur sést á síðustu mánuðum að við þurfum að eiga við heimspressuna sem (líkt og ssú íslenska) ekki hefur alltaf það sem sannara reynist til birtingar.

Bandaríkjamenn gera engan greinarmun td á hrefnu og hval. Í þeirra huga er þetta einn og sami hluturinn og fá einir hafa til þes nennu að verða sér út um upplýsingar.

Því hefði þurft að stíga varlega til jarðar í þessum efnum. Við getum bara vonað að þetta verði okkur ekki dýrkeypt. Að sjávarútvegsráðherra hafi þarna kastað fyrir róða hagsmunum heildarinnar fyrir hagsmuni vina sinna. 

Sjávarútvegurinn má ekki við neinu áfalli núna með allar frystigeymslur fullar og þau 6000 störf í ferðaþjónustu mega ekki tapast.

Kristján Logason, 31.1.2009 kl. 12:28

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki kalla ég ALLA náttúruverndarsinna lygara en hjá SUMUM er sannleikurinn ekkert heilagur og hefur ekki verið í gegnum árin.  Ég vann, ásamt fleirum rannsóknarverkefni um það hvort hvalveiðar hafi áhrif á hvalaskoðun, niðurstaðan var að svo væri ekki og árið 2003 lét ferðamálaráð gera skýrslu um það hvort hvalveiðar SKÖÐUÐU ferðaþjónustuna niðurstaðan var sú að svo væri EKKI.  Þessi niðurstaða var hvalaskoðunarmönnum ekki að skapi og sögðu þeir þá að ekkert væri að marka þessa skýrslu en samt létu þeir ekki gera aðra könnun.

Jóhann Elíasson, 31.1.2009 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband