Á ekki að koma neinum á óvart!!!!!!

Flestir sem eitthvað hugsa um samspil náttúrunnar eru síður en svo hissa á þessari niðurstöðu það hefði komið á óvart ef meirihluti hefði verið á móti hvalveiðum.  En VG með Steingrím J í fararbroddi, kjósa að berja hausnum í steininn og láta einhverja háværa minnihlutahópa hafa áhrif á ákvarðanir sínar í þeirri von að geta "halað" inn örlítið fleiri atkvæði í komandi kosningum.


mbl.is Meirihluti fylgjandi hvalveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Þetta er vanhugsuð þjóðremba sem þessar niðurstöður sýna fyrst og fremst. Hugsanlegt er að skoða hvalveiðar ef; a) Staðfest er að hægt sé að selja afurðirnar. Það er ekki nóg að Kristján Loftsson segi að hægt sé að selja b) Að eingöngu séu veiddar tegundir sem að alþjóðasamfélagið er sannfært um að séu ekki í útrýmingarhættu c) Veiðiheimildirnar verði settar á uppboð sem tryggi mannréttindi, það er jafnan rétt til veiða úr sameiginlegri auðlynd og opnar á möguleika verndunarsinna að kaupa veiðiheimildir.

Þetta er ekki einkamál eins hvalfangara, ráðherra eða flokks.

http://www.gbo.blog.is/blog/gbo/entry/792498/

Gunnlaugur B Ólafsson, 3.2.2009 kl. 15:55

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Gunnlaugur: Það ER búið að selja kjötið. Í hvaða landi býrð þú eiginlega?

Einar Örn Einarsson, 3.2.2009 kl. 16:07

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gunnlaugur ekki reyna að segja mér neitt um þessi mál.  Samkvæmt skoðanakönnunum er andstaða við hvalveiðar aðallega bundin við Bretland, Þýskaland, Ástralíu og Nýja Sjáland, í öðrum löndum er frekar meirihluti fyrir hvalveiðum þetta bendir til þess að fólk sé að gera sér grein fyrir að þarna er mest um ímyndaðan "populisma" hjá örfáum öfgasamtökum að ræða.

Jóhann Elíasson, 3.2.2009 kl. 16:08

4 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Styrkur PCB og fleiri þrávirkra mengandi efna mælist sífellt meiri í hvalkjöti þannig að neytendur hafa ekki áhuga á slíkum matvælum. Veiðum er því að mestu sjálfhætt.

Gunnlaugur B Ólafsson, 3.2.2009 kl. 17:02

5 identicon

Halló Gunnlaugur. PCB efni finnast í öllum sjávarlífverum og eru þau að mestu tilkomin af náttúrulegum aðstæðum. Ef styrkur PCB efna er að mælast meiri í Hvalkjöti, þá er það líka að mælast í auknu mæli í öðrum sjávarlífverum og ætti þá öll veiði og nýting á sjávarlífverum að vera sjálfhætt.

PCB efni eru mest í stórum sjávarlífverum efst í fæðukeðjunni. Þar er aðallega átt við tannhvali er éta önnur dýr sem hafa étið önnur dýr o.s.f.v. Skíðishvalir s.s. langreyður og hrefna  (éta) hinsvegar svif sem ekki geta talist ofarlega í fæðukeðjunni.

Vegna mikilla strauma er ekki svo mikið af PCB efnum í lífverum hér við land. Rannsóknir sýna að Styrkur PCB efna í hvölum hér við land er vel undir lámarki og ætti því að vera ærin ástæða til að selja kjötið af hvalnum okkar til landa þar sem styrkur PCB efna í hvalkjöti er meiri eins og t.d. Japan.

Þórir (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 18:12

6 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæll. Það var einmitt ákvörðun Alþingis með atkvæðagreiðslu þar um fyrir nokkrum árum síðan að sjávarútvegsráðherra ákvað að leyfa hvalveiðar í atvinnuskyni á ný fyrir þremur árum og svo aftur nú. Vilji Alþingis er að leyfa skuli hvalveiðar í atvinnuskyni. Það hefur ekki verið afturkallað. Sjálfstæðisflokkur, framsókn og hluti Samfylkingar mun greiða því atkvæði ef út í það færi.

Sjávarútvegsráðherra er með þessu að fara að yfirlýstum vilja ALþingis, enda Alþingi sem ræður þessu.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 4.2.2009 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband