Snautlegur ferill vonandi á enda!!!!!!!!

Hún kom vissulega vel fyrir sem borgarstjóri en fremur var hún nú lágreist brottför hennar úr borgarpólitíkinni og ekki reið hún feitum hesti á þinginu.  Svo komst hún í ríkisstjórn og í byrjun fór mest af tímanum í að ÉTA ofan í sig flest sem hún hafði sagt og lofað í kosningabaráttunni, svo kom þetta bankahrun og aðgerðarleysi hennar og Geirs þekkja allir, þó vissulega megi ætla að erfið veikindi hennar eigi þar stóran hlut að máli en líka má segja það að hún ÁTTI að fara í veikindaleyfi, það er enginn ómissandi (t.d eru kirkjugarðar landsins fullir af fólki sem hélt að það væri ómissandi en samt gengur allt ennþá).  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gerði Samfylkingunni og þjóðinni greiða með því að tilkynna það að hún væri hætt þátttöku í stjórnmálum og ætlaði að ein beita sér að því að hugsa um heilsufar sitt.
mbl.is Ingibjörg Sólrún kynnir áform sín síðar í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Viktor Guðmundsson

Heill og Saell Johann.

eg er ekki mikid med yfirlysingar a netinu en mer finnst thu fara of mikid med rangar og og osanngjarnar  yfirlysingar til handa henni Ingibjorgu.

thu tharft ekki annad en ad skoda arin adur en Ingibjorg tok vid borginni til ad sja hversu slaemu bui hun tok vid af sjalfstaedismonnum sem hofdu skuldsett Borgina hvilikt med skolpdaelu framkvamedum og sorpu aefingum adeins fa atridi nefnd.

sama gerdist er hun for i stjorn med sjalfstaedismonnum hun fekk nanast throtabu til ad vinna med en thad kom bara ekki ljos til almennigs fyrr en langt var lidid a fyrsta ar samfylkingarinnr i stjorn.,

med thinni hundalogik og hordu yfirlysingum um gerdir Ingibjargar langar mig um thig bara ad segja ef thu vaerir styrimadur a minu skipi myndi eg sennileg bara labba i land med spottunum i naestu hofn.

kvedja Stefan V Gudmundsson

Stefán Viktor Guðmundsson, 26.2.2009 kl. 03:50

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Stefán, allt sem ég skrifa hér er satt það eina sem getur verið er að stuðningsmönnum Ingibjargar Sólrúnar finnist óþægilegt að sjá að ferill hennar er ekki eins "glæsilegur" og þeir höfðu ímyndað sér.  Það er mjög vinsælt hjá Samfylkingarmönnum að tala um hve slæmu "búi" Ingibjörg hafi tekið við í Reykjavík en það réttlætir ekki dugleysi hennar þegar hún var hjá borginni og ekki tók nú betra við þegar hún fór í landsmálin.  Ef þú skoðaðir feril hennar með BÆÐI augun opin sæir þú kannski að hún er einhver OFMETNASTI  stjórnmálamaður landsins.

Jóhann Elíasson, 26.2.2009 kl. 09:54

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hún olli mér vonbrigðum, því ég hélt að þar færi skelegg kona, en mér sýnist að hún hafi misst sig í eigin hyglu, eins og fleigðarflanið með Öryggisráðið sýndi, og allt sem hún lét yfir sig ganga í samstarfinu við Sjálfstæðismenn.  Nei ég held að hún ætti að hætta.  Enda er heilsan það dýrmætasta sem við eigum.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2009 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband