Allt útlit fyrir að Ísland geti EKKI sinnt erlendri eftirspurn!!!!!

Þá er það "deiga vopn" farið úr höndum hvalverndarsinna, þeir hafa örugglega einhverjar LYGAR til að nota í staðinn.  Annars eru þetta nokkuð merkilegar fréttir mið við það að hvalverndunarsinnar héldu því fram að enginn vildi borða þetta kjöt.
mbl.is Japanar leyfa hrefnuinnflutning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Það er nú óvíst hvort að við getum flutt út hrefnukjöt. miðað við að kjötið er alltaf uppselt hér innanlands þá veitir ekki af þessum fjölda til að annast innanlands eftirspurn.

Fannar frá Rifi, 28.2.2009 kl. 16:24

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er kannski einhver smávon.

Jóhann Elíasson, 28.2.2009 kl. 16:31

3 Smámynd: Ólafur Gunnarsson

Þegar markaðurinn fyrir hrefnukjöt hefur opnast til Japan þá er ég hræddur um að við íslendingar fáum ekki að njóta kjötsins, vegna þess einfaldlega að það fæst væntanlega mikið hærra verð fyrir kjötið í Japan. Þannig var það þegar íslendiingar fluttu það út áður en hvalveiðar voru bannaðar

Ólafur Gunnarsson, 28.2.2009 kl. 23:29

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Með þetta efnahagsástand höfum við ekki efni á að borða kjötið sjálf.  Japanir borga GOTT verð fyrir bestu bitana þetta verður eins og hérna áður þegar við seldum þorskinn á erlenda markaði en borðuðum ýsuna því hún fór ekki í útflutning eins verður það með "lakara" kjötið af hrefnunni, við borðum það sjálf því Japanir vilja það ekki.

Jóhann Elíasson, 28.2.2009 kl. 23:38

5 Smámynd: Fannar frá Rifi

nú ekki nema að við aukum veiðarnar á Hrefnu. miðað við núverandi stofnstærð, þá ættu tvöföldun á núverandi afla ekki að segja neitt. 3X eða jafnvel 5X myndi ekkert segja.

100 til 200 hrefnur á innanlandsmarkað og 1000 hrefnur til Japans. 

10 til 20 Langreyðar á Innanlandsmarkað og 100 til 200 til Japans. 

Fannar frá Rifi, 1.3.2009 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband