Ekki er allt gull sem glóir...........

Alltaf tala hvalaskoðunarmenn um hvað þetta sé nú UMHVERFISVÆNN iðnaður og það sé verið að "endurnýta" hvalina með því að sýna sama dýrið aftur og aftur og allskonar bull og þvælu hafa þeir látið út úr sér til þessa og ekki eru þeir hættir því.  Svo aðeins til að sætta sjónarmið hvalaskoðunarmanna, lét Steingrímur J HAFRÓ skilgreina sérstök svæði sem hvalaskoðunarsvæði en það hlaut ekki náð fyrir augum hvalaskoðunarmanna, þó þeir hafi í einhver ár talað um að veiðar og sýningar  hval gætu ekki farið saman á sama svæði, þessum rökum er ég alveg sammála og því get ég ekki með nokkru móti skilið þvergirðingsháttinn í hvalaskoðunarmönnum að hafna þessu alfarið.  Það má kannski minna á það að hrefnuveiðar hófust hér á landi 1913, sem atvinnugrein, en hvalaskoðun hófst héðan 1992  og þá í mjög litlum mæli og því er hægt að segja að ENGIN svokölluð hvalaskoðunarsvæði séu til í það minnsta rekur mig ekki minni til þess að hafa neins staðar á sjókortum séð nein hvalaskoðunarsvæði merkt inn. Þessir tveir atvinnuvegir, hvalveiðar og hvalaskoðanir, geta vel farið saman en til þess þarf skipulag og fyrst og fremst sáttavilja af beggja hálfu.
mbl.is Hafna tillögum um hvalaskoðunarsvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband