Gagnrýni á ákvarðanir á síðustu stundu!!!!????!!!!!

Það virðist alls ekki vera sama HVER bindur hendur NÆSTA ráðherra.
mbl.is Strandveiðar í stað byggðakvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Björnsson

Góð spurning. Hver er að binda næsta ráðherra? Er eitthvað í þessari frétt sem bendir til þess?

Skallagrímur kemur með tvennt þarna; a) að fresta úthlutun byggðakvóta (næsti ráðherra fær það hlutverk hlýtur að vera) og b) kemur með tillögur að strandveiðum, þ.e. lögum þar af lútandi, sem verður kansku, mögulega, hugsanlega samþykkt á næsta þingi.

Hef alls ekki myndað mér skoðun um hvort þessar hugmyndir séu góðar eða slæmar, né hverjir fái mitt atkvæði þann 25. Á bara erfitt með að sjá að verið sé að binda næsta ráðherra í þessu tilfelli

Magnús Björnsson, 16.4.2009 kl. 15:21

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er ekki 7.800 tonna kvótaúthlutun neitt bindandi fyrir næsta ráðherra?  Svona "plástrar" hist og her á slæmt kerfi geta aldrei orðið til góðs það sem þarf er algjör uppstokkun á liðónýtu kerfi.

Jóhann Elíasson, 16.4.2009 kl. 15:43

3 Smámynd: Magnús Björnsson

Jú, ef þetta væri fast í hendi. Ef þú lest fréttina aðeins betur sérðu þetta:

"Steingrímur gerir ráð fyrir, að fram komi frumvarp til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða þegar að afloknum kosningum til að koma á strandveiðum til reynslu, strax í sumar, að því gefnu að  frumvarpið verði að lögum. Þar af leiðandi er gert ráð fyrir að byggðakvóta verði ekki úthlutað á yfirstandandi fiskveiðiári."

Þannig að þetta þarf fyrst að verða að lögum, sem gerist nú varla fyrir kosningar. En enn og aftur, gott eða slæmt ef af verður hef ég ekki hugmynd um.

Magnús Björnsson, 16.4.2009 kl. 16:00

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þú þarft nú ekki að kenna mér að lesa.  Punkturinn er sá að í augum Steingríms er ekki sama hver bindur hendur þeirra sem á eftir koma.  Þú virðist ekki sjá þann augljósa punkt.

Jóhann Elíasson, 16.4.2009 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband