Er hægt að ætlast til þess að ÞESSI maður sé tekinn alvarlega?????

Hann kom í HRAFNAÞING til Ingva Hrafns Jónssonar á sjónvarpsstöðinni ÍNNum daginn og þar fann hann Icesave-samningnum allt til foráttu og talaði meira að segja um föðurlandssvik, af hálfu þeirra sem gerðu hann en nokkrum dögum síðar gerir hann LÖGFRÆÐIÁLIT fyrir heilaga Jóhönnu og þá er allt í einu ALLT í himnalagi með samninginn og meira að segja eru bara nokkur atriði í honum orðin Íslandi hagstæð.  Hvað kemur næst frá þessum manni??
mbl.is Hagstæð ákvæði Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ætli hann hafi ekki fengið vel borgað fyrir lögfræðiálitið  Suma munar ekkert um að selja skrattanum sálu sína.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.6.2009 kl. 14:51

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er nú ekki nógu gott, ef ekki er lengur ástæða til að taka mark á neinu nema einhverju andskotans svartagallsrausi? Ef eitthvað kemur sem ekki sendir allt til helvítis þá sé það augljóslega keypt eða eitthvað þaðan af verra???

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 24.6.2009 kl. 17:13

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hafsteinn það er nú umhugsunarefni þessi mikli viðsnúningur hjá honum.  Sástu ekki þáttinn þar sem hann talaði um Icesave-samninginn hjá Ingva Hrafni?

Jóhann Elíasson, 24.6.2009 kl. 21:58

4 Smámynd: Hlédís

Detta mér nú dauðar lýs úr höfði!  Er álitsgerð K. Möller, ráðgjafa í Logos og lögfræðings JÁ-Baugs nú orðið að stórspeki í fjárglæpamálinu mikla?

Hlédís, 24.6.2009 kl. 22:42

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Nei Jóhann ég get aldrei hlustað meira en tvær mínútur á Ingva þennan. Einhver alleiðinlegasti maður sem ég heyri í og er þá mikið sagt. Veit þar af leiðandi ekki um hvað þessi viðsnúningur snýst. insvegar er þetta álit nú ekki frá honum Möller einum og þar fyrir utan er þetta samdóma álit mjög margra og það ekki útaf engu, að mínu áliti.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 24.6.2009 kl. 22:53

6 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Jóhann, ég er nú orðsaddur í þessu krepputali, ég er mikið sammála ykkur hér að ofan.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 25.6.2009 kl. 06:43

7 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Er bara hægt að panta svona álit/svari hver fyrir sig Halla gamla er nóg boðið/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 25.6.2009 kl. 12:11

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það virðist vera Halli minn.  Viti lögfræðingurinn afstöðu þess sem biður um álitið verður það eins og viðskiptavinurinn vill.

Jóhann Elíasson, 25.6.2009 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband