ÞAÐ Á AÐ KEYRA HÉR ALLT Í ÞROT!!!!!!!

Atvinnulífið þolir ekki þetta vaxtastig sem veldur því að fleiri fyrirtæki verða gjaldþrota, þá missir fólk vinnuna og getur ekki staðið í skilum með skuldbyndingar sínar, ríkið "tapar" skatttekum þannig að Icesave er pottþétt fyrir bí, landflótti eykst.  Er ekki bara best að fara að kynna sér kjörin á búferlaflutningum???


mbl.is Stýrivextir áfram 12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En keyrist ekki bara allt líka í þrot ef þeir eru lækkaðir, en þá bara á annan hátt? Er eitthvað gott í stöðunni?

Ágúst (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 09:20

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Á hvaða hátt fer allt í þrot ef vextirnir eru lækkaðir Ágúst? 

Jóhann Elíasson, 2.7.2009 kl. 09:29

3 identicon

Jóhann; Það sem ríkisstjórnin lætur ekki út úr sér er að stýrivexti er ekki hægt að lækka því þá myndu þeir sem ennþá eiga eitthvað sparifé hefja áhlaup á bankana sem myndi endanlega keyra þá í þrot... Vextir af innistæðum eru nokkuð undir stýrivöxtum og ég veit fyrir mitt leyti að ég myndi frekar vilja geyma peningana mína í öryggishólfi en á bankabók ef vextirnir lækka mikið frekar. Ég einfaldlega ber ekki mikið traust til neinna af bönkunum og ef ávöxtunin er ekki til staðar þá tek ég mitt fé og fer...

Þessi stýrivaxtaprósenta er tvíeggja sverð, hún er að sliga landsmenn, en heldur að sama skapi spariféi inni í bönkunum, sem er þeim nauðsynlegt.

FP (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband