FANTAGÓÐUR!!!

Byrjunin hjá honum var alveg ótrúlega góð og hann var góður allan kappaksturinn í dag.  Raunar var það svolítið kómískt að sjá Ferrari í fyrsta og síðasta sæti í dag.  Ekki er sanngjarnt annað en að tala hér um STÓRKOSTLEGA frammistöðu Fisichella í dag, ekki það eina kom það mönnum á óvart að hann skyldi ná ráspól í gær heldur að hann skildi verða ANNAR í keppninni, sem sýnir að hann er MJÖG góður ökumaður og náði að setja bílinn fullkomlega upp fyrir þennan kappakstur.  Eddie Jordan vildi meina að þessi árangur hjá Fisichella væri engin tilviljun Spa-brautin kallaði fram það besta hjá ökumönnum.  David Couldhard ræddi við tæknimann hjá Ferrari og spurði hvernig stæði eiginlega á því að Raikkonen næði ekki að hrista Fisichella af sér hvort hann væri að spara bílinn? Hinn svaraði að bragði: Raikkonen keyrir eins og hann sé með djöfulinn á hælunum, Fisichella keyrir bara rosalega vel.  Það verður forvitnilegt að vita hvort Fisichella keyrir Ferrari á Monsa eftir tvær vikur.
mbl.is Räikkönen stóðst álagið og vann fyrsta sigur Ferrari í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Loksins sá maður sinn mann vinna, Raikkonen stóð sig mjóg vel í þessari keppni, eina sem vantaði hjá honum er smá BROS

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 31.8.2009 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband