HANN LÝGUR UNDIR NAFNI!!!!!!!!

Þar liggur sjálfsagt munurinn, en það er náttúrulega óverjandi með öllu ef farið er að vera með einhverjar persónulegar "sögur", í stíl Gróu á Leiti, hvort sem er á netinu eða annars staðar.  Mér finnst nú persónulega að menn fari offari í því að gagnrýna bloggið, sannleikurinn er sá að mikill MEIRIHLUTI bloggara kemur fram undir nafni og er ekkert að reyna að hylja slóð sína hitt er svo annað mál að nokkrir koma fram undir nafnleynd í athugasemdakerfi bloggsins og ekki er svo gott að ráða við það.
mbl.is Björgvin G.: „Ný vídd í nafnlausu níði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Kristmundsdóttir

það er gríðarlegur munur á að ljúga undir nafni og nafnlaust, það hlýtur þú þó að sjá. Ekki það, ég er ekki að segja að Björgvin segi ósatt. Einnig er það deginum ljósara að hér er fólk að blogga nafnlaust og oft á tíðum er það vægast sagt gróft.

Sigurbjörg Kristmundsdóttir, 6.9.2009 kl. 17:17

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég sagði að "mikill meirihluti" bloggara kæmi fram undir nafni að sjálfsögðu eru þá einhverjir eftir.  Ég tek undir það sem hefur komið fram að ef menn þola ekki að vera í sviðsljósinu, eins og þingmenn óhjákvæmilega eru, þá eiga þeir að fara í aðra vinnu. Hvernig er það Sigurbjörg, lýgur þú öðruvísi þegar þú lýgur nafnlaust heldur en ef fólk veit hver þú ert? 

Jóhann Elíasson, 6.9.2009 kl. 17:23

3 identicon

eini munurinn sem ég sé á að nafnlausum bloggara vs undir nafni... hér á íslandi

Hann er sá að allir segja að nafnlausir bloggarar séu ómarktækir.

Þetta nafnleysishjal er púra kjaftæði.. og takið eftir hverjir hafa verið að nefna þetta núna undanfarið.. það er elítan og stjórnmálamenn sem hafa hagsmuni.. það eru einu mennirnir sem eru að tala um þetta... og þeir eru líka þeir einu sem krefjast hertra reglna með internetið.

Eitt það stærsta sem komið hefur upp frá hruni.. það kom upp frá nafnleysingja þegar hann lak uppl um kaupþing

er ekki hægt að leggja saman 2 og 2... er eðlilegt að Bjöggi sé að eltast við kjaftasögur á internetinu og gera svona rosalega mikið úr þeim

DoctorE (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 18:20

4 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Jóhann, það er kanski svolítið annað að vera í sviðsljósinu, eða vera í sviðsljósinu út af rógburði. Ég held að hvorki ég, eða þú mundum kæra okkur um að verið væri að ljúga upp á okkur sakir sem ættu ekki rétt á sér, hvort heldur er á netinu, eða annarstaðar.

Hjörtur Herbertsson, 6.9.2009 kl. 19:10

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hjörtur, þú ættir að lesa athugasemdirnar og bloggið almennilega áður en þú verð að koma með athugasemdir , það getur verið að lesskilningi þínum sé svo ábótavant að þé sé bara fyrirmunað með öllu að skilja ritað mál þokkalega.

Jóhann Elíasson, 6.9.2009 kl. 19:34

6 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Jóhann Elíasson.

Ekki ætla ég að blanda mér í þessa umræðu. Ef við skoðum þetta út frá öðru að bera mann röngum sökum þá er það mjög alvarlegur hlutur. Þá er spurt hver er tilgangurinn, jú til að koma höggi á andstæðinginn.

Það versta er að menn sem gera slíkt þora ekki að koma undir nafni. MBL á að stöðva slíka bloggar tafarlaust í fæðingu. Mér er alveg sama hver maðurinn er. Það er ekki hægt eða líðandi að láta slík viðgangast að það sé hægt að bera menn út án þess að menn standi við orð sín Jóhann Elíasson.

Jóhann Páll Símonarson. 

Jóhann Páll Símonarson, 6.9.2009 kl. 20:41

7 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sælir.

Predikarinn og aðrir þeir sem skrifa undir dulnefni, sem fylgja heimasíður á blog.is, eru að sönnu undir nafnleynd gagnvart lesendum. Hitt er annað að við erum svo sannarlega ekki í neinum felum hvað varðar stjórnendur bloggsins þar sem blog.is hefur kennitölur okkar og fullt nafn sem og aðrar upplýsingar. Að öðrum kosti fengjum við ekki inni hérna. Verra er að hafa upp á þeim sem ekki eru skráðir hérna en skrifa inn athugasemdir. Mér skilst að verra sé að hafa upp á þeim þó slíkt sé iðulega hægt. Skemmst er að minnast þegar Helgi Helgason startfsmaður hjá Frjálslynda flokknum skrifaði athugasemdir víða um bloggið undir ýmsum mismunandi nöfnum. Það var rakið til hans á IP tölunum.

Þannig erum við nafnleysingjarnir undir sömu sök seldir og þeir sem opinbera rétt nafn sitt á bloggsíðunum, þ.e. þeir sem telja okkur sverta nafn sitt þannig að til ærumeiðinga telst hafa opna leið til að lögsækja okkur. Það hafa þeir heimtingu á þegar á slíkar slóðir er komið að fá nafn okkar birt til þess arna og sækja að okkur fyrir dómi.  Það verður að teljast eðlilegur réttur slíkra.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 6.9.2009 kl. 20:45

8 identicon

Vá Jóhann skrifaði 2svar undir sinn pistil... magnaður :)

DoctorE (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband