1 APRÍL??????

Það er ábyrgðarhluti að birta svona óstaðfestar fréttir.  Hefur verið reiknaður út kostnaðurinn við þessar aðgerðir?  Ekki eru margir dagar síðan Heilög Jóhann sagði að aðgerðir til bjargar heimilunum mættu helst ekkert kosta en þarna er verið að tala um "pakka" upp á hundruði milljarða, í það minnsta ætla ég ekki að fagna fyrr en þessar fréttir verða staðfestar.
mbl.is Greiðslubyrði aftur fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Eg er sammála þér Joi ég trúi þessu ekki

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.9.2009 kl. 21:50

2 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þetta er náttúrulega ekki óstaðfest frétt að því leiti að ráðherrann tilkynnti að aðgerðir væru í farvatninu.  Lesa má ræðuna hans á http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/felagsmalaradherra-eigum-ekki-ad-bjarga-broskurum-sem-vilja-ad-almenningur-borgi-aevintyrin Hann segir svo sem ekki hvað á að gera en við verðum bara að bíða.  Dag skal að kvöldi lofa og mey að morgni.

Marinó G. Njálsson, 26.9.2009 kl. 22:31

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú Marinó, þetta eru óstaðfestar fréttir, menn vita ekki í hverju aðgerðirnar eru fólgnar.

Jóhann Elíasson, 26.9.2009 kl. 23:03

4 Smámynd: Axel Pétur Axelsson

Það er greinilegt að Greiðsluverkfallið er að skila tilætluðum "þrýstingi" á rétt staði. Stjórnvöld hljóta að boða fulltrúa Hagsmunasamtaka heimilanna að samningaborði strax í upphafi næstu viku.

Ég vil minna á hvernig heppnaðist með útfærslu á greiðsluaðlögun í höndum núverandi stjórnar.

Axel Pétur Axelsson, 26.9.2009 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband