SAMT ER ÞAÐ EKKI AFSÖKUN FYRIR HANS GETULEYSI EÐA "RÍKISSTJÓRNAR FÓLKSINS"......

Það verður ekki um það deilt, að hér ver allt í rúst, þegar hann og Heilög Jóhanna tóku við stjórnartaumunum.  En það hefur EKKERT lagast við það FREKAR hefur ástandið VERSNAÐ ef eitthvað er.  Ætli menn endalaust að vera í þeim gír að VÆLA yfir því hver hafi átt STÆRSTAN þátt í "HRUNINU" verður EKKERT gert eins og við sjáum svo vel.  Þegar tveir svona gjörsamlega vanhæfir og útbrunnir "VÆLUKJÓAR" taka sig saman, er ekki von á miklum framkvæmdum, eins og við höfum orðið vitni að síðustu mánuði og misseri.  Hvernig væri nú að menn færu að hætta þessu skítkasti, sem hefur verið vörumerki Steingríms Joð alveg síðan hann fyrst steig fæti sínum inn á þing, og færu að gera eitthvað af viti?  Ef það er eitthvað sem við höfum ekki nóg af þá er það tími.
mbl.is Tók við af „búskussa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Þetta fólk er með of marga spegla á veggjunum hjá sér...gerir ekkert nema dásama eigin dugnað í erfiðri stöðu og fara með rangfærslur. Hversu oft hafa þau skötuhjú ekki kvartað yfir erfiðum verkefnum ? Hversu oft hafa þau verið staðin að því að leyna og rangfæra ?
En hey ! Gleðileg Jól.

Haraldur Baldursson, 25.12.2009 kl. 14:48

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gleðileg jól Haraldur.  Já horfa þau ekki of mikið í spegil og segja "Spegill, spegill herm þú mér..........."  en svo eins og í ævintýrinu um Mjallhvíti, er reynt að koma ímynduðum (pólitískum) andstæðingi fyrir "kattarnef"?

Jóhann Elíasson, 25.12.2009 kl. 14:55

3 Smámynd: Haraldur Baldursson

Sjálfum þykir mér erfiðara að keyra í umferðinni ef ég stari of stíft á baksýnisspegilinn. Kannski er það bara sönnun um mínar takmarkanir. Steingrímur vill þó trúa því, að því er virðist, að best sé að halda ferð sinni áfram með því að nota speglana....tja nema hann komi þá bara út úr skápnum með það að hann er viljandi að keyra aftur á bak.

Haraldur Baldursson, 25.12.2009 kl. 14:59

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Hjartanlega samála þér Jói

Jón Aðalsteinn Jónsson, 25.12.2009 kl. 23:15

5 Smámynd: Stefán Jónsson

Ég gæti varla verið meira ósammála ykkur.
Þó ég hafi sjaldan deilt pólitískum skoðunum með Steingrími Jóhanni, þá tel ég ekki annað hægt en að dást að þrekinu og styrknum í manninum.
Það er alrangt hjá ykkur að EKKERT hafi gerst síðan núverandi ríkisstjórn kom til valda.
Sú lýsing á hins vegar prýðilega við ríkisstjórn Sjálftökuflokksins og Samfylkingarinnar, eftir að "veislunni" lauk.

Mér finnst jafn ÓÞOLANDI og ykkur að við skulum sitja uppi með skuldir sem einhverjir djöfulsins glæpamenn stofnuðu til og stungu svo öllu gullinu undan (því sem þeir ekki borðuðu). En ég á voða erfitt með að sjá fyrir mér að einhver annar stjórnmálaflokkur en Vinstri grænir væri líklegur til að setja hnefann í borðið og segja "Við borgum ekki, við borgum ekki".
Það hvarflar alla vega ekki að mér eitt augnablik, að Sjálfstæðismenn, sem halda að þjóðin geti lifað á innflutningi eingöngu, myndu stofna alþjóðaviðskiptum landsins í hættu. Fyrr myndu þeir selja skrattanum ömmu sína.

Ég get ekki varist þeirri hugsun, miðað við hvernig skriðið er fyrir erlendum stórþjóðum, að ef stjórnmálamenn nútímans hefðu verið við völd síðustu 50 ár, þá værum við í besta falli með 4 mílna landhelgi í dag.

Stefán Jónsson, 25.12.2009 kl. 23:30

6 Smámynd: Stefán Jónsson

P.s. Gleðileg jól

Stefán Jónsson, 25.12.2009 kl. 23:31

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gleðileg Jól Stefán en vildir þú ekki fræða okkur fáfróða mennina um HVAÐ það ER SEM HEFUR VERIÐ GERT síðan þessi ríkisstjórn komst til valda annað en að hækka skatta og álögur á landsmenn????

Jóhann Elíasson, 26.12.2009 kl. 11:30

8 Smámynd: Stefán Jónsson

Tjah, satt að segja er ég ekkert sérstaklega áhugasamur um fréttir frá Alþingi, held stundum að okkur farnist best þegar sú virðulega stofnun er í sínu langa sumarfríi.
En ég fæ alla vega ekki betur séð en að öll milliríkjaviðskipti gangi tiltölulega hnökralaust fyrir sig, sem er talsverð breyting frá því sem var.
Svo eru nú skattahækkanir þessarar stjórnar alls ekki neikvæðar í mínum huga.
Það sem er neikvætt er að vegna glæpsamlegrar óráðsíu síðustu ára, þá ÞARF að hækka skatta.
Þjóðin væri ekki á hausnum ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki komið hér á mesta öfgakapítalíska skattakerfi í hinum vestræna heimi.
Hefðu þeir félagar Geir og dýralæknirinn haft þó ekki væri nema annaðhvort vit eða þor til að hækka skatta um það leyti sem Kárahnjúkavirkjun fór af stað, til að slá á þensluna, þá værum við í allt annarri stöðu.

Hafi það ekki komið nógu skýrt fram, þá er ég alls enginn sérstakur stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar og eins og gerist með allar ríkisstjórnir (og yfirleitt öll þingstörf) þá finnst mér margt af því sem frá þeim kemur alger þvæla. T.d. finnst mér bjánalegt að hækka virðisaukaskattinn í 25,5%, hefði viljað sjá hann í 25% af mjög einföldum stærðfræðilegum rökum.

Stefán Jónsson, 26.12.2009 kl. 12:12

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ekki get ég nú verið sammála um að milliríkjaviðskipti gangi nokkurn vegin hnökralaust fyrir sig, ég veit ekki betur en að Steingrímur Joð og Heilög Jóhanna hafi haft milliríkjaviðskiptin sem sín helstu rök í Ices(L)ave málinu.  Ég hef nokkuð oft bloggað um skattahækkanirnar og hversu MISRÁÐIÐ bragð þær eru, það er nefnilega ekki mikið mál að gera MEIRAúr tekjum ríkisins, án skattahækkana en með aðhaldi í rekstri ríkisstofnana, í dag er áætlað að u.þ.b 20% ríkisstofnana séu óþarfar.  Ekki þyrfti að hreyfa neitt við heilbrigðiskerfinu,félagslega kerfinu eða menntakerfinu.  Fyrir nokkrum dögum bloggaði ég um VSK hækkunina og þar sýnist mér að við séum nokkuð sammála.

Jóhann Elíasson, 26.12.2009 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband