Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

ER ÞETTA KANNSKI FYRSTA SKREFIÐ Í AÐ VIÐURKENNA AÐ GJALDEYRISHÖFTIN VORU MISTÖK?????

Gjaldeyrishöftin áttu að koma í veg fyrir að miklir fjármunir "hyrfu" úr landinu og einnig áttu þau að "styrkja" gengi krónunnar.  Það má vel færa rök fyrir því að gjaldeyrishöftin hafi haft þau áhrif að fjárfestar "þorðu" ekki að fjárfesta á Íslandi því þeir voru einfaldlega hræddir um að ef og þegar fjárfestingin skilaði þeim ARÐI þá myndu þeir EKKI ná fjármununum út úr landinu.  Ekki er svo gott að segja til um áhrif gjaldeyrishaftanna á gengi krónunnar en þrátt fyrir gjaldeyrishöftin hefur gengi krónunnar SIGIÐ jafnt og þétt.  Getur maður þá ekki, með góðri samvisku sagt, að gjaldeyrishöftin séu algjörlega misheppnuð aðgerð?
mbl.is Afnám gjaldeyrishafta hafið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"HRYÐJUVERKASAMTÖK ÍSLANDS" KOMIN AF STAÐ............

Og eins og venjulega hafa þau ekkert til málanna að leggja það eina sem vakir fyrir þessu liði er að tefja framkvæmdir og koma í veg fyrir það að Ísland geti komið sér út úr þessari efnahagskreppu sem þjóðin er í.  Ekkert heyrðist frá þessu liði þegar féð í Tálkna var rekið fyrir björg og restinni svo ekið í sláturhús.
mbl.is Kæra ákvörðun um Suðvesturlínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

 

Ungt fólk var, af sitthvoru kyni, bjó á sitthvorum bænum í Skagafirði.  Það var stutt á milli bæjanna og eins og gengur og gerist þá var þetta unga fólk að „dragasig saman".  En það var einn galli á gjöf Njarðar, þetta átti að fara leynt en í sveitinni var símkerfi upp á „gamla" mátann eða sveitasíminn eins og við þekkjum sem erum komin um og yfir fertugt.  Til þess að engan grunaði neitt gerðu þau með sér samkomulag, að þegar þau mæltu sér mót til að fara í rúmið þá töluðu þau um það í símann að „TAKA Í SPIL" eða „TAKA SLAG". 

Eitt sinn hringdi strákurinn og stakk upp á því að þau hittust til að taka í spil.  Stelpan sagðist ekki vera í „stuði" og þar með lauk símtalinu.  Hún fór svo eitthvað að dútla en fór svo að hugsa að hún hefði nú verið svolítið fljótfær og hringdi í strákinn og sagði að sér hefði snúist hugur það væri ekkert að því að taka að minnsta kosti einn slag.

„ Nei það gengur ekki" sagði þá strákurinn  „ Ég var að LEGGJA KAPAL".


ÞARF EKKI NEINN "SPEKING" TIL AÐ SJÁ ÞETTA!!!!!!!!

Svona lagað getur hver maður með "meðalgreind" sagt sér sjálfur.  Það dettur engum heilvita manni í hug, ef hann rekur fyrirtæki, að skuldsetja fyrirtækið um sem nemur þrefaldri - fjórfaldri ársveltunni - allir vita hvað það þýðir.  En samt sem áður ætlar ríkisstjórnin, eða réttara sagt ráðherrar hennar, að halda Ice(L)ave klafanum til streitu.  Er eitthvað vit í að gera samkomulag, sem vitað er að ekki er hægt að standa við?
mbl.is „Skrípaleikur“ að leggja á slíka byrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN OG AFTUR MÁ HEILÖG JÓHANNA EKKI TIL ÞESS HUGSA AÐ STYGGJA BRETA OG HOLLENDINGA......

Og samþykkir allar þeirra kröfur eins og kúgaður og barinn hundur Því það má ekki til þess hugsa að "nokkuð trufli umsóknina í ESB".  Hún virðist tilbúin til hvaða LANDRÁÐA sem er fyrir þetta hugðarefni sitt.  Þeir sem eru á þingi fyrir Landráðafylkinguna virðast vera algjörlega viljalaus verkfæri Heilagrar Jóhönnu og gera bara það sem hún segir þeim að gera. Þessir aumingjar þora örugglega ekki að fara á klósettið, án þess að fá leyfi , hjá henni fyrst.
mbl.is Breyttur hagvaxtarfyrirvari getur valdið hærri greiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVER ERU SVO RÖKIN HJÁ AGS FYRIR ÞESSUM STÝRIVÖXTUM????????

Það eina sem kemur frá AGS er, að LÆKKUNstýrivaxta hafi skaðað Íslenskt efnahagslíf, en þeir nefna ekki á hvaða hátt eða RÖKSTYÐJA þetta álit sitt á NEINN hátt.  Ég stend alveg á því fastari fótum að vera AGS hér á landi HEFUR STÓRSKAÐAÐefnahag landsins, það að standa í vegi fyrir því að stýrivextir séu lækkaðir, niður í að minnsta kosti 5% og koma þannig atvinnulífinu af stað, ef atvinnulífið kemst af stað vænkast um leið hagur heimilanna og umheimurinn fær um leið smá "trú" á því að Ísland geti unnið sig út úr þeim vanda sem landið er í.  Stýrivextirnir hafa ENGIN áhrif á verðbólguna hér eða gengi krónunnar, það getur ekki gengið að heimfæra hluti úr STÓRUM hagkerfum yfir á "örhagkerfi" eins og er hér á landi.
mbl.is Segir AGS stunda hér efnahagsleg hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HAMILTON ÞOLIR EKKI SAMKEPPNI!!!!!!!

Kannski fær kallgreyið hann Alonso "uppreisn æru" kannski var Hamilton ekki sá "engill" sem menn vildu láta "oft er úlfur í sauðagæru" og er ekki líka sagt að sjaldan valdi einn þegar tveir deila.  Nú er enginn Ron Dennis til verndar og sumir vilja hafa vaðið fyrir neðan sig.
mbl.is Heidfeld í sigti McLaren
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DÆMIGERT FYRIR VINNUBRÖGÐ LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR!!!!!!!!!

Og VG fylgja þægir og eru eins og hundur í bandi því ekki vilja þau missa ráðherrastólana............
mbl.is Segja gagnrýni á ný lög fjarstæðukennda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞÓ FYRR HEFÐI VERIÐ!!!!!

Í mörg ár og áratugi,hefur stjórnarskráin verið brotin og farið þannig á svig við hana að mörgum manninum hefur blöskrað.  Þetta atriði hefur verið nefnt marg sinnis, á alþingi, í blaðagreinum, við lögfróða menn, stjórnmálafræðinga og fleiri aðila sem ættu að þekkja til en hingað til hafa allir daufheyrst við þessu.  Nú birti ég aftur hugleiðingar mínar um þessi mál og kannski verða viðbrögðin örlítið meiri núna og fólk átti sig á hve alvarlegt málið er fyrir lýðræðið í landinu.

Er grundvallarbreytinga þörf á stjórnarskránni? 

 Allt frá okkar fyrstu árum í skóla hefur okkur verið sagt að hin svokallaða þrískipting ríkisvaldsins sé grundvöllurinn að stjórnskipun lýðveldisins Íslands.Eins og allir vita skiptist valdið í: LÖGGJAFARVALD, FRAMKVÆMDAVALD og DÓMSVALD.En eftir að stöðuveitingar ráðherra komust í hámæli, þá fór ég nú að skoða þessa þrískiptingu ríkisvaldsins betur og miðað við þá skoðun þá komst ég að því að skilin þarna á milli eru orðin afskaplega óskýr og sum staðar eru þau bara alveg horfin, hafi þau einhvern tíma verið til staðar. LÖGGJAFARVALD er samkvæmt stjórnarskránni í höndum Alþingis og forseta.  Alþingismenn og konur fá umboð sitt frá þjóðinni, til fjögurra ára í senn, þeirra hlutverk er að setja lög sem þjóðin á að fara eftir og forseti veitir þessum lögum samþykki sitt. FRAMKVÆMDAVALD er ráðherra viðkomandi málaflokks og staðfestir forsetinn skipan viðkomandi ráðherra.  Viðkomandi ráðherra á að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi setur (Löggjafarvaldið). DÓMSVALD   er í höndum dómara. Þannig er þrískiptingu ríkisvaldsins háttað þessum ÞREMUR þáttum á að halda algjörlega aðskildum til að tryggja sem best lýðræði og réttláta meðferð þegna landsins gegn hinu opinbera. En eitthvað virðist þetta hafa skolast til á undanförnum árum og jafnvel áratugum og hægt er með nokkuð góðri samvisku að fullyrða það að þrískipting ríkisvaldsins hafi aldrei að fullu verið til framkvæmdar hér á landi.  Þessa fullyrðingu verður að skoða nánar og mun ég gera tilraun til þess hér á eftir.Við skulum byrja á því að skoða LÖGGJAFARVALDIÐ:  Á Alþingi sitja 63 fulltrúar kjörnir af þjóðinni, það er óumdeilt, en af þessum 63 þingmönnum eru 12 ráðherrar.  Þarna er strax komin skörun.  Það er svo tilhögunin á Alþingi, að svokölluð ráðherrafrumvörp njóta forgangs í störfum þingsins, en þetta þýðir að þau frumvörp sem eru borin upp af ráðherra hafa forgang framyfir svokölluð þingmannafrumvörp.  Ég tel að þarna sé um að ræða brot á stjórnarskránni.  Samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins eiga ráðherrar EKKI að hafa atkvæðisrétt á Alþingi og spurning hvort þeir eigi yfirhöfuð nokkuð að eiga sæti þar.  Það er spurning hvort störf Alþingis yrðu ekki bara “skilvirkari” ef ráðherrar myndu bara mæta einu sinni í viku eða sjaldnar í fyrirspurnartíma niður á þing?  Það er erfitt að skrifa nokkuð sérstaklega um FRAMKVÆMDAVALDIÐ vegna þess að þessi grein fjallar um það hvernig það hefur smám saman verið að “taka yfirLÖGGJAFARVALDIÐ og DÓMSVALDIÐ.  Það verður ekki um það deilt að FRAMKVÆMDAVALDIÐ er alltaf að verða fyrirferðarmeira í stjórnsýslu okkar Íslendinga.  Þá er eftir að fara yfir DÓMSVALDIÐ.  Ekki hefur það orðið útundan í þessari þróun.  DÓMSVALDIÐ á samkvæmt stjórnarskránni að standa alveg sjálfstætt.  En er það alveg sjálfstætt?  Ég verð að viðurkenna vankunnáttu mína þar en ég veit ekki hvenær ráðherra byrjaði að skipa dómara, en í stjórnarskránni stendur í 59 grein “Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum” (Tilvitnun líkur, leturbreytingar eru mínar), þá er það skilningur minn, samkvæmt þessu,að ráðherra eigi EKKI að skipa dómara og er þá ekki hægt með góðu móti hægt að segja að stjórnarskráin hafi verið brotin í  mörg ár eða jafnvel áratugi? Það er öruggleg einhver ástæða fyrir því að það er verið að tala um RÁÐHERRARÆÐI hér á landi.  Hve lengi eiga stjórnarskrárbrot að viðgangast án þess að nokkur geri við það athugasemdir?


mbl.is Lög um Stjórnarráðið endurskoðuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG VAR HANN LÁTINN "DÚSA" Í FANGAKLEFA???????

Margar fáránlegar eru fyrirsagnirnar, sem maður les, en þessi er nú með þeim betri.  Var ekki frekar lagt hald á þennan kafbát, ég vissi bara ekki að það væri tæknilega framkvæmanlegt að handtaka skip og önnur farartæki??? Woundering
mbl.is Áhöfn kafbáts handtekin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband