Bloggfærslur mánaðarins, desember 2018

EKKI Í FYRSTA SKIPTI SEM STÖÐ2 AFBAKAR FRÉTTIR OG FER RANGT MEÐ

Þar á bæ virðast menn vera meira fyrir "æsifréttamennsku" og að fara í kringum hlutina en vandvirkni og að kynna sér hlutina almennilega áður en er farið með "fréttina" í loftið, sem gerir það að verkum að í henni (fréttinni) er afskaplega lítið af haldbærum staðreyndum......


mbl.is Harma „óvandaðan fréttaflutning“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ ER EÐLILEGT VIÐ ÞAÐ AÐ MAÐURINN SKOÐI OG DÆMI UM EIGIN AFGLÖP?

En viðbrögð meirihlutans í Reykjavík í þessu máli, er með svo miklum ólíkindum og vandræðagangurinn svo mikill, að menn hljóta að spyrja sig hvort eina markmið þessa meirihluta sé að halda völdum SAMA Á HVERJU GENGUR?  Oddviti Viðreisnar hefur ekki tjáð sig mikið um þetta mál, virðist forðast það eins og heitan eldinn.  Kannski er verið að undirbúa brotthvarf Dags B. og hún fái þá borgarstjórastólinn?  Kannski seldi Viðreisn sig dýrt eftir allt saman?????


mbl.is Deilt um stöðu borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

 

Þennan sendi mér dyggur lesandi og sendi ég honum bestu þakkir fyrir.

 

Tvö ungmenni sátu hlið við hlið á ströndinni og horfðu út yfir hafið. „Veistu eitt, Árni,“ sagði stúlkan, „þú minnir mig alltaf á sjóinn.“

„Er það?“ sagði ungi maðurinn. „Áttu við að ég sé sterkur, óhaminn og rómantískur?“

„Nei. Ég á við að mér verður óglatt af þér.“


AUÐVITAÐ FÓRU "NÁTTÚRUVERNDAR - AYATOLLARNIR" ALVEG Á LÍMINGUNUM

Nú er ljóst að alvarlegir brestir eru komnir í ljós í alþjóða hvalveiðiráðið (IWC) og undirliggjandi óánægja með það að Greenpeace og önnur öfgasamtök skuli hafa tekið alþjóða hvalveiðiráðið yfir.  Kannski alþjóðavæðingin standi ekki á eins sterkum stoðum og margir halda??????


mbl.is Japanir segja sig úr hvalveiðiráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"KLAUSTURMÁLIÐ" FRÁ ÖÐRU SJÓNARHORNI

Það er kannski eins og að bera vatn í bakkafullan lækinn að vera að fjalla meira um þennan "farsa", sem Klausturmálið er orðið að.  Viss öfl í landinu eru búin að hafa þjóðina að algjörum fíflum í þessu máli og lágkúran varð svo algjör þegar Borgarleikhúsið stóð fyrir "leiklestri" um málið.  Það hefur hvergi komið fram hvar leikhúsið fékk gögn til að vinna með varðandi þetta mál?  Allt sem sagt hefur verið um tilurð þessa máls, er svo með ólíkindum að allt hugsandi fólk hlýtur að stoppa við og spyrja ýmissa spurninga.  T.d sagði Bára Halldórsdóttir í upphafi, þegar hún viðurkenndi að hafa tekið þetta upp og komið til fjölmiðla, að hún hafi verið að bíða eftir fólki (ekki var hægt að skilja annað en að um ferðamenn hefði verið að ræða.  Hún hafði meðferðis einhverja ferðabæklinga).  En eitthvað hefur þetta fólk, sem hún var að "bíða eftir", verið óstundvíst eða kannski hefur það bara ekki verið til því allt í einu hafði hún nægan tíma til að taka upp samtal þingmannanna, sem hún sagðist ekki hafa þekkt nema jú Sigmund Davíð.   Hún var þarna í á FJÓRÐU KLUKKUSTUND að taka upp og aldrei kom fólkið sem hún var að "bíða eftir".  Þá er það afraksturinn, þetta fór beinustu leið á "STUNDARBRJÁLÆÐIÐ", sem sá um að "búta" upptökuna niður og rífa allt úr samhengi og "matreiða" allt ofan í lesendur.  Aðrir fjölmiðlar stukku líka strax á vagninn og einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni að þessi þriggja og hálfs tíma upptaka hafi orðið mun lengri í meðförum STUNDARFÓLKS. Skyldi eitthvað breytast ef fólk fengi að heyra upphaflegu upptökuna???

EN HVERT VAR EIGINLEGA UPPHAFIÐ AÐ ÞESSU MÁLI?  Það er nokkuð sem þarfnast rannsóknar.  Mín kenning er sú að Jóhannes Kr. Kristjánsson og "STUNDARBRJÁLÆÐIÐ" standi á bak við heila málið.  Jóhannes Kr. getur ekki látið sjá sig opinberlega, því hann er orðinn það þekktur.  Það hafa verið skipulagðar "vaktir" á þessum bar, því það var vitað að hann var mikið sóttur af þingmönnum. Þetta er ekki í fyrsta og eina skipið, sem þessir aðilar reyna að hafa áhrif á stjórn landsins og SPURNINGIN ER SÚ HVORT ÞESSIR FJÖLMIÐLAR (STUNDIN OG REYKJAVIK MEDIA) SÉU EKKI AÐ MISSKILJA HLUTVERK FJÖLMIÐLA ALLHRAPPALEGA, ÞEIRRA HLUTVERK ER AÐ SEGJA FRÉTTIR - EKKI AÐ BÚA ÞÆR TIL OG ÁKVEÐA HVAÐ EIGI ERINDI TIL ALMENNINGS OG HVAÐ EKKI.

 


mbl.is „Mikilvægt“ að tryggja tilvist myndefnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Þennan sendi mér dyggur lesandi og sendi ég honum bestu þakkir fyrir.

Áður en lengra er haldið er rétt að taka fram að efnið getur verið varasamt fyrir viðkvæma einstaklinga og sært blygðunarkennd þeirra verulega. Þeim einstaklingum er ráðlagt að hætta lestrinum ekki seinna en núna.

Íslenskur iðnaðarmaður fór til Parísar á vörusýningu. Þegar henni var lokið ákvað hann að skoða sig um í borginni. Þegar hann þreyttist fékk hann sér sæti á götuveitingahúsi nokkru. Ekki vissi hann fyrri til en ung og falleg stúlka kom og settist í auða stólinn á móti honum. Íslendingurinn kættist mjög, en fljótlega kom í ljós að stúlkan talaði enga ensku og Íslendingurinn talaði enga frönsku. Nú voru góð ráð dýr. En stúlkunni kom ráð í hug. Hún greip penna og servíettu og teiknaði á hana vínflösku og tvö glös. Íslendingurinn skildi þetta og var ekki seinn á sér að kalla á þjón og panta vín.

Þegar vínið kom tók stúlkan aftur pennann og nú teiknaði hún disk og hnífapör, og Íslendingurinn var fljótur að panta mat handa þeim. Þau borðuðu stórkostlega máltíð og þegar henni var lokið teiknaði stúlkan mynd af stóru hjónarúmi á servíettuna.

Íslendingurinn leit steinhissa á hana. „Ja, hérna!“ sagði hann. „Þetta er stórmerkilegt! Hvernig gastu vitað að ég er húsgagnasmiður?”

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband