Bloggfærslur mánaðarins, mars 2020

ER ÞÁ NOKKUÐ STÆTT Á ÞVÍ HELDUR AÐ HLEYPA FLEIRI HÆLISLEITENDUM INN Í LANDIÐ????

Þarf þetta ekki annars að gilda í báðar áttir?  Verður ekki að hafa það í huga að hvergi hafa jafn mörg covid-19 smit greinst og á Íslandi, sé miðað við  höfðatölu og því er nokkuð ljóst að Ísland er síður en svo öruggur staður fyrir hælisleitendur og jafnvel væri öruggara fyrir þá að þeim verði vísað úr landi á grundvelli Dyflinnar reglugerðarinnar??????


mbl.is Ekki stætt að senda fólk til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FERÐAST INNANHÚSS???????

Það verður þá kannski lengsta ferðalagið, hjá þeim sem býr í tveggja herbergja íbúð segjum rúmlega 50 fermetra, að fara á klósettið.  Ekki beint hægt að tala um langferð.  En á ekki að fara að tilmælum?????? wink


mbl.is Fólk ferðist innanhúss um páskana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÍKISSTJÓRNIN VIRÐIST ÞÁ HORFA Á YOU TUBE MYNDBÖND GUÐMUNDAR FRANKLÍNS.....

Sem hann sendir út á Sunnudags- og Miðvikudagsmorgnum, en í morgun lagði hann mikla áherslu á þetta atriði og tók einmitt Blá Lónið sem dæmi um fyrirtæki sem undanfarin ár hefur greitt út háar greiðslur í arð en ætlast til að fá aðstoð þegar illa árar.  En vissulega mætti ríkisstjórnin skoða tillögur hans betur......


mbl.is Fyrirtækjum með brúarlán bannað að greiða út arð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EFTIRLITSIÐNAÐURINN, HÉR Á LANDI, ALGJÖRLEGA KOMINN ÚR "BÖNDUNUM".

Þessi ákvörðun Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins (veit ekki hvort er við hæfi að kalla þetta nýsköpunarráðuneyti því þaðan kom ákvörðunin um að leggja Nýsköpunarmiðstöð Íslands niður) staðfestir það algjörlega.  Ég held að það sé nokkuð augljóst mál, að í framhaldinu verði gerð úttekt á "eftirlitsiðnaðinum" á Íslandi og í framhaldinu verði gripið til róttækra breytinga í þeim geira.  Þetta mál, eins fáránlegt og það er, hefur leitt í ljós hversu mikil vitleysa er í gangi innan stjórnkerfisins og það er ansi mikið sem þarf að lagfæra....


mbl.is Fresta afskiptum af fiskeldi á Völlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VEIT MÁI EKKI AÐ KIRKJUGARÐAR LANDSINS ERU FULLIR AF "ÓMISSANDI" FÓLKI???

En þrátt fyrir að allt þetta "ómissandi" fólk sé horfið á vit feðra sinna, þá gengur allt sinn vanagang eins og ekkert hafi í skorist.  Heldur Mái virkilega að allt fari á "hliðina" eða jafnvel á hvolf, ef hann verður ekki sjálfur í brúnni á fyrirtækinu???  Eða hefur hann hugleitt þann möguleika að jafnvel hafi endurkoma hans slæm áhrif á ásýnd fyrirtækisins????  En er ekki verið að senda þjóðinni þau skilaboð að það eigi að "GLEYMA" Samherjamálinu og HEIÐRA SKÚRKINN???????


mbl.is Þorsteinn Már kemur aftur til starfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ BYRJAR "BOLTINN" AÐ RÚLLA.........

Að sjálfsögðu er það sem er alveg augljóst brot, tekið fyrir fyrst og svo kemur restin á eftir.  Þetta segir okkur að þessi "hrina" er bara rétt að byrja og það á margt eftir að koma í ljós eftir því sem tíminn líður en svo er náttúrulega margt sem kemur til með að fyrnast.......


mbl.is Sækja á 2,8 milljarða tryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI???????

Það virðist vera helsta og jafnvel eina umræðuefnið hjá hinum og þessum "sparkspekingum" hvaða leikmenn yfirgefi Liverpool og hvort Liverpool fari nú ekki að tapa leikjum.  Hvaða tilgangi eiga þessar "spekúleringar" eiginlega að þjóna og hvernig stendur eiginlega á því að fjölmiðlar birta þetta???


mbl.is Telur að Mané fari til Spánar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VÆGT TIL ORÐA TEKIÐ.......

Það sem sló mig einna mest, er hversu algjörlega skorti á heildarsýn og það hversu svo til eingöngu er horft til atvinnurekstrar (það eru þarna tilteknar aðgerðir til aðstoðar barnafólki, sem er jú jákvætt).  Og svo kemur helsti brandarinn og það sem algjörlega út í hött: ÞAÐ Á AÐ "GEFA" ÖLLUM LANDSMÖNNUM ÁTJÁN ÁRA OG ELDRI FIMM ÞÚSUND KRÓNA "GJAFABRÉF" TIL AÐ FERÐAST INNANLANDS cool tongue-out smile.  Fyrir það fyrsta "hefur það verið reiknað út hversu langt hjón með tvö börn komast fyrir þennan pening"?  Væntanlega  fengju þessi hjón sinn hvorn fimm þúsund kallinn en börnin fengju ekkert því þau eru ekki nógu gömul og þau sem eru orðin 18 ára og eldri fara ekki í ferðalag með foreldrunum.  Þetta er bara lítið dæmi um það hversu aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru ómarkvissar og vanhugsaðar.  Kannski er verið að ljúka því sem byrjað var á í ríkisstjórn Heilagrar Jóhönnu og Gunnarsstaða Móra, en tókst ekki að klára, "AÐ GERA ALMENNING AÐ ÞRÆLUM ÖRFÁRRA "ELÍTUFORKÓLFA"".......


mbl.is Ólíklegt að þessar aðgerðir dugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÞETTA VIRKILEGA ALLT SEM Á AÐ GERA?????????

Ég horfði áðan á beina útsendingu, þar sem ríkisstjórnin kynnti aðgerðir sínar í efnahagsmálum vegna covid 19 veirunnar(en það er kannski réttast að tala um aðgerðaleysi og fát og fum ríkisstjórnarinnar).  Og þvílík vonbrigði, forráðmenn ríkisstjórnarinnar komu þannig fram að þeir virtust vera illa undirbúnir og þau töluðu MIKIÐ en sögðu afskaplega LÍTIÐ, þannig að ekki hafa þau fengið mörg atkvæði eftir þennan fund.  Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru ekkert annað en kattaþvottur og aumt yfirklór, sem koma ekki til með að skila nokkrum sköpuðum hlut þegar til lengri tíma er litið, sem dæmi má nefna að það er ein af tillögunum að fella niður gistináttaskattinn, Halló það eru engir ferðamenn og þar af leiðandi er enginn gistináttaskattur til að fella niður og láta bara greiða 50% af launatengdum gjöldum, halda ráðamenn þjóðarinnar virkilega að fyrirtækin, sem eru í vandræðum með að borga launatengdu gjöldin í þessum mánuði geti greitt 100% í næsta mánuði og svo 150% þegar þessari aðgerð lýkur?  Aðrar tillögur ríkisstjórnarinnar eru á svipuðum nótum.  ER ÞETTA EKKI KALLAÐ AÐ PISSA Í SKÓINN SINN?.  Á sérstökum tímum þarf að grípa til sérstakra aðgerða:
 

  • Setja þarf neyðarlög í landinu, sem taka gildi STRAX.
  • Byrjað verði á að kippa verðtryggingunni úr sambandi, þannig að almenningur verði ekki látinn greiða fyrir "sukkið" eins og gert var í HRUNINU, en það virðist vera að SUMIR hafi EKKERT lært af HRUNINU.
  • Þessi neyðarlög fela meðal annars í sér að 45% launahækkunin sem Kjararáð færði þingmönnum, ráðherrum og æðstu embættismönnum þjóðarinnar, verði afturkölluð.  Þessi hækkun launa ráðherra,þingmanna og æðstu embættismanna ríkisins, var réttlætt með því að mikil uppsveifla væri í hagkerfi landsins - nú er mikil niðursveifla í hagkerfinu og því hafa skapast aðstæður til lækkunar launa hjá þeim hæstlaunuðu.  Eiga ekki allir að leggja eitthvað af mörkum við þessar aðstæður?
  • Tryggingagjaldið á atvinnurekstur verði aflagt fyrir alla starfsmenn yfir 50 ára aldur en verði 5% fyrir starfsmenn 20-30 ára, 3% fyrir starfsmenn 31-40 ára og síðan 1% fyrir starfsmenn 41-50 ára.  Þetta myndi auka vilja atvinnurekenda til að hafa reynslumeira fólk í vinnu og kannski myndi þessi aðgerð slá aðeins á þessa æskudýrkun sem er í gangi hér á landi.
  • Felldur yrði alfarið niður tekjuskattur á laun undir 550 þúsundum og eftir það færi tekjuskattur stighækkandi en aldrei meiri en 30%.
  • Allar nýráðningar í opinbera geiranum yrðu "frystar".


Sjálfsagt þykir mörgum þetta vera ansi "brattar" tillögur en á einhverju verður að byrja en fyrst og fremst verður að byrja á einhverju sem virkar en eins og staðan er í dag virðast þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vera með öllu "máttlausar" og gagnslausar með öllu.  Því miður virðast flestar aðgerðir ríkisstjórnarinnar ganga út á að FRESTA sköttum og skattaálagningu nema bankaskattinum sem á að leggja STRAX niður.  Halda forráðamenn landsins virkilega að þegar að búið verður að lengja svona í "hengingarólinni" hjá fyrirtækjunum, verði þau betur í stakk búin til að greiða þá skatta og skyldur sem hefur verið frestað á meðan það versta gekk yfir??????


mbl.is Viðspyrna fyrir Ísland - aðgerðir stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ VERÐUR FÆRI Á AÐ VELJA "RÖGGSAMAN" MANN Á BESSASTAÐI......

Núverandi forseti er örugglega hinn besti maður og ég efast ekki um að hann vill öllum hið besta.  En að mínum dómi er hann ekki rétti maðurinn til að gegna þessu embætti.  Það eru margir menn úti í þjóðfélaginu, sem ég veit ekki um sem væru góður kostur fyrir þjóðina í þetta embætti en EINN mann veit ég um, sem þjóðinni yrði mikill sómi að og einni er víst að sá maður ynni vel fyrir þjóð sína.  ÞESSI MAÐUR ER GUÐMUNDUR FRANKLÍN JÓNSSON og eitt er víst að hann yrði ekki "strengjabrúða" eins eða neins.........


mbl.is Auglýst eftir framboðum til forsetakjörs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband