HEIMSMET - VÆNTANLEG RÍKISSTJÓRN FELLUR ÁÐUR EN TIL HENNAR ER STOFNAÐ

Hvað er eiginlega í gangi????   Strax og ljóst vað að það ætti að reyna að "klambra" saman "Vinstri bræðingi", sturtaði einn Pírati sér fram á völlinn og sagði AÐ HANN MYNDI EKKI STYÐJA ÞESSA TILVONANDI RÍKISSTJÓRN.  Þar með var ríkisstjórnin tilvonandi fallin og það meðan hún var enn bara blik í augunum á Katrínu Jakobsdóttur.  Þessi uppákoma gefur bara tóninn fyrir það sem er í vændum ef það verður af þessu ríkisstjórnarsamstarfi.  Það væri ráðlegast fyrir Katrínu að skila "umboðinu" bara strax, því þetta getur aldrei gengið upp.  En menn segja að það sé mjög mikil PRESSA á Kötu litlu og pólitískt líf hennar hangi á bláþræði þessa dagana, NÚ GILDI ÞAÐ AÐ DUGA EÐA DREPAST.....


mbl.is Viðræður hefjast formlega í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Feðgar af Ströndum komu í fyrsta sinn til Reykjavíkur og fóru meðal
annars í fyrsta sinn í Perluna. Hakan á þeim féll oní bringu oft og
einatt í ferðinni svo undrandi voru þeir á mörgu sem fyrir augu bar
sem ekki var að finna í sveitinni.
Sérstaklega vakti þó athygli þeirra í Perlunni tveir glansandi
silfurlitaðir veggir sem ýmist opnuðust eða lokuðust.  
Drenghnokkinn spurði: Hvað er þetta eiginlega, pabbi? Faðirinn, sem
hafði aldrei séð lyftu fyrr á ævinni svaraði: Sonur sæll, ég hef
aldrei séð nokkuð þessu líkt á ævinni og ég veit hreinlega ekki hvað
þetta er. Meðan feðgarnir stóðu hugfangnir fyrir framan veggina með
undrunarsvip á andlitinu bar þar að þéttholda konu í hjólastól sem
ók að hreyfanlegu veggjunum og þrýsti þar á hnapp. Veggirnir
opnuðust og konan í hjólastólnum fór inn í lítið rými. Síðan
lokuðust veggirnir og Strandafeðgar horfðu á litla hringlaga hnappa
með tölustöfum sem blikkuðu með reglulegu millibili.
Þeir fylgdust með þessu uns efstu tölunni var náð og þá fóru ljósin
að blikka í öfugri röð. Að lokum opnuðust veggirnir og út gekk
glæsileg ljóshærð kona á þrítugsaldri.
 Faðirinn sem starði dolfallinn á ungu konuna hnippti í soninn og
hvíslaði í eyra hans: "Farðu og sæktu mömmu þína."


Bloggfærslur 3. nóvember 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband