Færsluflokkur: Formúla 1

RAIKKONEN EINN "STÖÐUGASTI" ÖKUMAÐUR FORMÚLUNNAR.......

Það er af sem áður var, að það þótti tíðindum sæta ef hann gat lokið keppni, hann var alveg ótrúlega mikill þjösni og virtist hvorki vita sin eigin takmörk eða bílsins.  En nú er tíðin önnur hann nær öllu út úr bílnum sem er til staðar, hann keyrir alveg ótrúlega vel, passar rosalega vel upp á dekkin og það er alger unun að sjá marga framúrrakstrana hjá honum.  Það er alveg með ólíkindum sú breyting sem hefur orðið á manninum yfir þann tíma sem hann hefur verið í formúlunni og ég man bara ekki eftir öðru eins frá því að ég byrjaði að fylgjast með.  Þá er komið að Ferrari en síðustu 22 keppnir hafa 20 unnist af ráspól.  Þessu breytti Alonso all hressilega í dag, aldrei fyrr í sögu Spánarkappakstursins, hefur sigur unnist unnist hjá manni sem byrjar aftar en í þriðja sæti á ráslínu.  Mig minnir að Alonso hafi byrjað í fimmta sæti (ég er ekki alveg viss en ég verð þá vonandi leiðréttur) og árangur Massa er alveg ótrúlegu,r hann byrjaði í NÍUNDAsæti á ráslínu og að mínu mati var hann tvímælalaust maður dagsins.
mbl.is Alonso kóngur Katalóníuhringsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALGJÖRT "AUGNAKONFEKT"..................

Þó svo að baráttan um fyrsta sætið væri eiginlega ekki til staðar nema rétt í byrjun og koðnaði svo alveg niður eftir að DRS búnaðurinn bilaði hjá Alonso og hann varð að taka "auka" viðgerðarhlé vegna þess.  Þá var mikil barátta um sætin á eftir og mjög mikið um stórglæsilega framúrakstra og alveg gríðarleg barátta.  Manni fannst nú stundum alveg nóg um baráttuna, sérstaklega þegar McLaren liðsfélagarnir Perez og Button börðust um stöðu á brautinni þar munaði littlu að stórslys yrði (Perez hefði getað keyrt þá báða út úr keppninni) það var svolítið skondið að heyra Button kalla í stöðina að það yrði að kæla Perez niður.  Að fylgjast með slagnum milli Webbers og Hamiltons um fimmta sætið, sem Hamilton tókst að ná á síðasta hring, var alveg magnað (þá var ég ánægður með það að vera með frekar sterkt hjarta en ég verð að viðurkenna að sá slagur tók verulega á taugarnar).  Bæði Alonso og Webber keyrðu sinn 200 kappakstur og það er nokkuð víst að báðir hefðu viljað að hann færi öðruvísi.  En hvað sem öllu líður þá var þessi keppni með þeimm skemmtilegri sem ég hef séð lengi.........
mbl.is Vettel vann vandræðalaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TVEIR "TOPPMENN" EIGA MJÖG ERFITT MEÐ AÐ VERA SAMAN Í LIÐI....

Svipuð staða hefur oft komið upp og kannski er frægast hvernig samstarfið milli Alain Prost og Ayrton Senna var, þegar þeir voru liðsfélagar hjá McLaren.  Prost setti það svo sem skilyrði í samningi sínum við Villiams að Senna yrði EKKI ráðinn sem annar ökumaður liðsins meðan hann væri þar.  Sem nýrri dæmi mætti nefna Hamilton og Alonso og fleiri eru að sjálfsögðu.  Það er talað um að "uppgjör" milli ökumanna, innan sama liðs, eigi eftir að fara fram hjá Mercedes, Red Bull, Lotus og jafnvel einhverjum fleirum og eitthvað er verið að tala um að Alonso finnist Massa vera farinn að færa sig full mikið upp á skaftið......
mbl.is Ný hindrun á vegi Webbers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER HAMILTON EKKI ENN BÚINN AÐ JAFNA SIG EFTIR ÓHAPPIÐ Í JEREZ??

Í það minnsta get ég ekki séð að hann hafi tekið þátt í þessum prófunum.............................
mbl.is Rosberg rétt á undan Räikkönen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"LEAVE ME ALONE I KNOW WHAT I'M DOING".........

Voru skilaboð Kimi Raikkonen til liðsins þegar verið var að koma skilaboðum til hans í gegnum talstöðina.  Þetta var nokkuð öruggt hjá honum eftir að Hamilton féll úr leik en  Alonso var kominn hættulega nálægt honum í restina.  Sebastian Vettel var tvímælalaust maður dagsins , en eftir að hefja keppnina af þjónustusvæðinu og keyra sig upp í að enda í þriðja sæti, er alveg grjótmagnað og hann sýndi það og sannaði að það eru fáir sem standast honum snúning á brautinni.........
mbl.is Räikkönen sjöundi sigurvegari ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FJÖR Á ÖKUMANNAMARKAÐNUM......

Það eru óstaðfestar fréttir að Sauber verði með báða ökumenn sína nýja 2013, nýju mennirnir verða; Hinn Mexikanski tilraunaökuþór liðsins, Esteben Guiterrez og núverandi Force India ökumaðurinn Nico Hulkenberg.  Þetta gerir það að verkum að Kamui Kobyashi verður án keppnisliðs en eitthvað er talað um að hann sé eitthvað "volgur" hjá forráðamönnum Force India en hann þurfi að koma með sterkan sponsor svo af því verði.  Svo er talað um að það sé áhugi á því hjá Force India að fá Adrian Sutil tilbaka.   Mikil óvissa er um framtíð þeirra Vitalis Petrovs og Heikki Kovalainen hjá Caterham, sagt er að liðið vilji jafnvel halda í Kovalainen en hann er eitthvað í lausu lofti sjálfur. En stærsta fréttin er að sjálfsögðu að Sebastian Vettel sé búinn að skrifa undir samning um að koma til Ferrari árið 2014.  Þessu neitar Cristian Horner, stjóri Red Bull og segir að engin hreyfing sé á Vettel.   Samningurinn er víst háður því að Ferrari verði með bíl sem geti gert Vettel að heimsmeistara...........


mbl.is Hamilton kveður starfslið McLaren
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HULKENBERG MEÐ PÁLMANN Í HÖNDUNUM EFTIR KEPPNI DAGSINS

Og með frammistöðu sinni í dag tryggði Massa sæti sitt hjá Ferrrari næsta ár.  Hulkenberg sýndi snilldarakstur í dag en þó kórónaði hann frammistöðu sína þegar hann fór framú bæði Grosjan og Hamilton, það var svo snilldarlega gertað annað eins hefur ekki sést á brautinni lengi.  Flestir vilja núna meina að Kobyashi hafi endanlega gert útaf við veru sína hjá Sauber og misst sæti sitt til Hulkenberg, sem verði hjá Sauber á næsta ári.  Enn er þetta bara "slúður" en kemur sennilega í ljós á næstu dögum.  Í síðustu keppnum hefur Massa komið virkilega "sterkur" inn og á tímabili var nokkuð ljóst að Massa hafði fengið fyrirmæli um að fara ekki framúr Alonso, svo sterkur var hann í keppninni.  Það var líka ljóst að Webber spilaði fyrir liðið Vettel komst nokkuð auðveldleg framúr honum í ræsingunni og í stað þess að halda aftur af Hamilton, sem var í bölvuðu basli alla keppnina og endaði í 10 sæti, hélt hann aftur af Ferrari bílunum og gerði það vel.
mbl.is Vettel tekur forystu í titilslagnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TEKUR NICO HULKENBERG VIÐ AF MASSA????????????

Kannski verður Massa hjá Ferrari á næsta ári en ég held að það sé alveg útilokað að hann verði lengur en það og ekki útilokað að það verði tilkynnt nú fljótlega að hann hætti hjá liðinu....  Það er um það sterkur orðrómur að Ferrari séu mjög heitir fyrir Nico Hulcenberg hjá Force India.  Hann hefur verið þokkalega jafn allt þetta tímabil aldrei tekið neinar svaka rispur.  Það sem háir honum helst er reynsluleysi og menn eru ekki alveg vissir um hvernig honum tekst að standa undir þeirri pressu að vera í liði þar sem ekkert nema sigur er nógu og góður árangur.  Þetta er einmitt það sem menn eru hræddir við í sambandi við Sergio Peres (eða "Speedy Conzales" eins og hann er kallaður í formúlunni).  Það er nefnilega munur á að ná óvæntu "pallsæti" á´nokkuð góðum bíl, eða vera á afburða bíl og það sé ætlast til að þú vinnir eða í það minnsta verðir á "palli"................
mbl.is Ferrari: Verðum að taka okkur á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ HEFUR VERIÐ ÞRÁLÁTUR ORÐRÓMUR UM ÞETTA NOKKUÐ LENGI..

En í viðtali sem Eddie Jordan, átti við Bernie Eccelstone í lok ágúst, fengu þessar sögusagnir byr undir báða vængi.  En í þessu viðtali gaf Eccelstone það sterklega í skyn að Schumacher myndi hætta eftir tímabilið.
mbl.is Lewis Hamilton til Mercedes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÓRKOSTLEG KEPPNI - Á EINNI SKEMMTILEGUSTU BRAUT MÓTARAÐARINNAR......

Þó svo að byrjunin hafi ekki verið neitt til að hrópa húrra yfir.  Þetta byrjaði allt með einhverju augljósasta þjófstarti sem nokkurn tíma hefur sést, hjá Maldonado og kraðakið í fyrstu beygju skrifast alfarið á Grosjean, það var ekki hægt að sjá nokkra einustu glóru í því hjá honum að beygja ýmist í bak og stjór, án þess að hafa hugmynd um staðsetningu annarra ökumanna í kring.  Því eins og sagt er þú vinnur ekki keppnina í fyrstu beygju en þú getur bundið enda á hana þar.  Skítt með það þó hann hefði einn dottið út en það voru engar smá kanónur sem duttu út líka; Alonso, Hamilton og Perez.  Í sinni 300 keppni var Schumacher hreint og beint frábær og er langt síðan hann hefur sýnt viðlíka frammistöðu.  Alveg þar til tíu hringir voru eftir af keppninni barðist hann um sæti á verðlaunapalli en þá neyddist hann til að fara í dekkjaskipti.  Fljótlega eftir að hann kom út aftur missti hann sjötta gírinn og taldist bara góður að ná sjöunda sæti.  En það var nokkuð athyglisvert viðtal, sem Eddie Jordan átti við Bernie Ecclestone, en þar gaf Ecclestone það sterklega í skyn að Schumacher myndi enda sinn formúluferil þegar þessari vertíð lýkur.  Hvort sem þetta er rétt eða ekki, þá verður ekki borið á móti því að Schumacher á stærstan þátt í því að gera formúluna að því sem hún er í dag.  Það er ekki hægt að hætta að skrifa um keppnina í dag án þess að minnast á frammistöðu Vettels.  Hann var alveg ótrúlegur í dag.  Hann byrjaði í ellefta sæti í rásröðinni og keyrði sig upp í annað sæti og að sjá keyrsluna há drengnum var algjör draumur.  Í rauninni var þetta nokkuð merkilegur dagur fyrir Button, þetta var 50 keppnin hans fyrir McLaren, fyrsti ráspóllinn hans fyrir McLaren og fyrsti sigur hans á Spa svo það má búast við því að það verði mikið fagnað hjá honum í kvöld..........
mbl.is Button sigrar loks í Spa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband