Færsluflokkur: Fjármál

GÓÐ LAUSN FYRIR VERÐANDI HÁSKÓLANEMA...............

Nú þegar leiguverð er og verður í hæstu hæðum og þá sérstaklega í vesturbænum í nágrenni við Háskóla Íslands.  Þá er perla sem fáir hafa leitt hugann að en það er Ásbrú (varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli).  Þar er leiguverið eitthvað það ódýrasta sem þekkist, íbúðirnar eru mjög góðar, rútuferðir er til og frá Reykjavík og það sem meira er þessar ferðir eru mjög ódýrar, ef um barnafólk er að ræða þá eru þarna góðir skólar og leikskólar og mjög barnvænt umhverfi og fleira og fleira.  Nú þegar fólk er að huga að húsnæðismálum fyrir komandi skólaár, er þarna verðugur möguleiki að skoða og má geta þess að rútan stoppar á Hringbrautinni, sem er alveg við Háskóla Íslands.......
mbl.is Húsaleigan dýrust í Vesturbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GETUR ÞETTA VERIÐ????????????????

Getur verið að eitthvað sé til í þeim orðrómi af götunni að hinir svokölluðu "ERLENDU" kröfuhafar og núverandi "eigendur" bankanna, SÉU AÐ STÆRSTUM HLUTA LÍFEYRISSJÓÐIRNIR OG ÚTRÁSARVÍKINGARNAR??????  Sé eitthvað til í þessu þá fer eitthvað mjög lítið fyrir þessu NÝJA ÍSLANDI sem stjórnarliðar tala svo mikið um.  Og annað sem er alveg stórfurðulegt, er að það er Fjármálaeftirlitið sem skipar bönkunum slitastjórn, en samt sem áður hefur Fjármálaeftirlitið EKKI VALD yfir slitastjórnunum....  Ég hef ekki vanist öðru en að sá sem ræður viðkomandi til starfa hefur örlög þess sem hann ræður alveg í hendi sér og veiti þá viðkomandi það aðhald sem sem hann þarf - annað hvort nýtur viðkomandi stuðnings eða ekki, þetta á ekki að vera mjög flókið en það virðist vera eitthvað allt annað í gangi með þessar slitastjórnir............
mbl.is „Meira en milljarður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI SPURNINGIN HVORT EVRAN HRYNUR - HELDUR HVENÆR...............................

Ég tel að það sé ekki spurning um hvort EVRAN hrynji heldur hvenær.  Kínverjar hafa aðeins seinkað ferlinu, því eins og kunnugt er þá fer megnið af þeirra útflutningi til Bandaríkjanna en þeir hafa mjög litla trú á dollarnum þar af leiðandi hafa þeir skipt öllum dollurunum í evrur og það skýrir að mestu leyti hátt gengi evrunnar í dag, svo er bara spurning hversu lengi trú Kínverja á evrunni stendur?????  Bara þetta atriði er þess valdandi að Íslendingar ættu ALLS EKKI að sækjast eftir inngöngu í ESB og taka upp evruna.  Eins og allir vita þá tekur evran, sem sameiginlegur gjaldmiðill ESB ríkja, ekki tillit til efnahagsástandsins í einstöku aðildarríki heldur er efnahagur heildarinnar undir og þegar um svona miðstýring er að ræða verður það óumflýjanlegt að einhver ríki verði "undir" eins og við erum að sjá með Írland og fleiri ríki Grikkland, Spánn og fleiri ríki koma til með að fylgja á eftir.  Svona kemur ESB til með að éta sjálft sig upp innanfrá og þetta er það sem LANDRÁÐAFYLKINGIN með Heilaga Jóhönnu og "taglhnýtingur" hennar, Steingrímur Joð í broddi fylkingar, vilja leiða landið útí. 
mbl.is Óttast að evran hrynji
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ERU ENN Í GANGI 2007 VINNUBRÖGÐ ÞARNA Í BÓKHALDINU................

Að bókfært virði viðskiptavildar skuli nema RÚMUM 86% af heildareignum félags er bara nokkuð sem EKKI GETUR STAÐIST.  Þetta hlýtur hver heilvita maður að sjá og ég neita að trúa því að nokkur almennilegur endurskoðandi, með óskerta ábyrgðartilfinningu skrifi uppá svona kjaftæði.
mbl.is Viðskiptavild Sjóvár um 86% eigin fjár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BETUR MÁ EF DUGA SKAL!!!!!!!!!!!!

Er peningastefnunefnd núna loksins að gera sér grein fyrir því að "stýrivextirnir" eru ekki það stjórntæki í efnahagsmálum sem þeir héldu??  Það eina sem þetta gríðarháa stýrivaxtastig hefur gert er að koma atvinnulífinu og heimilunum í landinu á vonarvöl.  Og enn sígur allt á ógæfuhliðina, enn er þverskallast við en væri ekki ráð hjá þessu peninganefndarfólki að skoða stýrivaxtastigið hér á landi í sögulegu samhengi síðustu árin og áratugina og sjá hver árangurinn hefur verið? Verði ekki brugðist við með enn meiri lækkun stýrivaxta á næstunni og þá meina ég LÆKKUN horfum við fram á enn meiri hörmungar í efnahagslífi landsins.
mbl.is Stýrivextir lækka í 10%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA VAR EKKI LENGI AÐ "VELKJAST" UM Í KERFINU!!!!!!!!!

En hvað skyldu líða mörg ÁR þar til nokkur sem bar ábyrgð á efnahagshruninu fær dóm?  Er það svo stór glæpur í samanburði við efnahagshrunið og hrun bankanna að stela tveimur pökkum af nautalundum og einum "gervitittling" að það liggi lífið á að dæma í því eða ræður bara dómskerfið ekki við stærri mál???
mbl.is Í fangelsi fyrir að stela nautalundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband