Bloggfærslur mánaðarins, maí 2023

GETA ÞINGMENN ÁKVEÐIÐ SVONA EINN DAGINN AÐ FARA EKKI LENGUR EFTIR GILDANDI LÖGUM?????

Í það minnsta virðist það vera svo og það segir ekki nokkur kjaftur eitt einasta orð.  Í 14. grein STJÓRNARSKRÁRINNAR er fjallað um Ráðherraábyrgð og segir  þar: " Ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum. Ráðherraábyrgð er ákveðin með lögum. Alþingi getur kært ráðherra fyrir embættisrekstur þeirra. Landsdómur dæmir þau mál."  Þetta stendur í Stjórnaskrá Íslands og síðan er fjallað um Landsdóm í lögum númer 3/1963 og síðan er fjallað um Ráðherraábyrgð í lögum númer 4/1963.  Eftir að Geir Hilmar Haarde var dreginn fyrir Landsdóm í tengslum við HRUNIÐ,sem eru ein alvarlegustu mistök sem hafa verið gerð hér á landi (að mínum dómi átti annaðhvort að draga ALLA ráðherra viðkomandi ríkisstjórnar fyrir Landsdóm eða ENGAN).  EFTIR MISTÖKIN MEÐ GEIR HILMAR HAARDE "ÁKVAÐ" ALÞINGI AРALDREI AFTUR YRÐI LANDSDÓMSLEIÐIN FARIN.  ÞAR MEÐ ER VERIÐ AÐ SEGJA AÐ ÞAÐ SÉ VALKVÆTT HVORT SÉ FARIÐ EFTIR LÖGUNUM EÐA EKKI.  Í 29. grein STJÓRNARSKRÁARINNAR segir: "Forsetinn getur ákveðið, að saksókn fyrir afbrot skuli niður falla, ef ríkar ástæður eru til. Hann náðar menn og veitir almenna uppgjöf saka. Ráðherra getur hann þó eigi leyst undan saksókn né refsingu, sem landsdómur hefur dæmt, nema með samþykki Alþingis".  Þessi grein tekur af ALLAN vafa um að FULLUR VILJI er til að beita Landsdómi og að lögin um Ráðherraábyrgð séu virk.  Þá er ekki úr vegi að rifja upp  65. grein STJÓRNARSKRÁRINNAR, en þar segir: " Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.  Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna".  Við höfum reyndar nokkuð mörg dæmi um að þetta ákvæði er ekki alltaf í hávegum haft og nokkuð mikil brotalöm er á því hvort eftir þessu sé farið........


ÞAÐ ERU VÍST BARA LAUN ALMENNINGS SEM HAFA ÁHRIF Á VERÐBÓLGUNA...

Kannski væri ekki svo vitlaust að fara að taka upp ÁRANGURSTENGD LAUN í sumum hópum þjóðfélagsins, þá er ég smeykur um að  "sumir" fengju ansi lítið útborgað og þegar væri búið að taka tillit til skatta er hætt við að einhverjir yrðu að "borga með sér".  Gallinn er sá að ég er hræddur um að erfitt yrði að komast að  samkomulagi um hverjar forsendu útreikninga ættu að verða........


mbl.is Laun ráðamanna hækka um 6% í júlí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER ALVEG MEÐ ÓLÍKINDUM AÐ LESA SVONA HRÆÐSLUÁRÓÐUR........

Og alveg ótrúlegt að "fólk" skuli ekki lesa þetta af einhverri örlítilli gagnrýni. Einu sinni var nú sagt: "OG EKKI LÝGUR MOGGINN". en samkvæmt þessari frétt virðist það vera liðin tíð í það minnsta hvað varðar LOFTSLAGSRÉTTTRÚNAÐINN.  Sífellt fleiri vísindamenn koma fram nú uppá síðkastið og lýsa yfir vantrú á þessari "kenningu" um loftslagsbreytingar af mannavöldum og benda á að ENGAR almennilegar vísindarannsóknir liggi á bak við þessar "kenningar" og því síður nokkur gögn eða veðurfarslegar rannsóknir MENN GEFI SÉR BARA EITTHVAÐ SEM PASSI RÉTTTRÚNAÐINUM.  Eitt af því sem hefur verið algjörlega horft framhjá er færsla "SEGULPÓLSINS".  Þegar þetta er skrifað standa yfir svokölluð PÓLSKIPTI og er „hlýnunin mest á pólsvæðunum.  Það gefur auga leið að það svæði sem Segulpóllinn yfirgefur koma til með að hlýna og er bráðnun Grænlandsjökuls skýrasta dæmið um það og svo að sjálfsögðu bráðnunin á Suðurskautinu.   Myndin sýnir ferðalag Segulpólsins nyrðri frá aldamótum 1899/1900 til ársins 2020 hann stefnir á norðurhluta Síberíu og samkvæmt spám frá NASA þá kemur hann til með að enda í Indlandshafi.  Miðað við gögn, sem ég tíndi upp af „netinu“.  Þegar þetta er skrifað er Segulpóllinn staðsettur suðaustur af hinum reiknaða Norðurpól EN SEGULPÓLLIN NYRÐRI ER HINN RAUNVERULEGI NORÐURPÓLL OG ÞAÐ SAMA GILDIR AÐ SJÁLFSÖGÐU UM SEGULPÓLINN SYÐRI.  Segulpóllinn syðri er alltaf í 180° suður af nyrðri Segulpólnum, þannig að syðri Segulpóllin færist til samhliða nyrðri pólnum.  Sem dæmi um breytingarnar á veðurfarinu má nefna, að á þeim árum sem ég kláraði námið frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík (1981) lá hin svokallaða „lægðabraut“ milli Grænlands og Íslands og fór syðst yfir Ísland en núna liggur „lægðabrautin langt suður af Íslandi og aðallega yfir Írland og suðurhluta Skotlands og kemur að öllum líkindum til með að færast enn meira til.

Færsla Segupólssin 1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Myndin  sýnir færslu Segulpólsins frá árinu 1900 og fram til ársins 2020

Í nokkur ár hafa ég og nokkrir aðrir hér á „blogginu“, verið óþreytandi við að benda á þá augljósu staðreynd að MIKIL færsla hefur verið á „SEGULPÓLNUM“ allt frá aldamótunum 1899/1900 (sem þau gögn ná til sem ég hef undir höndum).  Þessi staðreynd kollvarpar með öllum  „loftslagsragnarakaspám“ BAKBORÐUSLASÍÐULIÐSINS, sem stendur mest að „loftslagshræðsluáróðinum“ sem er í gangi núna.  Þetta lið virðist hafa mjög góðan aðgang að fjölmiðlum og svo kann það mjög vel að nýta sér samfélagsmiðlana í áróðri sínum og þeir sem ekki taka undir blaðrið í þeim eru umsvifalaust „bannaðir“ í umræðunni, því ekki má fara gegn „RÉTTTRÚNAÐINUM“.  Áhrif staðsetningar Segulpólsins á veðurfar eru mjög vanmetin og mjög litlar rannsóknir eru til hvað þetta varðar og er það mjög miður.  Það gefur eiginlega auga leið að þegar kólnar á einum stað þá hlýnar annars staðar (sjá meðfylgjandi mynd af færslu Segulpólsins nyrðri) en þar sem SEGULPÓLLINN er staddur í það skiptið er mikill kuldi og þar í kring (því er þessi bráðnun á Grænlandsjökli og miklar hitafarsbreytingar á Suðurskautslandinu)......

 

 


mbl.is Breyting á hafstraumum örari en spáð var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

REYNDAR FÉKK LECLERC REFSINGU ÞANNIG AÐ OCON RÆSIR Í ÞRIÐJA SÆTI

En það verður gaman að horfa á ræsinguna á morgun og hvort Alonso tekst að komast framúr Verstappen.  Þeir eru báðir alveg "GRJÓTHARÐIR" hvorugur gefur tommu  eftir, "það má eiginlega segja að þar hitti skrattinn ömmu sína".......


mbl.is Verstappen á ráspól í Mónakó - Pérez ræsir aftastur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER ÞETTA EINA RÁÐIÐ GEGN VERBÓLGUNNI EÐA ER SEÐLABANKINN BARA RÁÐALAUS????

Mín persónulega skoðun er sú að það sé RÁÐALEYSI og JARÐTENGINGARSKORTUR sem er að hrjá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. JARÐTENGINGARSKORTUR segi ég vegna þess að þetta fólk gerir sér ekki grein fyrir því að þegar fólk ræður EKKI LENGUR við að greiða afborganirnar af ÓVERÐTRYGGÐU LÁNUNUM, þá er því "ýtt" út í að breyta láninu yfir í VERÐTRYGGT LÁN, ÞÁ HAFA STÝRIVAXTABREYTINGAR EKKERT AÐ SEGJA en vegna eðlismunar á þessu tvennu þá eru  afborganir af VERÐTRYGGÐUM LÁNUM ALLTAF "JAFNAR" ÚT LÁNSTÍMANN EN Á ÓVERÐTRYGGÐUM LÁNUM VERÐUR FYRSTA AFBORGUNIN HÆST OG SVO LÆKKAR HVER AFBORGUN UPP FRÁ ÞVÍ OG SVO KOLL AF KOLLI.  Þá ætla ég enn að  benda á það að það  eru nokkur ár síðan að sýnt var fram á það að það er ekki það samhengi milli STÝRIVAXTASTIGS og VERÐBÓLGU sem áður var talið.  En það virðist vera að  þetta fólk í peningastefnunefnd hendi námsbókunum og hætti að lesa um leið og það útskrifast, þannig að það er  ekki hægt að búast við því að  þetta STÝRIVAXTAKJAFTÆÐI hætti fyrr en að sú kynslóð sem er núna í HAGFRÆÐINÁMI kemst að í PENINGASTEFNUNEFND.  Mestu mistökin sem voru gerð á sínum tíma var að AFNEMA BINDISKYLDU Á SÍNUM TÍMA (ég kalla það afám að lækka bindiskyldu úr 10% í 1%) ÉG HEFÐI TALIÐ ÞAÐ MUN VÆNLEGRA AР HÆKKA BINDISKYLDUNA MUN MEIRA FREKAR EN STÝRIVEXTINA.............


mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 1,25 prósentustig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"SVO BREGÐAST KROSSTRÉ SEM ÖNNUR TRÉ"...........

Ég var að lesa grein skrifaða af Einari S. Hálfdánarsyni hæstaréttarlögmanni, á blaðsíðu 15. í Morgunblaðinu í dag.  Ég hef gert mér far um að lesa allt sem Einar skrifar og hann er alltaf mjög rökfastur og málefnalegur í skrifum sínum en umfjöllun hans um "bókun 35" í EES samningnum virðist hann ekki hafa skoðað mjög vel (hver ástæðan er fyrir því er treysti ég mér ekki til að meta).  Það er alveg rétt hjá honum að BÓKUN 35 HEFUR VERIÐ Í EES SAMNINGNUM VERIÐ ÞAR ALVEG FRÁ UPPHAFI, EÐA FRÁ 1993.  En hún hefur verið þar inni sem "BÓKUN" Í SAMNINGI HEFUR BÓKUN EKKI LAGAGILDI, EF ÞESSI bókun HEFÐI VERIÐ INNI Í SAMNINGNUM SEM LAGAÁKVÆÐI HEFÐI SAMNINGURINN ALDREI VERIÐ SAMÞYKKTUR HÉR Á LANDI Á SÍNUM TÍMA.  En nú stendur til að þessi BÓKUN öðlist LAGAGILDI, með því að Utanríkisráðherra lagði fram lagafrumvarp þess efnis OG ÞAR MEÐ HEFJAST SVOKÖLLUÐ LANDRÁÐ.  En allt sem Einar S. Hálfdánarson skrifar um Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og hvort hafi orðið einhver breyting á hlutverki stofnunarinnar, tek ég alveg undir og finnst þau skrif og hugleiðingarnar sem þar eru settar fram meiriháttar góðar.  En þrátt fyrir  þessa litlu yfirsjón Einars S. Hálfdánarsonar verðu EKKI til þess að ég hætti að lesa góðar og málefnalegar greinar hans í Morgunblaðinu.................


ÉG BARA STÓREFAST UM AÐ LOREEN VITI HVER SÆMUNDUR ER OG KANNSKI ENN SÍÐUR AÐ HANN SÉ TIL...

Ég hef séð margar "fréttir" þess efnis að hinn og þessi frægi aðili hafi STOLIÐ STÍLNUM af hinum og þessum Íslenskum fjósamönnum.  ÞESSAR "FRÉTTIR" ERU BARA PÍNLEGAR OG OKKUR SÍÐUR EN SVO TIL NOKKURS SÓMA.  MÍN TILLAGA ER SÚ  AÐ VIÐ HÆTTUM ÞESSARI VITLEYSU OG FÖRUM AÐ SNÚA OKKUR AÐ EINHVERJU UPPBYGGILEGRA.......


mbl.is Stal Loreen stílnum af Sæmundi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER LOKSINS KOMINN FRAM ÞINGMAÐUR SEM HEFUR ÞOR OG BURÐI TIL AÐ STANDA Í "HÁRINU" Á BORGARSTJÓRA??????

Ef það væri einhver "töggur" í ráðamönnum landsins færu þeir í að tryggja notkunargildi Reykjavíkurflugvallar, svo notagildi hans yrði ótvírætt þar til annað jafngott eða betra flugvallarstæði er fundið.  Og það er ekki nóg að finna annað flugvallarstæði heldur tekur það 10 - 20 ár að byggja flugvöllinn eftir að ásættanlegt flugvallarstæði er fundið (þetta segi ég miðað við hvaða tíma aðrar framkvæmdir hafa tekið).  Það er frekar lítið mál að gera flugvöllinn mjög góðan; það er lítið mál að lengja flugbrautir út í sjó  og að virkja "neyðarbrautina" aftur þá þarf að lengja hana út í sjó, reynda þyrfti að rífa tvö eða þrjú flugskýli áður en þar þyrftu að koma til samningar, sem ættu ekki að vera neitt vandamál ef vilji er til að leysa málin.  Þá þyrfti að fara fram umtalsvert skógarhögg í Öskjuhlíðinni og grisjun.  Allt sem þarf er bara að taka ÁKVÖRÐUN og fyrir stjórnmálamenn að standa í lappirnar.  Fyrir nokkrum árum kom fram tillaga þess efni að taka ætti skipulagsvaldið af Reykjavíkurborg er varðaði ALLAR ákvarðanir varðandi flugvöllinn og umhverfi hans, þetta er einhver besta tillaga sem komið hefur fram varðandi flugvöllinn og finnst mér að þetta ætti að eiga við ALLA flugvelli landsins.   En það var eins og við var að búast þingmenn LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR (Samfylkingarinnar) fóru alveg á hjörunum og svo mikil urðu lætin að þetta mál var látið niður falla.  Kannski er þetta eina lausnin á málefnum Reykjavíkurflugvallar, því aðgerðir núverandi borgarstjóra benda til þess að "BROTAVILJI" hans er MJÖG einbeittur og virðist ekki vera að samningar eða nokkuð annað haldi aftur af honum í því ætlunarverki hans að koma flugvellinum úr Vatnsmýrinni........


mbl.is „Fer ekki saman hljóð og mynd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SUMIR KUNNA ALLS EKKI AÐ SKAMMAST SÍN..........

Ekki veit ég hvenær hann hefur haft tíma til að kynna sér afkomu fyrirtækja EFTIR að samningar voru gerðir og svo efast ég bara stórlega um að áhrif þeirra séu komin í ljós og svo verðum við að hafa í huga að opinberi geirinn á eftir að semja, þannig að ekki hefur hann getað skoðað áhrif þeirra samninga.... cool wink


mbl.is Laun hafa hækkað of mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN UM STJÓRNARSKRÁRBROT (og ekki að ástæðulausu)...........

Nú er heldur betur komið að því að Alþingis-menn/konur fari að fara eftir stjórnarskránni okkar og virði hana í hvívetna EINS OG ÞEIR HAFA SVARIÐ AР GERA ÞEGAR SEST ER Á ÞING OG AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ LÖG SEM ALÞINGI SETUR  STANDIST STJÓRNARSKRÁNA .  Nú er tækifærið til þess að fara eftir stjórnarskránni að einhverju leyti.  Málið er að ráðherrarnir eiga EKKERT erindi á Alþingi   (það er nánar fjallað um þetta síðar í greininni).  Þegar ráðherrar hafa verið skipaðir verður að kalla inn varamenn fyrir þá, en þá verður engin FÆKKUN á Alþingi.  Þá er helsta ráðið að gerð verði breyting á lögum um fjölda Alþingismanna á þessu kjörtímabili þar, sem lagt yrði til að Alþingismönnum yrði FÆKKAÐ úr 63 í 40 (Það þarf ekki fleiri þingmenn til að samþykkja þau lög og reglugerðir sem koma frá ESB og þar að auki eru mjög margir þingmenn komnir með einn eða fleiri aðstoðarmenn).  Það  verður að fara fram að minnsta kosti endurskoðun á EES samningnum og uppsögn á Schengen samkomulaginu.

Allt frá okkar fyrstu árum í skóla hefur okkur verið sagt að hin svokallaða þrískipting ríkisvaldsins sé grundvöllurinn að stjórnskipun lýðveldisins Íslands.  Eins og allir vita skiptist valdið í: LÖGGJAFARVALD, FRAMKVÆMDAVALD og DÓMSVALD.

En eftir að stöðuveitingar ráðherra komust í hámæli, þá fór ég nú að skoða þessa þrískiptingu ríkisvaldsins betur og miðað við þá skoðun þá komst ég að því að skilin þarna á milli eru orðin afskaplega óskýr og sum staðar eru þau bara alveg horfin, hafi þau einhvern tíma verið til staðar.

LÖGGJAFARVALD er samkvæmt stjórnarskránni í höndum Alþingis og forseta.  Alþingismenn og konur fá umboð sitt frá þjóðinni, til fjögurra ára í senn, þeirra hlutverk er að setja lög sem þjóðin á að fara eftir og forseti veitir þessum lögum samþykki sitt. 

FRAMKVÆMDAVALD er ráðherra viðkomandi málaflokks og staðfestir forsetinn skipan viðkomandi ráðherra.  Viðkomandi ráðherra á að sjá um framkvæmd þeirra laga sem Alþingi setur.

DÓMSVALD er í höndum dómara.

Þannig er þrískiptingu ríkisvaldsins háttað þessum ÞREMUR þáttum á að halda algjörlega aðskildum til að tryggja sem best lýðræði og réttláta meðferð þegna landsins gegn hinu opinbera.

En eitthvað virðist þetta hafa skolast til á undanförnum árum og jafnvel áratugum og hægt er með nokkuð góðri samvisku að fullyrða það að þrískipting ríkisvaldsins hafi aldrei að fullu verið til framkvæmdar hér á landi.  Þessa fullyrðingu verður að skoða nánar og mun ég gera tilraun til þess hér á eftir.

Við skulum byrja á því að skoða LÖGGJAFARVALDIÐ:  Á Alþingi sitja 63 fulltrúar kjörnir af þjóðinni, það er óumdeilt, en af þessum 63 þingmönnum eru 11 ráðherrar,  Þarna er strax komin skörun.   Það er þannig að þegar kjörnir þingmenn, verða tilnefndir sem ráðherrar, þá eiga þeir að segja af sér þingmennsku og kalla inn varamenn sína.   Það er svo tilhögunin á Alþingi, að svokölluð ráðherrafrumvörp njóta forgangs í störfum þingsins, en þetta þýðir að þau frumvörp sem eru borin upp af ráðherra hafa forgang framyfir svokölluð þingmannafrumvörp.  Ég tel að þarna sé um að ræða brot á stjórnarskránni.  Samkvæmt þrískiptingu ríkisvaldsins eiga ráðherrar ekki að hafa atkvæðisrétt á Alþingi og spurning hvort þeir eigi yfirhöfuð nokkuð að eiga sæti þar.   Það er spurning hvort störf Alþingis yrðu ekki bara “skilvirkari” ef ráðherrar myndu bara mæta einu sinni í viku eða sjaldnar í fyrirspurnartíma niður á þing?  Það er erfitt að skrifa nokkuð sérstaklega um FRAMKVÆMDAVALDIÐ vegna þess að þessi grein fjallar um það hvernig það hefur smám saman verið að “taka yfir” LÖGGJAFARVALDIÐ og DÓMSVALDIÐ.  Það verður ekki um það deilt að FRAMKVÆMDAVALDIÐ er alltaf að verða fyrirferðarmeira í stjórnsýslu okkar Íslendinga.  Þá er eftir að fara yfir DÓMSVALDIÐ.  Ekki hefur það orðið útundan í þessari þróun.  DÓMSVALDIÐ á samkvæmt stjórnarskránni að standa alveg sjálfstætt.  En er það alveg sjálfstætt?  Ég verð að viðurkenna vankunnáttu mína þar en ég veit ekki hvenær ráðherra byrjaði að skipa dómara, en í stjórnarskránni stendur í 59 grein “Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum” (Tilvitnun líkur, leturbreytingar eru mínar), þá er það skilningur minn, samkvæmt þessu,að ráðherra eigi EKKI að skipa dómara og er þá ekki með góðu móti hægt að segja að stjórnarskráin hafi verið brotin í  mörg ár eða jafnvel áratugi?  Ekki einvörðungu hefur framkvæmdavaldið seilst til áhrifa í löggjafarvaldinu heldur er það einnig komið með puttana í dómsvaldið (sbr. Það að flestir dómarar, bæði í Héraðsdómi og Hæstarétti, eru orðnir pólitískt skipaðir) og ALLIR MUNA EFTIR „FARSANUM“ Í SAMBANDI VIÐ SKIPUN DÓMARA Í LANDSRÉTT.  En í því máli tel ég að hafi verið gerð AFDRIFARÍK MISTÖK.  Í dómi mannréttindadómstóls Evrópu kom fram að ALLIR DÓMARAR LANDSRÉTTAR VÆRU ÓLÖGLEGA SKIPAÐIR, EKKI BARA FJÓRIR, VEGNA ÞESS AÐ ALÞINGI HAFI EKKI STAÐIÐ RÉTT AÐ SKIPAN ÞEIRRA. ALÞINGI ÁTTI AÐ KJÓSA UM HVERN OG EINN ÞEIRRA Í STAÐ ÞESS AÐ KJÓSA UM ALLAN HÓPINN Í EINU.  þá kom einnig fram ádeila á FORSETA LÝÐVELDISINS fyrir hans afgreiðslu á málinu.  En minnsta ádeilan var á störf Dómsmálaráðherra, sem samt var sú eina í þessu máli, sem var „látin“ sæta ábyrgð.

 Það er mín skoðun að stjórnarskráin, sem slík sé mjög gott plagg og hefur hún þolað mjög vel tímans tönn en aftur á móti hef ég meiri áhyggjur af þeim sem eru á Alþingi og eiga að sjá til þess að það sé unnið í samræmi við stjórnarskrána m.a á að gæta þess að lög sem eru sett séu í samræmi við stjórnarskrána á því vill nú vera misbrestur.  Það er tími til kominn að stjórnarskráin verði virt og fyrsta skrefið í þá átt er að „MOKA“ RÁÐHERRUNUM út af Alþingi enda eiga þeir alls ekki heima þar.  Sem dæmi má geta þess að það getur ekki verið eðlilegt að ráðherrarnir sitji heilu og hálfu dagana niðri á Alþingi og „bori bara í nefið á sér“.  Maður hefði haldið að það væri full vinna að stjórna landinu í það minnsta er ekki mjög trúverðugt að menn og konur geti bara gert þetta með annarri hendinni.   Það er ekki skrítið að hver ráðherra skuli hafa minnst tvo aðstoðarmenn, því ráðherrann þarf að eiða tímanum niðri á þingi, þar sem hann á EKKERT ERINDI. Svo eru þingmenn orðnir allt of margir.  Með því að henda ráðherrunum út úr Alþingishúsinu, væri stigið fyrsta skrefið í því að FÆKKA alþingismönnum, en þar væri einungis komið FYRSTA skrefið af mörgum.  Alþingismenn þurfa alls ekki að vera fleiri en 40, það sem þarf að gera er að störf Alþingis verði gerð markvissari og einfaldari.  Þegar sjónvarpað er frá þingfundi (nema „Eldhúsdagsumræðu“ hvers vegna hún hefur fengið þetta nafn er mér algjörlega hulin ráðgáta), er þingsalur yfirleitt hálftómur.  Þetta vekur þá spurningu hvort ekki væri hagstæðara að hafa þingfundi tvisvar í viku og þar af yrði annar dagurinn þar sem ráðherra tækju þátt og svöruðu fyrir embættisfærslur sínar.  Þrír dagar yrðu svo teknir í nefndastörf og önnur störf þingsins.  Áður en fólk fer að tala um að það vanti nýja stjórnarskrá er lágmark að sú stjórnarskrá sem er nú þegar til staðar sé virt.  Það hefur verið alveg með ólíkindum að horfa upp á starfsemi þingsins og oft hefur það hvarflað að manni að þingið sé með öllu stjórnlaust, ég er alveg viss um að það væri búið að reka forseta þingsins fyrir stjórnleysi og handvömm ef hann væri að vinna í einkageiranum.  Ég minntist EKKI á ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGURNAR í þessari samantekt minni, en að mínu áliti standast lögin um þingsályktunartillögur EKKI stjórnarskrána en dæmi um lög sem ekki standist stjórnarskrána eru lög um þingsályktunartillögur og eru þau langt því frá að vera þau einu.

Nú er sem dæmi eftir nokkra daga að hefjast fundur, þar sem verður ákveðið HVORT ÍSLAND OG 193 ÖNNUR RÍKI AFSALI SÉR ÖLLU VALDI  TIL WHO (ALÞJÓÐA HEILBRIGÐISMÁLASTOFNUNARINNAR) OG ÞÁ FARI WHO MEÐ ÖLL VÖLD Í HEILBRIGÐISMÁLUM  ÞJÓÐARINNAR.   Þarna er óumdeilt  að um sé að ræða FRAMSAL Á VALDI TIL ERLENDRA AÐILA, SEM ER MEÐ ÖLLU ÓHEIMILT SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁNNI.  Ég veit ekki til þess að þetta mál hafi verið rætt á Alþingi og eina umræðan sem ég hef heyrt um þetta mál er á útvarpi Sögu og þingmenn konur hafa ekki fengist í viðtal þar og bera þeir því við að þeir hafi ekki haft tíma til að setja sig inn í málið.  Ætla þeir (þingmennirnir) að seta sig inn í málið EFTIR að búið er að skrifa undir og hvað á þá að gera??????


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband