Bloggfærslur mánaðarins, júní 2017

AUMINGJA MAÐURINN!!!!!!

Og þessir listamenn yfirhöfuð, "ÞEIR ERU LEPJANDI DAUÐANN ÚR SKEL".  Væri bar ekki tilvalið fyrir þetta lið að fá sér almennilega vinnu?  SVO ERU ALDRAÐIR OG ÖRYRKJAR AÐ KVARTA YFIR ÞVÍ SEM ÞEIR HAFA, SEM ER ALGJÖR LÚXUS MIÐAÐ VIÐ ÞETTA"........ cool wink


mbl.is Hallgrímur með 140 þúsund á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagsgrín

Ungur strákur, sem hafði það orð á sér að hann væri mikill viðskiptamaður og eldklár á öllum sviðum viðskipta, var ráðinn sem sumarafleysingamaður í afgreiðslu í Kaupfélag úti á landi.  Þetta var alvöru Kaupfélag þar sem allt var til og þá meina ég ALLT.

Kaupfélagsstjóranum leist vel á unga manninn þrátt fyrir ungan aldur og reynsluleysi, en hann hafði sína efasemdir og fór þar af leiðandi í verslunina til stráksins, um kvöldið eftir fyrsta daginn,  til að vita hvernig hefði gengið fyrsta daginn.

Hann spurði strákinn hve marga viðskiptavini hann hefði fengið fyrsta daginn.“Bara einn” sagði stráksi.  Þetta fannst nú Kaupfélagsstjóranum ekki merkilegt og var nú ekki laust við að hann fengi “bakþanka” en hann spurði strákinn hvað hann hefði nú selt, þessum eina viðskiptavini mikið.“Fimm milljónir eitthundrað nítíu og þrjú þúsund níu hundruð þrjátíu og sjö” svaraði strákurinn.“Hvað seldirðu honum eiginlega”?  Spurði Kaupfélagsstjórinn alveg hissa.“Jú sjáðu til” sagði strákurinn, “fyrst seldi ég honum lítinn öngul, síðan seldi ég honum miðlungsstóran  öngul, þá stóran öngul, svo veiðistöng þá spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða.  Hann sagðist ætla að veiða í vatni uppi á heiði og þá sagði ég honum að hann þyrfti bát og seldi honum plastbát með 40. Ha utanborðsmótor.  Þá sagði maðurinn að hann gæti nú aldrei flutt bátinn á “Bjöllunni” sinni svo ég fór með hann í véladeildina og seldi honum nýjan Land-Róver”.  Nú var andlitið hálfdottið af Kaupfélagsstjóranum og hann sagði: “Maðurinn kemur hér inn til að kaupa einn lítinn öngul og veiðistöng og þú selur honum bæði bát og bíl”!“Nei, nei”, sagði strákurinn.  “Hann kom hingað til þess að kaupa dömubindi fyrir konuna sína og ég spurði hann að því að fyrst helgin væri hvort eð er ónýt, hvort ekki væri tilvalið fyrir hann að skella sér bara í veiði”!


ER EKKI LÁGMARK AÐ SKOÐA HLUTINA Í SAMHENGI ÁÐUR EN SVONA "RUGLI" ER SLENGT FRAM?

Þetta minnir mig á sumarið 1980, þá var ég á bát á Grundarfirði og þegar var kosið til embættis forseta, þurftum við sem vorum utankjörstaðar að fara á Stykkishólm til að kjósa.  Það varð úr, vegna þess hve margir við vorum (það var enginn kvenmaður í hópnum) þá var fengin lítill hópferðabíll í verkið.  Á leiðinni var ég spurður af sessunaut mínum hvort ég væri búinn að ákveða hvern ég ætlaði að kjósa?  Ég kvað já við því og þá spurði hann hvort ég ætlaði ekki að kjósa Vigdísi.  Þá spurði ég hann hvað mælti með því að ég ætti að kjósa hana?  þá svaraði hann: JÚ HÚN ER JÚ KONA.  Þetta átti sem sagt að vera ástæðan fyrir því að ég átti að kjósa hana. 


mbl.is Aðeins 4 konur komast á topp 20
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"SKÝJUM OFAR" - EN ERU ÁÆTLANIRNAR VARÐANDI BORGARLÍNUNA RAUNHÆFARI???

Og ef svo er, hvað gerir það að verkum?????


mbl.is Færri taka strætó en spáð var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BÚIÐ AÐ "JARÐA" ALLT SEM "BENSI FRÆNDI" HEFUR VERIÐ AÐ BULLA....

Það eina sem er eftir er að ESB fái formlegt dánarvottorð.  Svo það er ekkert eftir annað en að losa sig við hann og helst ríkisstjórnina eins og hún leggur sig.  Enda siglir þessi ríkisstjórn hraðbyri í kjölfar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Gunnarsstaða Móra, með það að verða sú versta í lýðveldissögunni og er þá mikið sagt.  Svo voru það stór mistök að mynda þetta "ríkisstjórnaróbermi".  Það sem átti að gera var að láta hina starfstjórnina sitja til vorsins (síðasta) og kjósa aftur í vor.  Þá hefði þjóðin losnað við að ýmsir "pótintátar",sem nú eru á þingi, hefðu farið þar inn. 


mbl.is Berskjaldaðri fyrir spákaupmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FÆRÐI FRÉTTABLAÐIÐ LESENDUM SÍNUM BÁÐAR HLIÐAR MÁLSINS???

Ekki gat ég séð það.  Á hverju byggja þessi fyrirtæki ákvörðun sina, hver sem hún verður???? Og það má ekki gleyma því að það er aldrei alfarið annars sök þegar tveir deila.  Er það ekki frekar lágt lagst, þegar fjölmiðill reynir að auka´útbreyðslu sína með neikvæðri umræðu um þjóðþekktan einstakling og fær til liðs við sig fyrrverandi sambýliskonu hans?  Ekki kom neins staðar fram hans hlið á málinu.  Kannski skipti hún engu máli og hefði kannski síður orðið til þess að auka lestur blaðsins????


mbl.is Endurskoða samninga við Fjallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ HEFUR VERIÐ TALAÐ UM AÐ "HEFÐ" SÉ KOMIN Á EITTHVAÐ ÞEGAR ÞAÐ HEFUR VIÐGENGIST Í 30 ÁR EÐA LENGUR OG ÁÐUR EN ÞESSI TÍMI KEMUR ER EKKI HÆGT AÐ TALA UM HEFÐ...

Fyrir það fyrsta þá er engin hefð komin á þennan atburð og í öðru lagi þá skýtur það skökku við að þar sem kristnir eru í meirihluta eigi að fagna lokum múslimskrar föstu, ég veit ekki til að múslimar séu neitt að taka þátt í eða fagna hátíðum eða hátíðarlokum kristinna manna.  Trump er þarna að stoppa múslimadekrið og eftirlátssemina í forverum sínum og reyna að sporna við útþenslustefnu múslima.....


mbl.is Enginn kvöldverður við lok Ramadan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LESA KANNSKI BETUR Í STÖÐUNA EN MARGIR AÐRIR?????

Kannski þeir lesi bara betur úr markaðnum en margir aðrir? Við vitum að öll hrun eru "plönuð" en það þarf að "lesa" rétt í fyrirboðana því það er þannig að ekkert hrun kemur alveg upp úr þurru (það er alltaf einhver aðdragandi). Og kannski 3eru þeir að "mýkja" fyrirsjáanlegan skell????


mbl.is Kaldir að segja fjölda flugmanna upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÚ VILL DAGUR ÞRENGJA ENN MEIRA AÐ FLUGVELLINUM....

Það "pirrar" hann þessi þvermóðska í Jóni Gunnarssyni.   Nú á bara að láta hart mæta hörðu og taka skipulagsvaldið af Reykjavík, vegna flugvallarins með lögum.  Þetta hefði átt að gera strax þegar Höskuldur Þór Þórhallsson kom fram með þá tillögu að taka skipulagsvaldið af þeim sveitarfélögum sem höfð alþjóðaflugvöll innan sinna vébanda.  En einhverra hluta vegna var það frumvarp aldrei lagt fram á Alþingi.  Ef það hefði verið gert hefði það sparað mikinn tíma, fé og skotgrafahernað.  Hvað skyldi verða gert núna???


mbl.is Aukning við flugvöllinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ALLT SEM BENDIR TIL AÐ NÚ SÉ "UPPGANGSTÍMINN" Á ENDA.......

Núna síðustu vikurnar og mánuði hafa verið að koma merki um að nú sé "uppgangstímanum" að ljúka og héðan af liggi leiðin í efnahagslífinu niður á við.  En hvaða merki eru þetta?  Ekki verða öll merkin tekin heldur bara örfá og til dæmis; Hótel Bjarkarlundur er til sölu, 30% færri ferðamenn til Vestfjarða en í fyrra, frestað hótelbyggingu á Seyðisfirði, hótelbyggingu á Akureyri slegið á frest og gengi krónunnar er þar afsökun, hótel á Leirárbakka til sölu, enn ein breyting á hóteli á "Hörpureitnum" og fleira.  Það er hætt við að fyrirtæki og almenningur, sem hafa skuldsett sig uppfyrir eyru verði í slæmum málum.  Og enn eitt merkið er að þegar KRÓNAN fellur gagnvart evru, þá er eitthvað stórt í vændum......


mbl.is Hefur veikst um rúm 4% gagnvart evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband