"TOO GOOD TO BE TRUE".............

Þegar menn ætla að hætta, þá þarf að segja henni upp, svoleiðis gengur þetta fyrir sig.  Ekki ætla ég að fara að verja gjörðir 365 sérstaklega en þeir hefðu mátt láta þetta ákvæði vera í samningnum til að taka af allan vafa en svona er almenna reglan og Sævar hefði nú alveg getað sagt sér það, að hitt sem hann var að ímynda sér væri "of gott til að vera satt" ef fólk fær svoleiðis tilboð inn um lúguna hjá sér, er betra að fara að hugsa sinn gang. 
mbl.is Dýrkeypt HM-áskrift í mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm löglegt en siðlaust eins og svo margt annað.  HVer reynir að skara að eigin köku í harðærinu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2011 kl. 10:36

2 Smámynd: Hafsteinn Björnsson

365 leiðrétti minn reikning án vandræða, svo þeim er nú ekki alveg alls varnað.

Hafsteinn Björnsson, 9.3.2011 kl. 11:36

3 identicon

Er ekki eðlilegra Ásthildur að þeir sem ætli að hætta láti vita en að þjónustunni sé lokað hjá öllum nýjum áskrifendum og þeir sem vilja vera áfram þurfa því að standa í því að panta aftur?

Hvernig væri nú að prófa að hugsa í heilan hring.....

Kristmann (IP-tala skráð) 9.3.2011 kl. 14:14

4 identicon

Ég segi það sama og annarstaðar Kristmann. Þú ert rukkaður fyrirfram og ef þú ekki borgar reikninginn er lokað á þig. Er það ekki eðlilegt? Þú átt ekki að þurfa að hringja í þá til að segja þeim að þú ætlir ekki að borga..

Þórdís (IP-tala skráð) 9.3.2011 kl. 17:01

5 identicon

Þetta er voða einfalt, ef maður vill ekki áskriftina þá sleppir maður því að borga. Óttalega kjánalegt að væla í öðrum fyrir að hafa veitt sér þjónustu sem maður greiddi óvart fyrir.

bullarinn (IP-tala skráð) 9.3.2011 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband