Í SVONA LAGAÐ ERU TIL NÆGIR FJÁRMUNIR.............................

Að henda svona peningum í GÆLUVERKEFNI og það sem meira er ÞAÐ ERU MJÖG LITLAR LÍKUR TIL ÞESS AÐ ÞETTA BRÖLT EIGI EKKI EFTIR AÐ SKILA ÞJÓÐINNI EINU EÐA NEINU.  Meira að segja meirihluti Alþingis, sem ekki hefur verið í takti við þjóðarviljann hingað til, er farinn að sjá að þetta er "feigðarflan" og á sér engan hljómgrunn meðal meirihluta þjóðarinnar.  En Heilagri Jóhönnu og meðreiðarsveinum hennar hefur ekki fundist neitt mál að skera niður í heilbrigðisgeiranum til að fá fjármuni í þetta.
mbl.is 7 milljónir í endurfundi stjórnlagaráðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  (netauga)

Svona er bara stjórnsýslan í hnotskurn.

(netauga), 19.4.2012 kl. 00:09

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er með þetta mál eins og flest mál ríkisstjórnarinnar, Jóhann, þjóðin er á öndverðum meiði. Vilji þjóðarinnar kom skýrt fram í ólöglegu kosningunni til stjórnlagaþings. Þá varð ljóst að þjóðin vildi ekki fara þessa leið og því átti að draga í land á þeirri stundu. En Jóhanna vildi og ætlaði að troða þessu á þjóðina, með sinni einstæðu frekju.

Afraksturinn er eftir því, moðsuða sem kallast tillaga til nýrrar stjórnarskrár. Reyndar vilja flestir tuttugu og fimm menningarnir kalla þetta nýja stjórnarskrá, en það getur aldrei orðið. Afrakstur þeirra er með þeim ósköpum að það getur aldrei orðið að einu né neinu.

Þegar farið er af stað með eitthvað verkefni, þegar ákveðið er að breyta einhverju, þarf að liggja fyrir þörf fyrir slíka breytingu. Ekki hefur verið sýnt fram á slíka þörf í þessu tilfelli. Vissulega þarf að skýra einstaka grenar stjórnarskrárinnar, en að þörf sé á nýrri er fjarri lagi.

En það skiptir ekki máli fyrir Jóhönnu, þetta er hennar gæluverkefni og það skal framkvæmt, sama hvað það kostar og sama þó þjóðin sé henni ósammála!

Gunnar Heiðarsson, 19.4.2012 kl. 04:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband