Föstudagsgrín

 

Og svo var það ljóskan sem fékk þennan gífurlega áhuga á dorgveiði.
Hún varð sér út um allan búnað til þess arna, veiðigræjur, borsveif, stól og hvað ekki.
Nú, svo var að skella sér í veiði. Hún kom sér fyrir úti á ísnum, settist á stólinn og fór að bora.   Þá gall við rödd sem sagði: "Hér er enginn fiskur." 
Henni varð bylt við og leit í kringum sig en sá engan. Hún færði sig um set. 
Á nýjum stað kom hún sér fyrir settist á stólinn og fór að bora. 
Og aftur gall við röddin: " Hér er enginn fiskur."
Aftur tók hún saman græjurnar og færði sig um set.
Og sem hún byrjar aftur að bora gellur við röddin: "Hér er enginn fiskur."
Hún lítur í kringum sig, upp í loftið og allt í kring en sér engan.
Hún spyr með titrandi röddu.
"Er..., er þetta Guð?"
"NEI! Þetta er umsjónamaður skautahallarinnar og hér er engan fisk að hafa..."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahahaha góður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.5.2013 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband