Föstudagsgrín

Miðaldra maður í Ameríku keypti sér nýjan Mercedes sportbíl til að halda uppá það að konan hans fór frá honum. Fór svo í bíltúr um kvöldið til að sýna sig og sjá aðra. Topp lúgan var dregin niður og vindurinn blés í þær hárlýjur sem ennþá prýddu höfuð hans. Hann gaf hressilega í og þegar hraðamælirinn sýndi 180 sá hann skyndilega að baki sér lögguna með blikkandi ljósin. Hmrmff... þeir ná mér aldrei á Mercedes Bens og hann gaf í... og gaf aftur í  Þá tók skynsemin völdin og hann sagði við sjálfan sig "Hvað er eiginlega að mér?" ..hægði á og keyrði út í vegarkantinn.  Löggan kom að honum leit á ökuskírteinið og grandskoðaði bílinn: "Þetta hefur verið langur vinnudagur" sagði hann "ég er að ljúka vaktinni og það er  föstudagurinn 13. Ég nenni ekki meiri pappírsvinnu, og hef engan áhuga á  yfirvinnu, - ég gef þér séns.  Ef þú getur komið með góða afsökun fyrir þessum ofsahraða sem þú fórst á, betri en ég hef nokkru sinni heyrt, þá læt ég þig sleppa í þetta sinn" Karlinn hugsaði sig um nokkra stund og segir loks: "Kellingin stakk af fyrir nokkrum dögum með lögreglumanni. Ég var, skal ég segja þér, svo hræddur um að þú værir að skila henni"

  "Góða helgi" sagði löggan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Góður Jóhann! Mb.Kv.

Helga Kristjánsdóttir, 9.2.2018 kl. 04:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband