Föstudagsgrín

Gamall maður bjó einn í Þykkvabænum. Hann langaði til þess að stinga upp kartöflugarðinn sinn, en það var mikil erfiðisvinna. Bubbi sonur hans, var sá eini sem hann hafði getað fengið til að hjálpa sér. En Bubbi var lokaður inni á Hrauninu. Gamli skrifaði honum bréf og sagði honum frá vandræðum sínum: Elsku Bubbi minn, Æ, mér líður hálf-illa, því það lítur út fyrir að ég geti ekki sett neinar kartöflur niður í garðinn þetta árið. Ég er bara að verða of gamall til þess að vera að stinga upp beðin. Ef þú værir hérna, ætti ég ekki í neinum vandræðum, því ég veit að þú mundir stinga upp beðin fyrir mig. Kær kveðja til þín, elsku sonur Pabbi. Eftir örfáa daga, fékk hann bréf frá syni sínum : Elsku Pabbi Í GUÐANNA BÆNUM, ekki stinga upp garðinn ! Ég gróf ránsfenginn og byssurnar þar ! Þinn Bubbi.  Í birtingu morguninn eftir komu hópar lögregluþjóna frá embætti Ríkislögreglustjóra og Selfosslögreglunni og umbyltu öllum beðunum, en fundu hvorki þýfi né byssur. Þeir báðu gamla manninn afsökunar og hurfu á braut. Sama daginn fékk hann annað bréf frá syninum : Elsku pabbi Drífðu nú í því að setja niður kartöflurnar. Við núverandi aðstæður get ég ekki gert betur.

Þinn elskandi sonur Bubbi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

 mjög svo góður þessi/Jóhann hafðu góða helgi/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 8.5.2009 kl. 17:21

2 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Jóhann, ég held að þetta sé sá besti sem þú hefur sett á bloggið sem föstudagsgrín  takk fyrir að við getum farið brosandi inn í helgina.

kær kveðja og góða helgi

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 8.5.2009 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband