ER NIÐURLÆGINGARTÍMABIL HAMILTONS ÞAR MEÐ AÐ HEFJAST???????

Reyndar held ég að það hafi hafist þegar hann tók ákvörðun um að ganga til liðs við Ferrari á næsta tímabili en jafnframt að keppa fyrir Mercedes þetta tímabil.  Þetta tel ég að hafi verið ákvörðun, sem gerði það að verkum, að hann stútaði ferli sínum í Formúlunni algjörlega.  Mercdes-lið er algjörlega hætt að leggja nokkra áherslu á hann sem sést best á því að Russel er búinn að "kaffæra" hann í ÖLLUM keppnum ársins og með sama áframhaldi verður stigasöfnunin ekki upp á marga fiska það sem eftir er af þessu tímabili.  Og því miður,  verð ég að segja því Ferrari er mitt lið. þá hefur Ferrari-bíllinn ekki náð þeim stöðugleika, sem þarf til þannig að það verðu erfitt fyrir hann að gera einhverja "rósir" þegar þangað er komið.  Ég er hræddur um að Ferrari hafi gert stór mistök þarna.......


mbl.is Versta byrjun Mercedes í Formúlu 1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Mitt er Toyota!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 20.4.2024 kl. 16:40

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góður Sigurður.  Vandamálið er að Toyota var með lið í Formúlunni en þeir hættu fyrir nokkrum árum, ég man ekki alveg hvaða ár það var sem Toota hætti en ég man að Ralf Schumacher keyrði fyrir þá(bróðir Michaels Schumachers), svo þú þarft eiginlega að finna þér eitthvað annað lið wink

Jóhann Elíasson, 20.4.2024 kl. 17:34

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

En niðurlægingartímabil íslenskra stjórnmála tekur aldrei enda!(sama hver er við stýrið)

Sigurður I B Guðmundsson, 20.4.2024 kl. 21:13

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nei Sigurður, ætli það  sé ekki vegna þess að Íslenskir stjórnmálamenn eru með MJÖG LITLA sómakennd....

Jóhann Elíasson, 20.4.2024 kl. 22:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband