ÞAU SETTU ÞENNAN "VINSTRISTIMPIL" Á SIG SJÁLF OG FESTU HANN RÆKILEGA

Þannig að það var nú hægara sagt en gert að ná honum af í einu vettvangi en þau voru búin að vinna eins og aðrir í "Vinstri Hjörðinni" allt kjörtímabilið.


mbl.is Hefði átt að þvo vinstristimpilinn af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

51 SIGUR HAMILTONS

Þar með hefur hann jafnað Alan Prost, sem er annar sigursælasti ökumaðurinn í Formúlu 1 en Michael Scumacher er í fyrsta sætinu og verður þar eitthvað áfram.  Það var nú svo sem ekki mikið sem gerðist þarna í þessum kappakstri nema Massa tókst alveg ótrúlega vel upp við að halda Sergio Perez aftan við sig eða í tæplega 18 hringi og er það alveg aðdáunarverður árangur.  Þá var það ekki nokkur spurning að Raikkonen færi fram úr Nico Hulckenberg, þegar fimm hringir voru eftir en Hulckenberg var þrjóskur og reyndi of mikið að halda Raikkonen fyrir aftan sig, sem endaði með því að hann seri bílnum og missti að tvo bíla fram fyrir sig, enda voru dekkin hjá honum mikið slitnari og í verra ásigkomulagi en hjá Raikkonen.  En hasar dagsins átti Max Verstappen, þegar hann í örvæntingu sinni við að halda Sebastian Vettel fyrir aftan sig, fór alltof vítt í eina beygjuna, náði henni ekki fór út úr brautinni, sleppti beygjunni og kom inná hana framan við Vettel.  Honum var sagt í talstöðina, af liðsfélögum, að hann yrði að hleypa Vettel framúr enn það gerði hann ekki, þannig að dómarar keppninnar refsuðu honum um fimm sekúndur og varð niðurstaðan sú að Sebastian Vettel varð þriðji, Daniel Ricciardo varð fjórði og Max Verstappen varð í fimmta sæti.  Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Max Verstappen lætur keppnisskapið bera sig ofurliði, hann var búinn að fá aðvörun en nú eru dómararnir farnir að taka hann föstum tökum.  Það er bara einfalt hann verður að virða reglurnar eins og aðrir.  Vonandi  er að hann læri bara af þessu, en ég get ekki neitað því að strákurinn er í svolitlu uppáhaldi hjá mér og það er alveg klárt að þarna er framtíðar heimsmeistari á ferðinni.  Þegar tvær keppnir eru eftir á tímabilinu er bilið milli Rosbergs og Hamiltons einungis 19 stig, Rosberg í hag og ljóst að það má ekkert klikka hjá hvorugum til að "ballið" sé búið.  Svona viljum við hafa það spennu alveg þar til í lokin..


mbl.is Gerði það nauðsynlega - Verstappen refsað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ SEGJA AÐ ÞESSI MAÐUR ÞJÁIST AF MINNIMÁTTARKENND

En á móti er hægt að segja að ofmat á eigin ágæti sé svo sem til staðar.  Það verður ekki séð að hann hafi nokkra burði til að leiða ríkisstjórn, það sem hann myndi gera er að INNLIMA landið í ESB og leiða landið til efnahagslegra glötunar með þessu myntráði sínu og að tengja krónuna við evruna....


mbl.is Eðlilegt að Viðreisn fái umboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER NÁTTÚRULEGA HÁMARK NIÐURLÆGINGARINNAR........

Að formaðurinn skuli "sleppa" inn á þing sem UPPBÓTARÞINGMAÐUR, þar af eru TVEIR uppbótarþingmennog aðeins EINN kjördæmakjörinn. Hver af þesssum ÞREMUR verði ÞINGFLOKKSFORMAÐUR? Einhverjir myndu segja: "Nú er Snorrabúð Stekkur"..... cool


mbl.is Oddný: Leyfum nóttinni að líða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"BJÖRGUNARBÁTURINN" ER BARA AÐ GERA MUNN BETRI HLUTI EN "MÓÐURSKIPIÐ"

Björt Framtíð bjargaði sér úr brotsjónum á meðan LANDRÁÐAFYLKINGUNA rak stjórnlausa upp í fjöru.  Skipstjóranum og áhöfn tókst ekki að koma akkerinu út.  Ætli þeim takist að ná skipinu út aftur, eða skiptir skipstjórinn yfir í hlutverk útfararstjóra?


mbl.is Sigur að halda flokknum á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. október 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband