ÞRÁTT FYRIR EINSTAKLEGA ÞUNNA "AFREKASKRÁ" ER RÍKISSTJÓRNIN MEÐ 50% FYLGI????????

Hvernig í ósköpunum getur þetta staðist??????  Var helmingur þeirra sem var spurður að vinna í stjórnarráðinu????  Hvernig er eiginlega þetta "úrtak" valið????  Þegar 30% svara ekki þá eru skekkjumörkin orðin ansi mikil og spurning hversu marktæk könnunin er.
mbl.is Helmingur styður ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorvaldur Guðmundsson

Er ekki enn undarlegra að hrunaflokkurinn (sjálfstæðisflokkurinn) skuli auka við fylgið. Fólk er fljótt að gleyma.

Þorvaldur Guðmundsson, 1.2.2010 kl. 23:10

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að fólk sé bara farið að sjá að þessir svokölluðu "hrunflokkar" eru bara BETRI kostur en sú ríkisstjórn sem við sitjum uppi með.

Jóhann Elíasson, 1.2.2010 kl. 23:14

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það má Steingrímur eiga að hann er snillingur í að sundra og samstöðulaust fók er ráðvilt.  Samstaða var það eina sem þurfti til að troða þessu Icesave máli öfugu ofan í kokið á Hr. Brown.

  Steingrímur valdi ekki samstöðu heldur beitti öllu sínu afli í að sundra þingi og þjóð með Evrópukjaftæði og svo með því að reyna að neyða okkur til að borga lán sem var dreift til Breta og Hollendinga.  Við fengum ekki þessa peninga, nei við áttum að borga þá. 

Hrólfur Þ Hraundal, 1.2.2010 kl. 23:30

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ástæðan er einföld og afar skiljanleg. Mér finnst þó ástæða til að efast um að D listinn hafi fengið svona mikið fylgi. Þrátt fyrir mikla vanburði vinstri stjórnarinnar þá býr fólk nú enn að óttanum við afglapana úr hrunstjórninni enda þótt helmingur hennar hafi náð fylgi vegna afneitunar á hugmyndafræðinni sem olli sólmyrkva efnahagslífsins.

Árni Gunnarsson, 2.2.2010 kl. 00:07

5 Smámynd: Björn Birgisson

Bara svona til að pirra síðueiganda. Fylgi við stjórnina er að aukast. 32% þjóðarinnar virðast hafa nærst á spillingunni og gefa sig upp samkvæmt því. Þetta er dálítið hærri spillingartala en menn héldu að gilti um óflekkaða Ísland. Könnunin rennir stoðum undir hana. Verkefnin eru því næg.

Björn Birgisson, 2.2.2010 kl. 00:28

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Björn, ég pirrast nú ekki mikið ég verð bara dapur yfir því hve fólk er blint og finn bara til vorkunnsemi.

Jóhann Elíasson, 2.2.2010 kl. 08:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband