EIGUM VIÐ AÐ FYLGJA FYRIRMÆLUM ESB - SAMA Á HVERJU GENGUR OG ÞÓ SVO AÐ ÞAÐ EIGI EKKI LENGUR VIÐ?????

Um miðjan sjötta áratuginn var nokkuð mikil vakning hjá Íslenskum stjórnvöldum þess efnis að ganga í ESB (þá EBE).   Þáttur í þessu var að Ísland varð, að kröfu ESB að taka upp virðisaukaskatt (en það átti að vera samræmt í öllum ESB-ríkjunum).  Hver sem  ástæðan var þá létu stjórnvöld fara fram „úttekt á fýsileika þess að tekinn yrði upp virðisaukaskattur á Íslandi“.  Úttektina gerði Jón Sigurðsson, sem síðar varð Efnahagsráðherra á vegum Alþýðuflokksins og enn síðar Seðlabankastjóri, skilaði hann svo þessari skýrslu af sér árið 1971.  Þátt fyrir að margar skýrslur væru unnar og mörg álit skrifuð um virðisaukaskatt, þá var hann ekki innleiddur  hér á landi fyrr en árið 1990 (reyndar átti að taka upp virðisaukaskatt með lögum árið 1989, en einhverra hluta vegna var því frestað til 1 janúar 1990)  Nú hefur virðisaukaskattskerfið verið við lýði í 34 ár og komin reynsla á að það er MEINGALLAÐ, MJÖG DÝRT Í REKSTRI, AFSKAPLEGA FLÓKIÐ og UNDANÞÁGUR  Í ÞVÍ ERU MJÖG MARGAR.  Þarna er eingöngu „tæpt“ á helstu ágöllum á virðisaukaskattskerfinu að taka fyrir alla gala og „kosti“ virðisaukaskattskerfisins, væri efni í heila bók auk þess að æra óstöðugan.  En nú eru landsmenn búnir að búa við virðisaukaskattkerfið í rúmlega 34 ár og því er með góðu móti hægt að segja að komin sé allnokkur reynsla af því . Sem dæmi má nefna að þeir sem mest höfðu  sig í frami gagnavart því að virðisaukaskattkerfið yrði tekið upp fullyrtu að söluskattskerfið, sem þá var í gildi og var tekið upp  árið 1960,  „VÆRI ORÐIÐ GAMALT OG ÚR SÉR GENGIГ þessi orð voru  látin falla árið 1984. En er þá ekki kominn tími til að endurskoða virðisaukaskattkerfið sem er búið að ver við lýði síðan 1990?  En hvað ætti þá að koma í stað virðisaukaskattskerfisins?  Svarið er einfalt, það er VELTUSKATTUR,  þar sem öll fyrirtæki landsins greiddu ákveðna prósentu af veltu fyrirtækisins og væri ENGIN undaþága veitt á því.  Þessi prósenta yrði 6,00% og af því leiddi að tekjuauki ríkisins yrðu, miðað við gögn sem ég hef undir höndum milli 60 – 80 milljarðar ári.   Ástæða þess að ég valdi þessa prósentutölu var sú að ríkissjóður er algjörlega tómur og þarf á auknum tekjum að halda, en ef tekjur ríkisins ættu að verða óbreyttar frá því sem þær eru í dag ætti veltuskattsprósentan að vera rétt rúmlega 4,50%.  Á þessu sést hversu gífurlega miklu munar um hvert prósentustig.

 

VIRÐISAUKASKATTUR – VELTUSKATTUR

Virðisaukaskattur skiptist í útskatt og innskatt.  Útskattur er sá skattur sem er greiddur af tekjum sem viðkomandi greiðir af þeim tekjum sem hann hefur af starfsemi sinni. En innskattur er það sem viðkomandi fær endurgreitt af hráefniskaupum og öðrum kostnaði sem fellur til vegna starfseminnar.   Hér á landi er virðisaukaskatturinn í tveimur þrepum annars vegar 24% og hins vegar 11%, það fer eftir starfsemi viðkomandi fyrirtækis í hvoru virðisaukaskattsþrepinu fyrirtækið lendir.  Það fyrirtæki sem er með allar sínar tekjur í 11% þrepinu en hráefniskostnaði og annan rekstrarkostnað í 24% þrepinu, lendir undantekningalaust í því að innskatturinn verður hærri en útskatturinn, það er að segja að fyrirtækið fær endurgreiddan virðisaukaskatt og þá skiptir engu máli hvort hagnaður er af rekstrinum eða ekki.  Og svo greiða fyrirtæki sem selja framleiðslu sína erlendis ekki virðisaukaskatt en þau fá greiddan innskatt af hráefniskostnaði sínum og öðrum rekstrarkostnaði, til dæmis fékk stóriðjan í landinu endurgreiddan VSK 56,573 milljarða á virði ársins 2011,  á núvirði, reiknað í byrjun febrúar 2023,  105,732 milljarðar.  Veltuskattur er, eins og nafnið gefur til kynna, skattur sem er lagður á sem hlutfall af veltu (verð x magn).   Einungis er sá skattur í einu þrepi og engar undanþágur eru, þetta gerir það að verkum að eftirlit er fremur einfalt og þar af leiðandi er minni hætta á að kerfið verði misnotað.  Eins og áður hefur komið fram, þá er munurinn á að  reka þessi  tvö kerfi alveg gríðarlegur og kannski vegna þess má reikna með að gífurleg andstaða verði við að leggja virðisaukakerfið niður og taka upp veltuskatt, því það er nokkuð ljóst að starfsmönnum við eftirlit myndi fækka nokkuð mikið, svo er það mjög viðkvæmt vegna þess að VSK er eitt af skilyrðunum fyrir ESB aðild og eitt af grunnskilyrðum fyrir EES samningnum.  En sjái stjórnvöld að ekki sé grundvöllur fyrir því að leggja VSK niður og taka upp veltuskatt, þá verður að gera breytingu virðisaukaskattlögunum og setja í LÖG að ekkert fyrirtæki eða einstaklingur fái meir greitt úr virðisaukskattkerfinu enn  hann hafi greitt i það.  Það gefur auga leið að þegar skattþrepin í virðisaukaskattinum eru þrjú eins og er hér á landi (0% skatturinn er líka þrep, þá er 11% þrep og síðast er 24% þrep).  Það er ekki bara stóriðjan sem fær endurgreiddan VSK (þótt vissulega fái hún mest), útgerðin fær nokkuð mikið, ferðaþjónustan er mjög stórtæk og svo er bókaútgáfa með nokkuð mikið.  Það er nokkuð augljóst að fyrirtæki sem eru með sínar tekjur í 11% og kostnaðinn í 24%, fær verulega endurgreidd úr VSK kerfinu og ég tala nú ekki um þá sem hafa tekjur sínar í 0%.  EN TIL ÞESS AÐ FÁ SVIPAÐAR TEKJUR OG TEKJUAUKA ÚT ÚR VSK KERFINU OG AÐ VERA MEÐ VELTUSKATT ÞYRFTI AÐ VERA MEÐ EITT VIRÐISAUKASKATTSÞREP AР UPPHÆÐ 11%.   EN  YRÐI VSK ENN OFANÁ YRÐI AÐ FÆKKA UNDANÞÁGUM Í VSK KERFINU VERULEGA MIKIÐ OG ÞAR MEÐ AÐ EINFALDA ÞAÐ MIKIÐ.

ÞEGAR KOMIÐ ER Í LJÓS AÐ SAMNINGURINN UM EES ER FARINN AÐ VALDA LANDINU VERULEGUM  FJÁRHAGSLEGUM SKAÐA AUK ALLS ANNAR SKAÐA SEM HANN ER FARINN AÐ VALDA ÞÁ ER TÍMI TIL ALVARLEGRAR ENDURSKOÐUNAR OG JAFNVEL AÐ SEGJA SAMNINGNUM UPP.  AF ÞESSU TILEFNI ER RÉTT AÐ RIFJA ÞAÐ UPP AÐ KANADA GERÐI TVÍHLIÐA SAMNING VIÐ ESB, SEM VAR MUN HAGKVÆMARI FYRIR ÞÁ EN EES SAMNINGURINN ER OKKUR OG Í OFANÁLAG ÞURFA KANADAMENN EKKI AÐ TAKA UPP NEINAR ESB REGLUGERÐIR........


HVER BER ÁBYRGÐ Á HUNGURSNEYÐINNI Á GAZA??????????

Horfði á "fréttaskýringarþátt" á erlendri sjónvarpsstöð áðan.  Þar var meðal annars verið að tala um yfirstandandi hungursneyð á Gaza ströndinni og meðal annars kom þar fram að almennir borgarar í Ísrael koma í veg fyrir að flutningabílar með neyðaraðstoð komist á Gaza.  Þegar fréttamenn stöðvarinnar spurðu hvers vegna þeir væru að koma í veg fyrir að hjálp bærist var svarið: "UM LEIÐ OG HAMAS-LIÐAR LÁTA GÍSLANA LAUSA, SEM ÞEIR TÓKU 7. OKTÓBER Í FYRRA, FÁ FLUTNINGABÍLARNIR AÐ FARA Í GEGN"....


mbl.is Hernaðaraðgerð við sjúkrahúsið Al-Shifa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VERÐUR WORLD ECONOMIC FORUM MEÐ TVO FRAMBJÓÐENDUR Í FORSETAKOSNINGUNUM Á ISLANDI????

Fari Katrín fram er það staðreynd.  En hvorug þeirra kemur til með að viðurkenna það og sennilega er enginn fjölmiðill hér á landi sem gengur eftir því að þær svari því.  En kallast þetta ekki inngrip í Íslensk innanríkismál og er fólk sem er tilbúið til að "selja" landið sitt til erlendra afla ekki kallað Quislingar????????


mbl.is Halla Tómasdóttir ætlar í forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OG ÉG SEM HEF ÁVALLT LITIÐ Á HANN SEM MJÖG SKYNSAMAN MANN......

En þjóðarinnar vegna, vona ég að hann hafi nú bara farið "VEGGMEGIN" framúr rúminu í morgun........


mbl.is Segir Katrínu verða næsta forseta Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VAR ÞAÐ DAGSSKIPUNIN AÐ ÞAÐ ÆTTI AÐ DÆMA ÞESSA STRÁKA FYRIR "EITTHVAÐ"??????

Því annars væri verið að horfa til þess að ríkið væri að horfa til gífurlegra SKAÐABÓTAKRAFNA.  Þessir tveir ungu menn voru mánuðum saman í gæsluvarðhaldi, þeir voru nafngreindir alveg frá upphafi  og myndir birtust af þeim í fjölmiðlum, þetta þýðir að ÞEIR EIGA SÉR EKKI NOKKRA MÖGULEIKA HÉR Á LANDI EFTIR ÞESSI ÓSKÖP.  Þetta mál er búið að vera algjör "FARSI" frá upphafi og er gott dæmi um það hvernig á EKKI að meðhöndla mál.  Fyrstu mistökin, sem voru gerð í þessu máli, var að hlaupa með þetta í fjölmiðla og reka málið þar.  Þetta mál er komið í flokk með "Guðmundar- og Geirfinnsmálinu" og ekki er ég alveg viss um að það sé ekki alveg það sem Dómskerfið hér á landi vill sjá....


mbl.is Ríkið greiðir bróðurpart málsvarnarkostnaðar Sindra og Ísidórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞETTA ER VANDAMÁLIÐ - ÞAÐ TEKUR ENGINN ÁBYRGÐ Á NEINU, ÁBYRGÐINNI ER ALLTAF VARPAÐ Á EINHVERN ANNAN........

Er það ekki Samgöngustofu  að sjá til þess að skólinn fari að lögum og hvernig stendur á því að þeir standa ekki sína "plikt"??  Þetta á við fleiri eftirlitsstofnanir og virðist vera að þetta sé sérstaklega slæmt í "hælisleitendaiðnaðinum".......


mbl.is Líta leigubílasvindl alvarlegum augum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EÐLILEGAST VÆRI AÐ HINGAÐ TIL LANDS KÆMI "ENGINN" HÆLISLEITANDI Á MEÐAN VERIÐ ER AÐ KOMA ÞESSUM MÁLAFLOKKI Í LAG.....

Lengi hefur sá orðrómur verið í gangi að mikið fjármagn "LEKI" úr landi í gegnum hælisleitendur.  En hvernig má það vera því þetta er eiginlega 100% allslaust og eignalaust fólk?  Jú hér kemur skýringin: ÞETTA FÓLK ER ALFARIÐ Á OKKAR KOSTNAÐ, ÞEIR FARA Í FJÖLSKYLDUHJÁLPINA OG ÖNNUR HJÁLPARSAMTÖK OG FÁ ÞAR MAT, SVO FER ÞETTA LIÐ Á HJÁLPRÆÐISHERINN OG FÆR AÐ BORÐA FRÍTT, ÞÁ FÆR ÞETTA FÓLK SVOKÖLLUÐ "BÓNUSKORT (en þetta eru inneignarkort fyrir ákveðinni upphæð í hverjum mánuði til að kaupa inn matvæli og aðrar nauðsynjavörur).  VEGNA ÞESS AÐ ÞETTA FÓLK ER BÚIÐ AРLÆRA INN Á "KERFIÐ" (þetta er kallað að vera "kerfisfræðingur"), HVERNIG Á AРFÁ ALLT FRÍTT HÉRNA ÞÁ GETA ÞEIR SELT BÓNUSKORTIN SÍN (til þess að skapa einhverja EFTIRSPURN eftir þessum KORTUM verður að  selja þau með einhverjum afföllum skilst mér að nokkuð mikil eftirspurn sé eftir þeim í "fíkniefnaheiminum").  Ég tók þessum sögum með miklum fyrirvara og fannst þetta frekar fjarstæðukennt, en fór svo að hugsa málið eftir að upplifa það ég var staddur á pósthúsinu í Reykjanesbæ síðastliðinn miðvikudag um klukkan 14:00, þar var maður að frá Palestínu að senda 50.000 krónur til Palestínu.  Með því að senda þetta lága upphæð er EKKERT spurt um uppruna peninganna og ekkert þarf að gera grein fyrir neinu.  Daginn eftir var ég staddur í banka í Reykjanesbæ og þar var maður frá Venesúela að senda SÖMU UPPHÆÐ "heim".  Ekki er þetta stór upphæð og ætti ekki að hafa mikil áhrif á efnahag landsins, en stöldrum nú aðeins við, ef við gefum okkur að 5.000 manns sendi 50.000 krónur á mánuði úr landi þá eru þetta 250 milljónir á mánuði sem gera ÞRJÁ MILLJARÐA Á ÁRI.  GÆTU EKKI VERA FLEIRI SVONA "LEKAR" Í KERFINU? Það er kannski möguleiki á því að eitthvað dragi úr þessum "GJALDEYRISLEKA" úr landinu þegar FJÖLSKYLDUHJÁLPIN hætti starfsemi seinna á árinu? En sennilega kemur "GÓÐA FÓLKIÐ" einhverju "úrræði" á koppinn í staðinn.  OG SVO ERU MENN ALVEG "KJAFTBIT" Á ÞVÍ AÐ ÞAÐ SÉ VERÐBÓLGA Í LANDINU.  Svo er eina ráðið í baráttunni við verðbólguna, sem stjórnmálamenn sjá, ER AÐ HÆKKA SKATTA.  HVERNIG VÆRI AÐ FARA BETUR MEÐ ÞAÐ FJÁRMAGN SEM RÁÐAMENN HAFA TIL RÁÐSTÖFUNAR????????


mbl.is Er hámarkið 50 hælisleitendur eða 500 á ári?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VEGNA ÞESS AÐ RÚV- OG HATARA "PLOTTIN" GENGU EKKI UPP EIGA ÞÁ ÍSLENDINGAR AÐ HÆTTA VIÐ ÞÁTTTÖKU?????

Menn gátu svo sem sagt sér það sjálfir að það yrði eitthvað vesen fyrst  "BAKBORÐSSLAGSÍÐUHJÖRÐINNI" á RÚV misheppnaðist.  Málið er bara að skásta lagið fór með sigur af hólmi en einhverra hluta vegna lenti lélegasta framlagið (framlag RÚV og Hatara) í öðru sæti og allt fór á hliðina.   RÚV-arar, Hatara og aðrar "Palestínusleikjur" verða bara að sætta sig við orðinn hlut.  Verði það niðurstaðan að Ísland sendi EKKI keppanda út á Eurovision, þá legg ég til að Ísland dragi sig endanlega út úr þessari keppni OG ÞAÐ FARI FRAM ENDURSKOÐUN Á TILVIST OG "HLUTVERKI" RÚV...................


mbl.is Ekki víst með þátttöku Heru Bjarkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VINNA ÍSLENSKIR ÞINGMENN OG RÁÐHERRAR AÐ ÞVÍ AÐ FRAMSELJA LANDIÐ ERLENDU YFIRVALDI?????

Það er löngu kominn tími til þess að stjórnmálamenn og aðrir landsmenn fari að skoða þau mál af einhverju viti og á gagnrýninn hátt.  Nú er það svo að samningurinn um  EES var gerður árið 1993 og tók svo gildi árið 1994.  En það virðist vera að árið 1994 hafi tíminn hér á landi bara hafa STOPPAРgagnvart þessum samningi en sú hefur síður en orðið raunin innan ESB.  Árið 1994 hét ESB EBE og byggðist samningurinn um EES á Rómarsáttmálanum en árið 2009 var Rómarsáttmálanum kastað fyrir róða og tekinn var upp svokallaður Lissabon sáttmáli, sem fól í sér miklar breytingar á EES sáttmálanum OG ÞAÐ MEIRA AÐ SEGJA GRUNDVALLARBREYTINGAR.  Í flestum aðildarríkjum ESB  fóru fram umræður og "kosning" um þessar breytingar (en það er deilt um hversu  lýðræðislegar þær kosningar voru því það var kosið um þær í hverju landi fyrir sig ÞAR TIL ÞÆR VORU  SAMÞYKKTAR HVORT SEM ÞURFTI AÐ KJÓSA ÞRISVAR SINNUM EÐA TÍU SINNUM) en það fór ekki fram nein kynning á þessum breytingum innan EFTA landanna.  Þessi breyting hafði í för með sér mun meiri MIÐSTÝRINGU FRÁ BRÜSSEL OG SAMNINGURINN NÁÐI TIL MUN FLEIRI ÞÁTTA EN ÁRIÐ 1993 ÞEGAR HANN VAR SAMÞYKKTUR.  Nú liggur fyrir Alþingi Íslendinga að Utanríkisráðherra ætlar að KEYRA Í GEGN frumvarp, BÓKUN 35, SEM FELUR ÞAÐ Í SÉR AÐ ÍSLENSK LÖG VÍKI FYRIR LÖGUM ESB ÞAR SEM ÞAU SKARAST.  ÞETTA SÝNIR FRAM Á NAUÐSYN ÞESS AÐ EES SAMNINGNUM VERÐI SAGT UPP HIÐ SNARASTA OG Í ÞAÐ MINNSTA ENDURSKOÐAÐUR.  SVO ER ÞAÐ ALVEG FORKASTANLEGT AÐ SJÁLFSTÆÐI LANDSINS SKULI STAFA MEST HÆTTA AF RÁÐHERRUM OG ÞINGMÖNNUM LANDSINS........ 


EKKJA NAVALNÍS????????????

Móðir Navalnís kom fram í löngu viðtali, þar sem hún sagði frá því að Alexei Navalní og Júlía Navalnaja, hafi SKILIÐ að borði og sæng fyrir fjórum árum, vegna meints framhjáhalds Júlíu Navalnaja og síðan hefðu verið mjög lítil og stirð samskipti verið milli þeirra tveggja og hún hefur verið í sambúð með öðrum manni allan tímann.  Svo er því haldið fram af meginstraumsfjölmiðlum hér á vesturlöndum að "SYRGJANDI EKKJU" sé að ræða.  HVAÐA LEIKRIT ER EIGINLEGA Í GANGI???????


mbl.is Ekkja Navalnís efnir til mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVERS VEGNA Í ÓSKÖPUNUM ER EKKI TEKIÐ Á ÞESSU MÁLI AF FULLRI HÖRKU???

Þarna er um að ræða ÁRÁS Á ÆÐSTU VALDASTOFNUN ÞJÓÐARINNAR.  Ég man ekki betur en að það hafi verið EINU SINNI ÁÐUR SEM HAFI VERIÐ GERT ÁHLAUP Á ALÞINGI.  Þá áttu í hlut svokallaðir "níumenningar" en atvikið átti sér stað í kjölfar hrunsins.  Lögreglan tók mjög hart á því og sættu ALLIR varðhaldi og voru lagðar fram kærur og rataði málið til Héraðsdóms Reykjavíkur.  Ekki man ég hverjar urðu lyktir málsins enda er það kannski ekki mergurinn málsins.  Þarna voru það Íslendingar, sem áttu hlut að máli og þá var tekið á málinu af fullri hörku en núna eru það "hælisleitendur" sem brjóta af sér og þá eru málin meðhöndluð á allt annan hátt.  HVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI????????


mbl.is „Mér bara dauðbrá“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VONANDI HEFUR EKKI ÞURFT AÐ GREIÐA "LAUSNARGJALD" TIL HAMAS FYRIR ÞETTA FÓLK????

Nóg er SOLARIS-fraukurnar skyldu brjóta lögin um stuðning við hryðjuverk og peningaþvætti verðum við að vona að stjórnvöld fari ekki þessa leið,SEM MYNDI BARA ÝTA UNDIR OG LEIÐA TIL ÞESS AÐ LÖGLEYSA OG ÖNGÞVEITI BÚI UM SIG Í LANDINU.  VONANDI FER FRAM OPINBER RANNSÓKN Á "VINNUBRÖGÐUM" SOLARIS ÞARNA ÚTI........


mbl.is 72 dvalarleyfishafar á leið frá Gasa til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENFALDAST VÆRI NÁTTÚRULEGA AÐ SEGJA UPP EES SAMNINGNUM.......

Svo fylgjumst við við bara með hvort það sé eitthvað vit í þessum "tilskipunum" þeirra og innleiðum það sem vit er í fyrir okkur.  Það hefur verið nokkuð gegnumgangandi að um og undir 10% af tilskipunum frá ESB í gegnum tíðina hefur verið hægt að heimfæra upp á Íslenskar aðstæður, annað hefur bara verið tómt kjaftæði.  OG ER SKEMMST FRÁ ÞVÍ AР  SEGJA AÐ ESB GERÐI TVÍHLIÐA SAMNING VIÐ KANADA, SEM ER MUN HAGSTÆÐARI FYRIR KANADA EN EES SAMNINGURINN ER FYRIR EES LÖNDIN (Noreg, Ísland og Licthenstein).  Það verður ekki betur séð en að EES samningurinn sé handónýtur og skili ekki nokkrum sköpuðum hlut.  UPPHAFLEGA, ÞEGAR EES SAMNINGNUM VAR LOGIÐ UPP Á OKKUR, VR OKKUR TALIN TRÚ UM AÐ TOLLAR YRÐU FELLDIR NIÐUR AF SJÁVARAFURÐUM Á EES SVÆÐINU.  EN SVO KOM Í LJÓS AÐ SJÁVARAFURÐIR HAFA ALDREI VERIÐ ÁN TOLLA.HVER BER ÁBYRGÐ Á ÞESSU ???????????????


mbl.is Kristrún vill innleiða skaðabótatilskipun ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI ÞARNA FÓR HÚN ENDANLEGA YFIR "STRIKIÐ".............

Ég verð að viðurkenna það að þessi manneskja hefur aldrei verið í miklu áliti hjá mér og í gegnum tíðina hefur margt misgáfulegt komið frá henni en með því að tala um Katrínu Jakobsdóttur, sem næsta forseta landsins, toppaði hún sjálfa sig OG ÞAÐ MARGFALT........


mbl.is Þorgerður styður Katrínu í forsetaembættið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HANN ÞARF NÚ EKKI AÐ VERA NEITT HISSA Á ÞVÍ.....

Hann hefur "BARIST EINS OG ÓÐUR HUNDUR" fyrir því að HALDA LANDAMÆRUNUM OPNUM FYRIR HÆLISLEITENDUM og ef hafa komið fram einhverjar tillögur um að HERÐA eitthvað skilyrðin fyrir að hælisleitendur geti komið hér óáreittir inn í landið, þá hefur hann gert allt sem hugmyndaflugið hefur til að bera, til þess að koma í veg fyrir að þær tillögur geti orðið að veruleika.  Svo þegar hann sér að  þjóðin er ekki sammála þessari "hælisleitendastefnu" sem VG hefur staðið fyrir og hann alveg sérstaklega, þá fer hann að eins og litlu krakkarnir (sýnir best þann þroska sem þessi maður er búinn) hann kennir því um að allir séu vondi við VG og þá sérstakleg hann.  EN AÐ VIÐURKENNA AÐ VG OG HANN HAFI REKIÐ ARFAVITLAUSA STEFNU ALLAN TÍMANN ÞAÐ HVARFLAR EKKI AÐ HONUM EÐA NEINUM ÖÐRUM INNAN VG. HVERNIG VÆRI AÐ STJÓRNMÁLAMENN (OG ÞAÐ Á EKKI EINGÖNGU VIÐ UM VG, HELDUR FLESTA EF EKKI ALLA), FÆRU AÐ FYLGJAST MEÐ VILJA ÞJÓÐARINNAR?????????


mbl.is VG stillt upp við vegg í umræðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"KRAKKARNIR HANS KLOPPS" HAFA HREINLEGA UNNIÐ ÞREKVIRKI UNDANFARNA TVO LEIKI

Þessi frammistaða "strákanna" í akademíu Liverpool er ALGJÖRT EINSDÆMI Í ENSKRI FÓTBOLTASÖGU og það má ekki gleyma því að í leiknum á undan lögðu þessir "strákar" stjörnum prýtt lið Chelsea og sönnuðu að peningar eru ekki aðalmálið í fótboltanum.  Og með þessum sigri á Southampton sýndu það og sönnuðu að það er LIÐSHEILDIN sem er stærsta málið OG EKKI MÁ GLEYMA ÞÆTTI KLOPPS Í ÞESSU TILFELLI EN ÞAÐ FER EKKI Á MILLI MÁLA AÐ HANN ER ALGJÖR KRAFTAVERKAMAÐUR Á SÍNU SVIÐI........


mbl.is Í fyrsta sinn í sögu Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KEMUR EKKI NEITT Á ÓVART.........

Enda get ég ekki með nokkru móti séð að hann hafi neitt til að bera umfram aðra, sem ætti að gera það að verkum að hann valdi þessu embætti.  En það ber að hrósa manninm fyrir það að gera sér grein fyrir því sjálfur að þetta sé ekki fyrir hann.......


mbl.is „Enginn hefur komið að máli við mig“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ENN EIN "GRÁTFRÉTTIN" FRÁ GAZA...........

Það er minna talað um fórnarlömb hryðjuverkaárásarinn á Ísrael 7. október í fyrra og afdrif og kjör gíslanna sem Hamas-liðar tóku í  þeim hryðjuverkaaðgerðum.......


mbl.is Missti 103 ættingja í loftárás Ísraela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN EYKUR SAMSTARF UNRWA VIÐ HAMAS EKKERT Á NEYÐINA Á GAZA????

"Benda sam­tök­in á að fram til þessa hafi eng­um trú­verðugum rann­sókn­um á ásök­un­un­um verið lokið" (tilvitnun í viðtengda frétt).  Það er nefnilega heila málið; RANNSÓKN ER EKKI LOKIÐ OG Á MEÐAN SVO ER ÞÁ ER EKKI NOKKUR ÁSTÆÐA TIL AÐ GERA NEINAR BREYTINGAR Á FYRRI ÁKVÖÐUNUM........


mbl.is Hvetur stjórnvöld til að styðja UNRWA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HAFA ÞÁ ÍSLENDINGAR NÁÐ BOTNINUM MEÐVIRKNI AUMINGJAGÆSKU OG ÚTLENDINGADEKRI???

Eða eru einhverjir sem halda að með því að senda "Palestínumann" sem okkar fulltrúa í Eurovision þá væri kannski möguleiki á langþráðum sigri? En samkvæmt  grein í FRÉTTINNI.IS þá er þessi "PALESTÍNUMAÐUR" ekki jafn mikill Palestínumaður og hann vill vera láta og sumir halda.  TIL HVAÐA RÁÐA VERÐUR GRIPIÐ NÆST????


mbl.is Hera Björk, Bashar og Sigga Ózk komust áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband